Verkamaðurinn - 31.01.1964, Side 1
Verkamaðurinn
Hvflð verður fiskverðið?
• •
BORINN FER ENNIAD »0 STODDII
Um síðustu, helgi fréttist skyndi-
lega, að ákveðið hefði verið að
flytja Norðurlandshorinn nú, þeg-
ar frá Húsavík og suður til Vest-
mannaeyja til að bora þar eftir
köldu vatni. Mun hafa verið um
einhliða ákvörðun Jarðborana-
deildar Raforkumálaskrifstofunh-
ar að rœða. Síðan hafa orðið um
þetta miklar deilur.
Blaðið hafði í morgun tal af
Jóhanni Hermannssyni, forseta
bœjarstjórnar Húsavíkur, og
spurði hann frétta af þessu máli.
Jóhanni fórust orð á þessa leið:
— Ég held mér sé óhætt að
segja, að borinn fari ekki héðan
að svo stöddu. Það verður boruð
önnur hola áður.
Þeir tilkynntu okkur á föstu-
dagskvöld í hinni vikunni, að það
væri ákveðið, að borinn yrði flutt-
ur burtu. Við vissum ekkert fyrri
Þeir hringdu til Áskels bæjar
stjóra klukkan tíu um kvöldið,
Við komum þá saman í bæjarráði
og ákváðum, að bæjarstjóri færi
suður að ræða málið við ráða^
Skákfréttir
Skákkeppni félaga og fyrir-
tækja, sem að undanfömu hefur
staðið yfir á vegum Skákfélags
Akureyrar, lauk síðastliðið mánu-
dagskvöld. Sex sveitir tóku þátt í
keppninni að þessu sinni: A og B
sveit frá Menntaskólanum, ein frá
Gagnfræðaskólanum, ein frá Iðju,
ein frá KEA og ein frá Stefni.
í hverri sveit voru 4 keppendur.
Úrslit urðu þau, að A-sveit MA
bar sigur ór býtum, hlaut 14 vinn-
inga. Sveit Stefnis hlaut 13
vinning, KEA 13 vinninga, Gagn-
fræðaskólans 9, Iðju 5^2 og B-
sveit MA 5 vinninga.
Sérstaka athygli vakti frammi-
staða hinna ungu skákmanna frá
Gagnfræðaskólanum, því að þarna
var um allharða keppni að ræða
og sumar sveitanna að mestu skip-
aðar meistaraflokksmönnum.
Erlendur meistari
í heimsókn?
Skákfélagið er nú að vinna að
því, að fá hingað erlendan skák-
meistara til að tefla hér fjöltefli
og klukkuskák. Vonir standa til,
að annaðhvort Norðmaðurinn
Sven Jóhanessen eða Nýsjálend-
ingurinn Wade komi norður eftir
að hinu mikla Reykj avíkurmóti
lýkur, en þeir eru þar báðir þátt-
takendur, svo sem kunnugt er.
menn þar. Síðan héldum við fund
í bæjarstjórninni á þriðjudaginn
og gerðum þá svofellda ályktun:
„Bœjarstjórn Húsavíkur telur,
að samkvœmt samningi frá 12.
des. 1962 um jarðhitaleit í Húsa-
vík beri Jarðboranadeild að láta
Norðurlandsborinn bora að
minnsta kosti aðra holu til hér í
Húsavík og mótmœlir því brott-
flutningi hans á þessu stigi máls-
ins. Hins vegar getur bcejarstjórn
fallizt á, að þegar boruð hefur
verið önnur hola, enda þótt hún
beri ekki árangur, verði heita-
vatnsleit hætt hér með Norður-
landsbornum, að því tilskildu, að
Jarðboranadeild haldi áfram
heitavatnsleit hér með öðrum bor
eftir nánara samkomulagi.“
Eftir það fór bæjarstjóri á
fund með ráðherra og Gunnari
Böðvarssyni, yfirmanni Jarðbor-
anadeildarinnar. Þar var ákveðið,
að borinn færi ekki að svo stöddu.
Á morgun er verkfræðingur, ís-
leifur Jónsson, væntanlegur norð-
ur til frekari viðræðna.
Hér er almennur vilji fyrir því,
að reynt verði með aðra holu. í
þessari törn verðum við að leita
af okkur allan grun. Annars myndi
verða löng bið og við svo neyðast
til að fara af stað aftur seinna
með margföldum kostnaði.
Þegar sú frétt barst, að flytja
ætti borinn burtu nú þegar til
Vestmannaeyja vakti það almenna
undrun og reiði hér, enda höfum
við samning við Jarðboranadeild-
ina, þannig að þeir geta ekkert
hreyft borinn burtu að svo stöddu
nema með okkar samþykki. Ég
held því, að það liggi nú fyrir, að
borinn fari ekki fyrr en boruð
hefur verið önnur hola.
Hinn 20. þ. m. kvaS yfirnefnd
Verðlagsróðs sjóvarútvegsins upp úr-
skurð um verðlogningu ferskfisks á
þeirri vetrarvertíð, sem nú er hafin.
í yfirnefndinni varð ekki samkomulag
um verðið. Fulltrúar fiskseljenda vildu
hækka verðið fró þvi, sem það var á
síðasta óri, en fulltrúar fiskkaupenda
vildu lækkun. Oddamaður, skipaður
af hæstarétti kvað upp þann úrskurð,
að verðið skyldi óbreytt standa.
Þessi úrskurður oddamannsins hef-
ur að vonum vakið mikla reiði og
ólgu hjó sjómönnum og útgerðar-
mönnum. Þykir þessum aðilum það
hart, ef þeir eiga einir atvinnustétta
þjóðfélagsins að búa við óbreytt kjör
fró óri til órs ó þessum verðbólgu-
tímum. Bendir margt til þess, að mik-
ill hluti bótaflotans verði alls ekki
gerður út, fóist ekki einhver leiðrétt-
ing þessara móla. — Siðustu fréttir
af mólinu eru þær, að rikisstjórninni
er Ijóst orðið, að alvarlega horfir og
hefur ókveðið að bjóða sjómönnum
6% hækkun. Tillaga fró Lúðvík
Jósefssyni um 15% hækkun var oftur
á móti felld ó Alþingi.
I ýtarlegri grein ó 3. og 4. siðu
bloðsins i dag ræðir fulltrúi sjómanna
í yfirnefndinni, Tryggvi Helgason
forseti Alþýðusambands Norðurlonds
um þessi mól og vinnubrögð þau, sem
viðhöfð voru við ókvörðun fiskverðs-
ins.
yy
ALLRA MEiHA BOT
ii
Um næstu helgi verður togbraut Skíðaráðs Akur-
eyrar í Hlíðarfjalli vígð og af því tilefni haldið stórt
skíðamót — annað stærsta mót landsins —.
Þar verða 12 keppendur frá Reykjavík, 9 frá ÓlafsfirSi, 9 frá
Siglufirði og 10 frá Akureyri og e. t. v. víðar að.
Frd Atibði K.I.A. í Hrisey
Þriðjudaginn 28. þ. m. opnaði
útibú Kaupfélags Eyfirðinga í
Hrísey sölubúð sína í nýjum húsa-
kynnum.
Haustið 1962 var hafin bygging
á tveggja hæða húsi norðan við
gamla verzlunarhúsið. Eldri við-
byggingu, sem tengir þessi nýju
húsakynni við þau gömlu, var
breytt í vörulager og þar er einnig
komið fyrir stórum og fullkomn-
um kæli- og frystiklefum.
Nýbyggingin öll er 176 m2, en
sjálft búðarplássið um 130 m2.
Verzlunin er björt og rúmgóð og
mjög vel búin tækjum og áhöld-
um til verzlunarreksturs. Hún er
með kjörbúðarfyrirkomulagi að
mestu leyti, og vöruval mjög fjöl-
breytt frá öllum söludeildum fé-
lagsins á Akureyri.
Á efri hæð hússins er rúmgóð
og vistleg íbúð fyrir útibússtjór-
ann.
Hópur Mývetninga heimsótti
Akureyri um síðustu helgi og
hafði hér þrjár sýningar á sjón-
leiknum Allra meina bót eftir þá
félaga Patrek og Pál. Lögin, sem
sungin eru í leiknum, hefur Jón
Múli Ámason gert, og gefur það
kannske einhverja hugmynd um,
hverjir vera muni höfundar leiks-
ins sjálfs.
Æfingar á leiknum annaðist
Birgir Brynjólfsson, en leiktjöld
gerðu Ingvi Kristjánsson og Jó-
hannes Sigfinnsson. Leiksviðs-
stjóri er Arnþór Björnsson, en
sr. Örn Friðriksson annast undir-
leik á píanó.
Aðalhlutverkið í leiknum er í
höndum Böðvars Jónssonar á
Gautlöndum, og ferst honum það
svo vel, að hreina snilld má kalla.
Eiga Mývetningar þar greinilega
á að skipa leikara, sem hvert leik-
hús myndi telja eftirsóknarvert að
ná til sín.
Með önnur helztu hlutverkin
fara Þráinn Þórisson, Pétur ÞóriS'
son, Steingerður Jónsdóttir og
Steingrímur Jóhannesson. 011
skila þau sínu verki vel og sanna
áhorfendum, að Mývetningar
eiga ekki bara góða leikara held-
ur líka söngfólk, því að mikið er
sungið. Steingrímur bregður sér
í ýmis gervi og kemst vel frá öllu.
Harin er sennilega sá, fyrir utan
Böðvar, sem beztan leik sýnir.
Auk framantalinna koma fram í
smáhlutverkum: Áslaug Sigurð-
ardóttir, Kristín Pétursdóttir, Ás-
mundur Kristjánsson og ívar
Stefánsson.
Allra meina bót er gamanleikur.
Til þess eins gerður að vekja kát-
ínu og hlátur. Það er meðalið,
sem höfundar leiksins og Mývetn-
ingarnir, sem valið hafa hann til
sýningar, telja meðal allra meina.
Og sennilega er það a. m. k. í röð
þeirra betri.
Auk þess að reyna þessar lækn-
ingar heima hjá sér hafa Mývetn-
ingar sýnt leikinn fjórum sinnum
í Húsavík og einnig í Reykjadal
og svo hér á Akureyri. Undirtektir
hafa alltaf verið með ágætum.
Fyrir ágóðann af sýningunum
er ætlunin að kaupa snjóbíl til
nota, þegar að kreppir með sam-
göngur.
Þ.
Starfsfólk útibús KEA í
Hrísey: (Fró vinstri) Jó-
hanncs Kristjónsson útibús-
stjóri, Selma Jónsdóttir, Ingi- ,
björg Ingimarsdóttir, Sig-
urður Finnbogason, Hanna
Sigmarsdóttir, Björgvin Jóns-
son. Lengst til hægri er Vil-
helm Ágústsson, Akureyri,
eftirlitsmaður kjörbúða hjó
KEA.
HEYRT
Á GÖTUNNI
AÐ örncfnanefnd hafi ókveðið að
breyta nafninu ó Norðurbor í
Vesturbor.
AÐ eitt helzta stefnumól krato,
eftir að þeir breyttu stefnuskró
sinni, sé að afnema vökulögin.
AÐ Magnús fró Mel eigi það svar
eitt við spurningunni um eitr-
unarhættu fró aluminium-
verksmiðju: Haldið þið, að ég
myndi þó berjast fyrir þeirri
framkvæmd?