Verkamaðurinn - 21.02.1964, Blaðsíða 1
SAGT OG SKRIFAÐ
------ ------—---í
Verkamaðurinn
Nerkar viðskiptasamningur
Það má kannske segja, að ís-
lendingar hafi marga merka við-
skiptasamninga gert um dagana,
en fáir þeirra munu þó athyglis-
verðari en sá, sem undirritaður
var síðastliðinn þriðjudag. ■—• Þá
samdi flugfélagið Loftleiðir við
kanadiska fyrirtækið Canadair
um kaup á tveimur flugvélum af
gerð þeirri, sem nefnd er CL-44,
en kaupverð beggja þessarra flug-
véla ásamt fylgifé, er sem næst 400
milljónir króna. Ekki leituðu Loft
leiðir eftir ríkisábyrgð vegna
kaupanna og ekki einu sinni banka
ábyrgð. Sýnir það vel, hvers álits
Loftleiðir njóta. Hin fyrri þess-
arra tveggja flugvéla kemur til
landsins í maí, en sú síðari seinna
á árinu. Verður þetta myndarleg
viðbót við flugvélakost lands-
manna, því að vélar þessar taka
hvor um sig 160 farþega og auk
þess verulegt magn flutnings.
í sambandi við samning þenn-
an er vert að benda á, að verð
flugvélanna tveggja er a. m. k.
jafnhátt og kosta myndi að reisa
olíuhreinsunarstöð hér á landi. —
Samt tala stóriðjunefnd og ríkis-
stjórnin um, að nauðsynlegt sé að
fá útlendinga til að reisa olíu-
hreinsunarstöð, verði hún sett
upp hér. Þetta er ekki fallegur
vitnisburður Viðreisnarstjórninni
og íslenzka ríkinu. Ríkið sjálft
treystir sér ekki til að koma af
eigin rammleik á fót fyrirtæki,
sem kostar jafnvirði tveggja flug-
véla en íslenzkt flugfélag getur
fengið þær keyptar án nokkurra
opinberra ábyrgða. Annað tveggja
er kjarkur ráðamanna þjóðfélags-
ins enginn orðinn eða þá, að Við-
reisnarstj órnin er rúin öllu trausti
jafnt á erlendum vettvangi sem
innanlands.
HERMOÐJJR bóndi í Arnesi er
að verða mikill uggvaldur í aug-
um íhaldsmanna. Nýlega setti
hann landbúnaðarráðherra al-
gjörlega út úr stuði á Alþingi,
með einni meinlausri spurningu.
Hins er skemmst að minnast, er
íhaldsmenn slitu opinberum
fundi hér á Akureyri sl. vor, er
þeir litu bónda þennan augum.
Eigi vitum vér, hvað veldur, mað
urinn kemur vel fyrir og bœnd-
ur yfirleitt taldir meinhœgir
menn. Kannske er Hermóður ó-
þœgilega kunnugur málefnum
flokksins frá fyrri tíð, en minni
jábróðir Jósafatanna nú orðið.
MORGUNBLAÐIÐ var síðast-
liðinn mánudag með einhvers
Aðalfondur M.I.Í.K. skorar á Alþingi að samþykkja
frnmvarp Einars Olgeirssonar og Hannibals Valdi-
marssonar um breytingu á stjómarskránni
fvá Akureyrordeild K- E. S.
Aðalfundur Akureyrardeildar
KEA var haldinn að Hótel KEA sl.
mánudagskvöld.
M. a. kom það fram í skýrslu
deildarstjórnar, að mjólkurinn-
legg í Mjólkursamlagið á vegum
deildarinnar sl. ár var 712.482 1.
og hafði aukist um 5% frá fyrra
ári. Slátrað hafði verið frá deild-
armönnum 1294 kindum og var
13.01 kg.
var mj ög
með lakara
dilka
garðávaxta
meðalfallþungi
Uppskera
misjöfn og í heild
móti.
Deildin átti í sjóði um sl. ára-
mót um 140 þús. kr. Lagt var
fram af tekjum deildarinnar á sl.
ári kr. 5.000.00 í Minningarsjóð
Þorsteins Þorsteinssonar.
Framkvæmdastjóri KEA, Jak-
ob Frímannsson, flutti ítarlega
skýrslu um rekstur félagsins 1963.
Hefur hennar verið getið hér í
blaðinu, eftir að framkvæmdastj ór
inn flutti hana á Félagsráðsfundi.
í sambandi við fyrirspurn varð-
andi rekstur Hótel KEA, kom fram
eindreginn vilji margra félags-
manna um, að félagið tæki á ný
við rekstri hótelsins.
Kosningar fóru þannig, að Ár-
mann Dalmannsson var endurkos-
inn deildarstjóri og einnig voru
þeir endurkosnir í stjórn deildar-
innar, Sigurður O. Björnsson og
Jón Kristinsson.
Þá voru kosnir fulltrúar á að-
alfund KEA. Aðeins einn listi
hafði borizt og var hann því sjálf
kjörinn. •— Fréttatilkynning.
S K R A
um vinninga i Happdrætti Hóskóla
íslands í 2. flokki 1964
-------- Akureyrarumboð ---
Kr. 10.000.00 hlutu nr. 13389
og 50475.
Kr. 5.000.00 hlutu þessi nr.:
14428 15984 23017 23021 24917
31112 31560 54068
Kr. 1.000.00 hlutu þessi nr.:
529 1166 2135 2933 3975 5001
5655 6571 7116 7270 9229 9235
9827 10220 10630 11192 11198
12054 12222 12446 13269 13908
14252 14378 14386 14948 15053
Aðalfundur Akureyrardeildar
Menningar- og friðarsamtaka ísl.
kvenna var haldinn að Hótel Varð
borg 19. febr. sl.
Form., frú Sigríður Þorsteins-
dóttir, flutti skýrslu stjórnarinnar
og lesnir voru upp reikningar
deildarinnar og samþykktir.
í stjórn deildarinnar fyrir yf-
irstandandi ár voru kosnar:
Formaður frú Sigríður Þor-
steinsdóttir.
Varaformaður frú Soffíða Guð-
mundsdóttir.
Ritari frú Guðrún Kristjánsd.
Gjaldkeri frú Þórhalla Steinsd.
Meðstjórnendur frú Ragnheið-
ur Dóra Árnadóttir, frú Gunnur
15241 15553 15555 15996 16062
16592 17308 18043 18462 19053
19600 22420 22423 24025 25582
25973 28695 30537 31179 31186
31586 31591 31691 33430 36467
36476 36498 40577 42801 42830
43305 44829 44882 46455 46804
47462 49095 49133 49295 52127
53235 53850 53912 54074 54736
54742 54744 57883 58034 58044
59572 59755
(Birt án ábyrgðar)
Júlíusdóttir
Gestsdóttir.
og frú Kristbjörg
Að loknum aðalfundarstörfum
flutti Þórir Daníelsson erindi um
friðarbaráttuna og þá áfanga, sem
náðst hafa á þeim vettvangi á
síðasta ári.
Félagið hyggst halda almennan
fund á hinum alþjóðlega baráttu-
degi kvenna, 8. marz, svo sem það
hefur gert frá stofnun.
Á fundinum var einróma sam-
þykkt eftirfarandi tillaga:
„Aðalfundur Akureyrardeildar
Menningar- og friðarsamtaka ísl.
kvenna, haldinn 19. febrúar 1964,
mótmælir eindregið öllum fyrir-
ætlunum um að hér á landi verði
komið upp atvinnurekstri í eigu
erlendra manna eða erlendra fé-
laga.
Fundurinn varar við þeirri
hættu, sem sjálfstæði og menn-
ingu íslendinga er búin, ef af
þessu verður og beinir þeirri al-
varlegu áskorun til hins háa Al-
þingis, að samþykkja frumvarp
það til stjórnskipunarlaga, sem
þeir Einar Olgeirsson og Hanni-
bal Valdimarsson hafa flutt“.
Jörðin Dagverðareyri er ehhi til sölu
Dagblaðið Tíminn birti þá frétt
eftir Eyþóri H. Tómassyni hinn
8. þ. m., að jörðin Dagverðareyri
væri föl, ef til þess kæmi, að þar
yrði staðsett margumtölum alum-
iníumverksmiðja. Verkamaðurinn
sagði síðan frá þessum upplýsing-
um Eyþórs í síðasta blaði.
En samdægurs hringdi Gunnar
Kristjánsson bóndi á Dagverðar-
eyri til blaðsins og skýrði frá því,
að frétt þessi væri með öllu til-
hæfulaus. Ekkert hefði verið leit-
að eftir kaupum á jörðinni, og
þó svo að það yrði gert, þá væri
jörðin alls ekki föl. Hann hefði
ekki hugsað sér að selja Dagverð-
areyri.
Jafnframt lét Gunnar í ljós þá
skoðun, að honum þætti ákaflega
ósennilegt, að stórverksmiðj a yrði
nokkurn tíma byggð á síldar-
bræðslulóðinni, eign þeirra Ey-
þórs og Co., því að þar myndi
ekki heppilegur grunnur fyrir
slíka stórbyggingu.
Iconar samanburð á þeim Ingólfi
á Hellu og Jóni Pálmasyni í sam
bandi við framítökur á Alþingi.
Þetla var þó gjörsamlega út í
hött, því að oft hefur verið hleg-
ið að Jóni, en aldrei hefur þess
heyrzt getið, að nokkur maður
hafi haft skemmtun af Ingólfi á
Hellu.
REYKVÍKINGAR hafa undan-
farið verið með mikinn fyrir-
gang í sambandi við fyrirhugaða
ráðhúsbyggingu og láta sér ekki
nœgja þurlendið sem lóð undir
bygginguna, heldur hugsa sér að
láta liluta hennar út í Tjörnina
og verður sá partur vœntanlega
byggður í stíl við Örkina hans
Nóa. Við hér í bœ höfum aftur
á móti eignast okkar ráðhús
þegjandi og hljóðlaust að heita
má. Þegar ekið er inn í bœinn
að norðan, verður á hœgri hönd
mikil bygging við Geislagötu.
Okunnugum mundi sennilega
detta í hug kassagerð eða smjör-
líkisfabrikka, jafnvel tukthús, ef
gluggar vœru ekki lítið eitt stœrri
en gerist á fangabúðum.
En þarna hafa Akureyringar
sitt ráðhús: Gerið svo vel og
gangið inn.
MORGUNBLAÐIÐ birti nú ný-
lega mynd af hundi fyrir fram-
an sjónvarp og vitanlega gat
blaðið ekki hugsað sér annað
en hermannasjónvarp, enda eru
blaðamenn þess miklir og einlœg
ir aðdáendur þess.
Og blaðið spyr: Spillist hann?
Nú œtti blaðið að halda áfram
með þessa skemmtilegu hug-
mynd og birta myndir af fleiri
aðdáendum hermannasjónvarps-
ins, gröndölum, matthíasenum
og jósafötum. Af nógu er að
taka og gœti þetta orðið hin
skemmtilegasta sería og spurn-
ingin sígilt umhugsunarefni. —
Spillist hann? Spillist hann?
HEYRT
Á GÖTUNNI
AÐ ef biskupinn yfir íslandi hefði
vald fró Hinum eina, myndi
hann bannfæra Pétur Ben.
nú þegar.
AÐ sendimenn Stóriðjunefndar
hafi oð undanförnu stundað
landmælingar, þar sem forð-
um var Gósakaupstaður.
AÐ ihaldsmenn ó Akureyri geri
sér vonir um, oð sparast muni
kostnaður við eyðingu njóla í
bæjarlandinu, ef aluminíum-
verksmiðjan verði staðsett að
Gósum eða Dagverðareyri.