Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 21.02.1964, Síða 2

Verkamaðurinn - 21.02.1964, Síða 2
Á sjónskífunni Ríkið Það hefur frá upphafi verið eitt helzta vandamál einstaklings og heildar (ríkis) að afla sér lífs- viðurværis. Fyrst lengi snerigt vandamálið um hið frumstæða, mat, drykk, klæði og skýli. Eftir að „menning“ óx og verkaskipt- ing kom til, fór þetta meir og meir að snúast um öflun tekna, fyrst varnings til vöruskipta, síðan til- búins gjaldeyris. Þá er þjóðskipu- lag það þróað orðið, að til er nokkurs konar almennings-forsj á, sem kallast ríki. Það hefur með höndum ýmislegt það, sem áður var viðfang einstaklinga eða hópa og verður því einnig að afla sér tekna til að standa undir margs konar greiðslum við stjórn og framkvæmdir. Þetta fyrirbæri, sem kallast ríki, er háð þeim ann- marka, að því hættir við ofvexti og verður oft ferleg ófreskja, sem ekki einungis keppir við einstakl- ingana um verðmæti, heldur hef- ur það ríka tilhneigingu til að gleypa þá, smátt og smátt eða alla í einu. Nú er það svo, að „ríki“ er aðeins hugmyndalegt fyrirbæri, líkt og sá vindgapi, sem ekki hef- ur á stöng settur verið og magn- aður. Ríki er því óskabiti þeirra óheilbrigðu einstakiinga, sem ekk- ert þrá nema yfirráð yfir öðrum og þá aðstöðu, sem slíkt veitir til svölunar græðgi. Geysileg hætta er jafnan samfara því, ef and- varaleysi ríkir í vali manna til stjórnar rikinu, einnig, að ein- hverjir fantar hrifsi til sín það vald. Allir þekkja hina ýmislegu þró- un ríkja, og er óþarft að rekja dæmi. En hvernig standa þessi mál á Islandi nú? Ríkisbáknið er orðið mikið og hleður stöðugt utan á sig. Uggir marga um þróun þess. Hér hefur þó verið valið í stjórn þess eftir lýðræðislegum leiðum, ætti það að vera trygging fyrir góðri stjórn, þar sem allra hagur væri fyrir brjósti borinn. Þar ættu að sitja menn, er bæði hafa vit og vilja til að gera sem bezt. Á þetta þykir þó skorta mjög. Tekjuöffun Eiristaklingar afla sér tekna með mörgu móti. Nokkrir selja orku sína, vinna öðrum, nokkrir reyna að komast yfir tæki, er skaffi þeim viðurværi, svo sem bát, skip, bifreið, nokkrir koma fyrir sig búum og framleiða vöru til matar og klæða, nokkrir vinna þessa vöru og dreifa henni. Mætti svo lengi telja. Of margir eru þó haldnir þeim leiða sjúkdómi, að þeir nenna ekki að skapa sér verð- mætin með eigin orku, heldur reyna að afla þeirra á annarra kostnað. Þetta eru afætur, sem all- ar þjóðir eiga við að stríða og þyrftu lækningar við. En hvernig aflar ríki sér tekna? Eðlilegt má kallast, að það neytti að miklu leyti sömu bragða og forsjálir ein- staklingar, kæmi sér upp einhverj- um arðbærum tekjulindum, en á þessu virðist víða mikil tregða, kemur þar margt til, byggist þó vitanlega á þeim, sem ríkinu stjórna, því ríki er sem fyrr seg- ir, ekki annað en tæki, sem lýtur' stjórnanda. Áður fyrr heyrði maður oft í sveitum, ef velja skyldi hrepps- nefndarmann: Sá, sem ekki getur búið fyrir sjálfan sig, getur held- ur ekki búið fyrir aðra. Þessu hef ég aldrei heyrt hreyft, þegar rætt er um val ríkisstj órnar eða fjár- málaráðherra sérstaklega. En hvaða tekjuöflunarleiðir hafa þeir valið? Véfrétfarorðið: Skaftur Þegar ég fór fyrst að fylgjast með landsmálum, úr 1930, voru' hér neyðarár, og þurfti þá forsjála ^ menn til forystu á öllum sviðum, ^ svo þjóðin ekki sylti. Á þeim ár-' um kom í embætti fj ármálaráð- herra, ungur maður, sem síðar varð haldinn þeirri þráhyggju, að enginn gæti stjórnað fjármálum nema hann, veit ekki, hvort hann 1 kunni að búa fyrir sjálfan sigJ Á þessum árum var eitt úrræði1 mjög í hávegum haft við lausn ^ fjármálavanda ríkisins, það var' véfréttarorð, þó mjög fornt: Skatt ■ ur. Öllum auknum útgjöldum^ skyldi svarað með því að leggja nýjan skatt á almenning í alls konar formum, undir tugum og' hundruðum nafna. Þó hefur keyrt ^ um þverbak eftir að hann hætti. Allir, sem skipað hafa sæti fjár- málaráðherra síðan, hafa stórauk ið við, svo fram úr öllu skynsam- legu hófi keyrir, hafa þó ýmsir þeirra kunnað vel að búa fyrir sjálfa sig. Skattpíning á íslandi á sér sennilega hvergi hliðstæðu. Nöfn þeirra eru legíó. Úrræða- leysi ríkisvaldsins til að bjarga sér á skynsamlegan hátt verður helzt jafnað til öryrkju vegna fá- vitaskapar, ef um einstakling væri að ræða. Skattheimta ríkisvalds af almenningi er orðið eitt höfuð- vandamál þjóðarinnar, er lamar öll viðbrögð hennar og áhuga, en í öngþveiti sínu er hún einnig völd að alls konar sviksemi og undirrót margra lasta. Hvað er hægí að gera? Bóndi myndi svara þessarri spurningu svo: Eg verð að auka við bústofninn og bæta jörðina. Útgerðarmaður myndi fjölga bát- um og vinna að betri nýtingu afl- ans, verkamaður vinna lengur. Engum þessum aðila myndi detta í hug það úrræði að fara í vasa náungans, sem við svipuð kjör byggi, enda yrði hann þá dæmd- ur í tugthús fyrir. Ríkið rekur einkasölu á lyfjum og nautnavör- um, og hefur af því góðan hagn- að. Það á skipaútgerð, tapútgerð, og síldarverksmiðju. En þetta er allt hálfkák, t. d. hef ég það fyr- ir satt, að ríkið flytji ekki sjálft inn vörur til einkasalnanna, held- ur sé sá rekstur í höndum heild- sölufyrirtækja: þarna sleppir það spæni úr aski, sem hægt væri að góma og auka tekjur Verulega. Olíufélög hér eru mörg, en þó tal- in græða allvel, þrátt fyrir hinar flónslegu dreifingaraðferðir. Rík- ig kaupir í rauninni alla olíu í vöruskiptum, en afhendir vöruna nokkrum gæðingum til sölu inn- anlands, og þótt það taki rífleg- an skatt af olíunni, myndu hitt drjúgum betri tekjur að hafa alla söluna. Innflutningur ýmissa vara er talinn góð atvinnugrein. Heildsal- ar eru með ríkustu þegnum þjóð- félagsins. Því skyldi ríkið ekki flytja inn vörur og selja lands- mönnum? Þó það taki toll og skatt af hverju hæti, myndi viðbótar- gróðinn, sem rennur í vasa milli- liðanna, vera betur kominn í rík- iskassann. Því gerir ríkið ekki út fiskiskip, því rekur það ekki stór- búskap? Þannig mætti lengi spyrja. En véfréttin sagði: skatt- ur, og hvað þá? Fjármál þjóðar, sem aðeins tel- ur 189 þúsundir, eru ekki mikið viðfangsefni. Það þarf ekki að leita langt erlendis til að finna fyrirtæki, sem svipað hefur um- leikis. Þessi fjármálavandræði okk ar, sem þó búum við óvenju mikil náttúruauðæfi eru brosleg og sjúkleg í senn. En sú gáta er vissu- lega auðskilin. Þar kemur annað orð til: Auðvaldskipulagið. Höfuðgalli Ágallar þessa fj áröflunarkerfis eru margir. T. d. er það mjög mannfrekt og dýrt í framkvæmd. Það mun þurfa að leggja á geysi- legar fjárupphæðir, aðeins til að greiða laun fyrir að innheimta þær. Einnig eru þess mörg dæmi, að almenningur veigri sér við að leggja á sig aukin störf, vegna hinnar hörðu refsingar, sem skatt heimta getur orðið, ef tekjur fara fram yfir viss mörk. En höfuðágall inn er hin siðferðilega hlið. Skatt BÆKDIIR VAKNA1VARNAR Hinn mjög svo fjölmenni fund- ur Bændaklúbbsins fyrri mánudag á Hótel KEA, sýnir að þessi stétt er alvarlega vöknuð til vitundar um mátt samtaka til varnar af- komu sinni. Það er líklega fyrst og fremst utanaðkomandi árásir, sem valda þessu. Að landbúnaður sé hemill á „hagvexti“ í landinu, er alls ekki rannsakað né undir- byggt svo mark sé á takandi, enda skyldi varlega trúa hagfræðing- um, reynslan af þeim er ekki góð nú um stundir. Menntun þeirra er auðvaldslyktandi. Á þessum fundi var mættur for maður Stéttarsambands bænda, Gunnar Guðbjartsson, maður full- ur af eldmóði og flutti þarna fram söguerindi, sem mikil vinna lá bak við. Hann sýndi með tölum „hagvöxtinn“, og fékk mjög já- kvæðar niðurstöður fyrir stétt sína, borið saman við aðra. Hann nefndi t. d. starfsmannafj ölgun í bönkum og öðrum opinberum fyr- irtækjum, og fækkun bænda plús afköst. Það er skemmtilegt saman- burðardæmi. Annars er það svo með tölur, að þeim má hagræða og með þeim má sanna eða af- sanna allan skollann, með og móti málefnum. Við höfum heyrt ár- lega í útvarpsumræðum, að tölur eru notaðar óspart og koma hverju sjónarmiði að fullu gagni, hver á móti annarri. Kannske eru þær allar réttar, aðeins eftir því hvernig þær eru matreiddar, en þó mun svo um tölur sem orð, að ef þau eru misnotuð nógu lengi, missa þau gildi sitt og vekja manni ógleði. Tölur eru pappírsvopn og pjáturverja. Það er öllum ljóst, að algjör bylting hefur gerzt í landbúnaði með tilkomu hinna mikilvirku véla. Framleiðsla hefur margfaldast, þrátt fyrir mikla fækkun fólks við störf, og vel 1 horfir enn um aukinn afrakstur, ! þó „guð og menn“ leggist á eitt | um að tefja og trufla. En höfuð- | atriði tel ég þó, að landið hefur ! verið bætt. Það er meir en bænd- I ur hafi aukið framleiðslu sína frá ári til árs. Þeir hafa ræktað land- ið og gert það verðmeiri arf kom- andi kynslóðum og þeir hafa byggt fyrir þær framtíðarbygg- ingar. í því er ekki síður „hagvöxtur“, þar er einmitt hið varanlega gildi fólgið. Þó mjög erfitt væri vegna þrengsla og slæmra hlustunarskil- yrða að fylgjast með málflutningi á fundi þessum, má fullyrða, að þar var merkum málum hreyft og nokkur krufning reynd. En höfuð gleðiefnið var að sjá þann áhuga, sem ríkti og er vaknaður, þegar slíkur fjöldi manna tekur sig upp við slæmar aðstæður til að geta fylgzt með málefnum sínum og haft áhrif á þau. Svo mun framtíð þjóðarinnar bezt borgið, að hinir fornu at- vinnuvegir hennar skipi öndvegið enn um sinn. Sjávarútvegur og landbúnaður ættu einnig í vax- andi mæli að verða undirstaða hins unga en framsækna iðnaðar í landinu. BRODERAÐAR BLÚSSUR margar gerðir margir litir DRALON-PEYSU R stutterma RÚLLUKRAGA- PEYSUR danskar, margir litir PLÍSERUÐ PILS fallegir, Ijósir litir Verzl. Ásbyrgi h.f. svik eru ekki lengur talin til glæps eins og vera bæri, heldur sport eða í hæsta lagi nauðvörn. Það er öllum ljós sá mikli að- stöðumunur þjóðfélagsþegnanna til framtals. Þeir, sem fyrir laun- um vinna, geta ekki á nokkurn hátt komist undan því, að hver eyrir komi fram. Aðrir hafa að- stöðu til að sýna útkomu, sem get- ur orðið brosleg að vísu, en hlíf- ir þeim við mestu álögum. Þetta eru þó einmitt þeir, sem í rauninni hafa bezta aðstöðu til að borga. Það er ógjörlegt að segja um það með vissu, hve miklu er stolið und an skatti á í slandi, en það má full- yrða, að ef öll kurl kæmu til graf- ar, myndi álag á hvern einstakl- ing geta lækkað um þúsundir. Það væri því máske einhver mesta kjarabót venjulegum launþegum ef hægt væri að knýja fram nokk- | urn veginn rétt framtöl allra. í skjóli skattheimtukerfis okk- j ar og skugga jiess, dafna ótrúleg- j ar jurtir, þær halda áfram að vaxa eitra út frá sér og kæfa góðgres- ið, svo lengi sem óbreytt ástand varir. Þetta er einn svartasti blett- ur á öllum auðvaldsþj óðfélögum og verður vart af máður innan þeirra. En það má afmá þau, og væri góðverk að gera það, áður en þau holgrefur svo að þau hrynji. k. 2) Verkamaðurinn Föstudagur 21. febrúar 1964.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.