Verkamaðurinn - 21.02.1964, Blaðsíða 5
Áfengisneyxln jókst
um 6°0 á órinu 196?
SKRJAF
í SKRÆÐUM
Eiríkur Koparhaus.
Það er upphaf þessa móls, að
bóndi só, er Olafur nefndist bjó ó
Fjarðarhorni í Kollafirði. Hann
ótti þó jörð hólfa og komst bæri-
lega af. Hann var auknefndur og
kallaður Koparhaus, sennilega af
andlitsfalli og litarhætti sínum.
Nú ber svo við, sem títt er
með hjónum, að kona Olafs bónda
verður bornshafandi. Einhverju
sinni um meðgöngutímann dreym-
ir hana, að til hennar komi forn-
maður, sem ótti að vera heygður
þar skammt fró bænum. Haugbú-
inn segist heita Brynjólfur og vilji
nú vitja nafns hjó henni. Segir
að hún muni fæða sveinbarn og
ef hún geri bón sína, þó megi
hún vitja fjórsjóðar, er sé fólginn
í þúfu einni uppi á Miðhjalla, þar
fyrir ofan bæinn, en ef hún þver-
skallist við mólaleitan sinni,
muni sonurinn verða auðnuleys-
ingi og athlægi manna. Hverfur
síðan ó braut.
I fyllingu tímans ól konan svo
sveinbarn og vildi hún láta það
heita Brynjólf, en Olafur bóndi
hennar aftók það með öllu, réði
síðan nafni sveinsins og var hann
skírður Eiríkur. Hann ólst upp
með foreldrum sínum og dafnaði
vel til líkamans. Hitt þótti fljót-
lega koma í Ijós, að sálin yrði þar
eftirbátur — og rættist umsögn
draummannsins að því leyti, að
Eiríkur var nánast fífl, vann flest
verk með striti en fá af viti og
var fyrir það skopaður af öllum
er til þekktu.
Eiríkur varð tröll að vexti og
allur hinn ferlegasti, stórskorinn
í andliti og beinamikill, með stórt
nef og lið á, fölleitur og húðin
mjög strengd og gljáandi, stóreyg-
ur og opinmynntur, hálslangur og
útlimalangur. Eftir þessu var bún-
ingur hans allur. Hann var venju-
lega í grárri úlpu, síðri, með mó-
rauða prjónahettu á höfði og hafði
barðastóran hatt þar ofan á. Hann
var venjuleg rór ! skapi, en reidd-
ist illa, ef út af bar. Hann var
líka kallaður koparhaus. Ekki
átti hann nein systkin, er upp
komust, og hlaut því að taka arf
eftir foreldra sína. Þannig varð
hann eigandi að hálfu Fjarðar-
horni eftir þeirra dag. Þessi jarð-
eign hans varð yfirvöldum hrepps
og sýslu mikið áhyggjuefni, þar
sem Eiríkur var ekki maður til
að sitja hana sem bóndi og held-
ur ekki að gæta fengins fjár.
Eiríkur var nokkuð áleitinn við
konur og eru sagðar af honum
ýmsar sögur í þeim efnum, en
hann bauð þeim stúlkum gjarnan
að gefa þeim Fjarðarhorn ef þær
létu að vilja hans. En aldrei gat
hann þó verzlað þannig, hvort sem
til hefur komið tregða þeirra eða
vanefndir af hans hálfu. Loks
kom þar, að hreppstjórinn þóttist
fá samþykki Eiríks fyrir því að
jarðarparturinn yrði eign hrepps-
ins og var það kölluð gjöf Eiríks
til fæðingarsveitar. Sýslumaðurinn
í Strandasýslu staðfesti þetta
gjafabréf og fékk Eiríkur ekki að
gert, þótt hann teldi sig aldrei
hafa samþykkt gjöfina.
Því var og heitið í gjafabréf-
inu, að Eiríkur fengi allar leigur
eftir jörðina á meðan hann lifði,
en á því urðu víst vanefndir, a.
m. k. taldi hann svo vera og vildi
ekki vera til altaris af þeim sök-
um. „Það er ekki til nokkurs
skapaðs hlutar fyrir mig", sagði
hann, „þv! að eitraður ormur ligg
ur um hjartað á mér síðan hrepp-
stjórinn og sýslumaðurinn tóku
af mér umráð eigna minna."
Eiríkur var alla tið laus ! vist-
um og mest á ferðalögum um
Stranda- Húnavatns- og Dala-
sýslur. Líkamsburðir hans komu
þannig í góðar þarfir, líkt og úlf-
aldans á eyðimörkinni. Eiríkur
var notaður til áburðar yfir fjall-
vegi og torleiðir, ýmist til að létta
af hestum eða burðarminni mönn
um. Hann var trúr yfir þvi, sem
hann tók að sér og þótti skjótur
! ferðum. Bar hann oft þungar
byrðar, 100 til 150 pund, á bak-
inu og fór létt með. Hann mun
þó ætið hafa haft lítið kaup fyr-
ir löng hlaup, eins og venja var
um slíka menn.
ÁFENGISSALAN
1. okt. til 31. des. 1963.
Heildarsala: Selt í og frá Rvík
kr. 63.714.204.00, Akureyri 7.166.
968.00, ísafirði 2.424.320.00,
SiglufirSi 1.453.174.00, SeySis-
firSi 2.423.706.00. Samtals kr.
77.182.372.00.
Á sama tíma 1962 nam salan,
eins og hér segir:
Selt í og frá Reykjavík kr.
55.498.385.00, Akureyri 6.401.
829.00, ísafirSi 2.130.189.00,
SiglufirSi 1.440.471.00, SeySis-
firSi 1.667.052.00. Samtals kr.
67.137.926.00.
Heildarsalan varS síSastliSin
þrjú ár:
ÁriS 1963 kr. 277.607.452.00,
1962 kr. 235.838.750.00, 1961 kr.
199.385.716.00.
Áfengissalan jókst því um kr.
41.768.702.00 áriS 1962, eSa um
15%.
ÞaS skal tekiS fram, aS í ágúst-
mánuSi 1963 varS allmikil hækk-
un á áfengum drykkjum.
Áfengisneyzlan hefur veriS árin
1961—1963:
ÁriS 1963 1,93 lítrar á mann
miSaS viS 100% áfengi, 1962
1,82, 1961 1,61.
Áfengisneyzla hefur þannig
vaxiS um 6% á árinu 1963.
A fengisvarnaráð.
Frjálsíþróttamenn — Ath! Æfingar
á miðvikudögum kl. 6 e. h. Kennari
Hermann Sigtryggsson. Stjómin.
Kringsjó
vikunnar
Messað verður nk. sunnudag !
Akureyrarkirkju kl. 2 e. h. -—
Sálmar: 5 — 58 — 130 — 346
— 684. — P. S.
Vekjum athygli á því, að panta
þarf mat fyrir hópa með dags fyr-
irvara. Hringið ! sima 02 og biðjið
um hótelið. Leigjum út herbergi
og svefnpokarúm. Verið velkom-
in i Hlíðarfjall.
Þorrablót. Karlakór Akureyrar
efnir til Þorrablóts ! Alþýðuhúsinu
29. þ. m. Söngur o. fl. skemmti-
atriði. Velkomnir kórmenn, styrkt-
arfélagar og velunnarar meðan
húsrúm leyfir. — Karlakór Akur-
eyrar.
Námskeið knattspyrnudómara
hefst miðvikudag 26. febr. kl.
8,30 e.h. ! fundarsal Hótel Varð-
borg. Allir þátttakendur mæti
stundvíslega. Enn er hægt að
bæta við nýjum nemendum, þó
aðeins í þetta sinn.
Austfirðingar athugið. — Árs-
hátíð félagsins frestað til 13. marz
n.k. — Austfirðingafélagið á Ak-
ureyri.
Frá MÍR. — Aðalfundur Akur-
eyrardeildarinnar verður í Alþýðu-
húsinu þriðjudaginn 25. febrúar
kl. 8,30 e. h. — Aðalfundarstörf
og kvikmyndasýning. — Sjá aug-
lýsingu í blaðinu.
Prentum
1
BÆKUR
BLÖÐ
TÍMARIT
Hvers konar
SMÁPRENT
LITPRENTUN
Prentsmiðja
Björns Jónssonar h.t.
Sími 1024.
STRÁSYKUR
FLÓRSYKUR
PÚÐURSYKUR
EYRARBÚÐIN
Sími 1916
Ný sending!
VANDAÐAR HOLLENSKAR KÁPUR
Einnig
HATTAR OG HÚFUR
Glæsilegar TÖSKUR og HANZKAR
úr leðri og taui.
NYLONSOKKAR o. fl.
Verzlun B. Laxdal.
TILKYNNING
Eg undirritaður, Ásgeir Jakobsson, Löngumýri 24, Akur-
eyri, tilkynni hér með, að ég hefi selt Huld Jóhannesdóttur
og Vigfúsi Þ. Jónssyni, báðum til heimilis að Hafnarstræti
97, Akureyri, verzlun mína, Bókabúð Rikku, Akureyri. Tóku
þau við rekstri verzlunarinnar hinn 1. febrúar 1964. Rekstur
verzlunarinnar og skuldbindingar eru mér óviðkomandi frá
þeim degi að telja.
Akureyri, 6. febrúar 1964.
Asgeir Jakobsson.
Samkvæmt framanrituðu höfum við undirrituð, Huld Jó-
hannesdóttir og Vigfús Þ. Jónsson, Akureyri, keypt verzlun-
ina Bókabúð Rikku, Akureyri, og rekum hana framvegis, frá
og með 1. febrúar 1964, undir nafninu Huld. Allar skuldbind-
ingar verzlunarinnar fyrir þann tíma eru okkur óviðkomandi.
Huld Jóhannesdóttir, Vigfús Þ. Jónsson.
ÞAÐ NÝJASTA!
Franskir og hollenskir
kvenskór
fallegt úrval.
Belgískir
herraskór
og lóg, loðfóðruð HERRALEÐURSTÍGVÉL
— Nýjasta tízka —
O. m. fl. af nýkomnum skófatnaði.
Skóbúð KEA
Verkarnaðurinn
Vikublað. — Útgefendur: Sóaialista-
félag Akureyrar og Fnlhrúaráð Alþýðu-
bandalagsins i N orðnrlandskjördsami
eystra. Skrifstofa blaðsins er í Brekku-
gfltu 5, Akureyn, simt 1516. — Ritstjórar: Þorsteinn Jónatansson (íb.) og
Kristjin Einar9son frá Djúpalæk. — Áskriftarverð kr. 100.00 árgangurinn. —
Lausasöluverð kr. 3.00 eintakið. — Blaðið kemur að jalnaði út á föstudögum. —
Prentað í Prentsmiðju Björns Jón9sonar h.f., Akureyri.
Föstudagur 21. lebrúar 1964.
Verkamaðurinn (5