Verkamaðurinn - 13.03.1964, Page 5
iimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiBiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiji!
Sextsjgt þjóðskóld
Forðum mínum hugárheimi
hleyptir þú í eld og bál.
Fór um skáldaskóginn þytur.
Skein við sólu grænni litur.
— Ljóð þín hvísla ljúfum hreimi
leyndarmáli að hverri sál.
Þreytir flug á undan öðrum,
átt í byggðum gróin spor.
— Viðjar leysir, böli bægðir.
Bragatún að nýju plægðir.
Seiddir hug með svörtum fjöðrum.
Söngst þig inn í hjörtu vor.
Lýtur guði og góðum vilja,
gefið er þér mikið vald.
Hvessir bit í sannleikssverði,
sækir fast að Hrappi og Merði.
Opnar hug þá aðrir dylja
anda sinn á bak við tjald.
Fyrst að þú í ljóði og línum
lífsins tónum öllum nærð,
erum við í vanda staddir,
von að þagni margar raddir.
Skáldin hljóð í skugga þínum
skjálfa fyrir þinni stærð.
Þér að baki þögul stendur
þjóðin dreifð um land og sæ.
Leggur hún við opið eyra,
ætlast til þú kveðir meira.
Inn um dali og út um strendur
áttu vini á hverjum bæ.
Og við heiminn svo er sáttur
sá, er skapar fögur ljóð.
Frægðin ein er einskis virði,
aðeins farartálmi og byrði.
Betii er en bumbusláttur
blessun fólks og þökkin hljóð.
Þeir, sem kveðast á við efa,
undx'ast munu kvæðin þín.
Þar er trú, sem fjöllin flytur,
flugastraumur, vængjaþytur.
Æðsta listin er að gefa
öðrum mönnum heyrn og sýn.
Anda minn þú endurnærir
allt frá morgni fyrsta dags.
Um mig hríslast heitur straumur.
Hugarsýn er andans draumur.
Alla strengi hjai'tans hrærir
harpa þín til sólarlags.
Heiðrekur Guðmundsson.
iiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiii
ÁIIARP til íslenzhra hvenna í tilefni
alþjóðahvennadansins
í tilefni alþjóðakvennadags-
ins á sunnudag, 8. marz, sendu
Menningar- og friðarsamtök ís-
lenzkra kvenna frá sér svohljóð-
andi ávarp:
Islenzkar konur!
Menningar- og friðarsamtök
íslenzkra kvenna ávarpa ykkur
á alþjóðabaráttudegi kvenna, 8.
marz. Þennan dag ber okkur að
gaumgæfa sérstaklega málefni
lands og þjóðar og þá ábyrgð,
er á okkur hvílir sem þegnum ís-
lenzka lýðveldisins. Sú íhugun
hlýtur að leiða til þeirrar niður-
stöðu, að íslenzka þjóðin sé nú
í meiri hættu stödd en nokkru
sinni áður, í þjóðernislegu,
menningarlegu og efnahagslegu
tilliti.
Á þessu ári eru liðin 50 ár
síðan fyrri heimsstyrj öldin skall
á og 25 ár síðan skelfingar hinn-
ar síðari hófust. Þetta tímabil
hefur markað dýpri spor í þjóð-
arsögu íslendinga en nokkurt
annað jafnlangt. Við heimtum
sjálfstæði ■ okkar úr höndum
Dana og fögnum í ár 20 ára
afmælis lýðveldis á íslandi.
Endurheimt sjálfstæði hefur leitt
af sér byltingu í atvinnuháttum
og gagngerari breytingar á lífs-
kjörum en nokkru sinni fyrr á
jafn skömmum tíma. Nærri
helming þessa tímabils, eða 24
ár, höfum við búið í her-
numdu landi og verið ofurseld
þeim afsiðunaráhrifum, er slíku
sambýli fylgir.
Allt frá stríðslokum hefur virk
andstaða gegn hernáminu verið
með þjóðinni og tekið á sig
ýmsar myndir. Eftir atburðina
30. marz 1949, í sambandi við
inngöngu íslands í Atlantshafs-
bandalagið, magnast þessi and-
staða að mun, og enn meir við
endurkomu erlends herliðs til
Keflavíkurflugvallar 1951. Það
ár var M.F.Í.K. stofnað til þess,
fyrst og fremst, að fylkja íslenzk
um konum til baráttu gegn her-
náminu og þeirri tortímingar-
hættu og gífurlegu siðspillingu,
sem því fylgir. Siðspillingará-
hrif hernámsins eru hvað aug-
ljósust af þeim fj ármálahneyksl-
um, sem uþp hafa komið nú
síðustu vikurnar, ekki hvað sízt
í sambandi við starfsmenn á
Keflavíkurflugvelli, og er það þó
smáræði eitt í samanburði við
símalandi afsiðunarkvörn Kefla
víkurútvarps og sjónvarps, eink-
um og sérílagi á viðkvæmasta
gróðurinn, börn og unglinga.
Með tilkomu kjarnorkuvopna
hefur allur hernaðarrekstur ger-
breytzt. Stórveldin leggja nú
höfuðáherzlu á langdrægar eld-
flaugar, sem geta borið kjarn-
orkuvopn, svo og kafbátaflota,
búinn kj arnorkuvopnum. Þetta
ber okkur Islendingum að hafa
vel í huga, er við íhugum her-
námsmálin, því að hvenær sem
er er hægt að breyta herstöðv-
unum hérlendis í kj arnorkubún-
ar árásarstöðvar, án þess að við
séum um það spurð. Því er að
vísu ennþá neitað af opinberum
aðilum, að krafan um kafbáta-
flotastöð í Hvalfirði hafi komið
fram.
En þær staðreyndir blasa við,
að landgrunnið hefur verið mælt
og kortlagt, og ein öflugasta lór-
anstöð í Evrópu reist á Snæfells-
nesi. Óneitanlega læðist sá grun-
ur að manni, að þessar aðgerð-
ir séu undanfari þess lokastigs,
að Hvalfirði verði á ný breytt í
flotastöð.
Auk hættunnar af hernáminu
steðjar að okkur enn ein hætta,
ef til viil sú alvarlegasta. Árið
1962 var rekinn gífurlegur áróð-
ur fyrir því af mjög áhrifaríkum
aðilum í þjóðfélaginu, að kot-
ríkið ísland gerist aðili að stór-
veldasamsteypunni Efnahags-
bandalagi Evrópu. Sú tilraun
mistókst. Þjóðin reis upp og
neitaði að láta innlima sig. Þessi
áróður hefur dalað um sinn, en
þeim mun ákveðnari og öflugri
áróður verið hafinn fyrir stór-
iðju erlendra auðhringa hér á
landi. Ætti öllum að vera ljós
sú hætta, er lítilli þjóð í stóru og
lítt numdu landi, mikilla en ónot
aðra orkulinda, myndi stafa af
þvílíkri innrás erlends auð-
magns, bæði efnahagslega og
þjóðernislega. Slík stóriðja yrði
í flestu falli ofjarl íslenzkum
þjóðarbúskap, til þess gerð að
mata krók erlendra auðhringa
eingöngu á kostnað þjóðarinnar
og hafa hér einokunaraðstöðu
um atvinnulíf og lífskjör.
Af þessum fáu staðreyndum
er ljóst, hve brýn nauðsyn er á
að allur almenningur haldi vöku
sinni, hugsi og álykti sjálfstætt
og láti ekki villa um fyrir sér.
Þrátt fyrir það að málum okk
ar íslendinga er all-illa komið,
hefur samt margt það gerzt í
heimsmálunum, sem gefur tilefni
til bjartsýni.
Heimsfriðarráðið fagnar á
þessu ári 15 ára starfsferli, en
það og Alþjóðasamband lýðræð
issinnaðra kvenna hafa haft for-
ystu í friðarbaráttu þjóðanna frá
stofnun sinni, og berjast bæði
fyrir almennri og algerri afvopn
un.
M.F.Í.K. fagnar þeim árangri
af friðarbaráttunni, sem felst í
Moskvusamningnum um tak-
markað bann vjð kjarnorku-
vopnatilraunum, og lýsir ánægju
sinni yfir fullgildingu Alþingis
á samningnum. Spenna í al-
þjóðamálum hefur minnkað að
mun og hvarvetna eru uppi kröf
ur um, að alþjóðadeilumál beri
að leysa með samningum en
ekki vopnavaldi.
Á síðastliðnu sumri var
Heimsþing kvenna haldið í
Moskvu á vegum Alþjóðasam-
bands lýðræðissinnaðra kvenna.
Þar ríkti mikill einhugur og bar
áttuvilji. Konur úr öllum heims-
álfum tóku höndum saman um
að vinna að framförum og frið-
armálum, liver í sínum heims-
hluta. Norðurlandafulltrúarnir á
þinginu samþykktu tillögur til
ríkisstjórna landa sinna, um að
lýsa Norðurlönd kjarnorku-
vopnalaust svæði. Störf kven-
anna á Moskvuþinginu stað-
festu, að sameinaðar eru kon-
urnar það afl, sem komið getur
í veg fyrir styrjaldir.
M.F.Í.K. hvetur allar íslenzk-
ar konur til að sameinast í bar-
áttunni gegn herstöðvum í landi
okkar, gegn því að ísland verði
notað sem árásarstöð á nokkra
þjóð; sameinast til baráttu fyr-
ir ævarandi hlutleysi íslands í
hernaðarátökum stórvelda, og
fyrir friðsamlegum samskiptum
íslendinga við allar þjóðir.
Reykjavík, 8. marz 1964.
Menningar- og friðarsamtök
íslenzkra kvenna.
Prentum
BÆKUR
BLÖD
TÍMARIT
Hven konar
SMÁPRENT
LITPRENTUN
PrentsmiSja
Björns Jónssonar K.f.
Sini 1024.
Föstudagur 13. marz 1964.
VerkamaSurinn (5