Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 17.04.1964, Side 1

Verkamaðurinn - 17.04.1964, Side 1
Verkamaðurinn Fjölmennt þing I MSI' Byggjum héraðsskóla. — Reisum Davíð minnisvarða Ársþing Ungmennasambands Eyjafjarðar var haldið 11. og 12. þ. m. í Sólgarði í Saurbæjar hreppi. 55 fulltrúar frá 15 félög- um sátu þingið auk nokkurra gesta, þar á meðal forseti Ung- mennafélags Islands, sr. Eiríkur J. Eiríksson, og framkvæmdastj. íþróttasambands Islands, Her- mann Guðmundsson. Eitt nýstofnað félag gekk í UMSE. Var það Umf. Narfi í Hrísey. í skýrslu stjórnar fyrir sl. ár kom fram, að starfsemin stóð með blóma, þrátt fyrir þröngan NIKITA S. KRUSTJOFF er sjtítug- ur í dog. Sem forsætisróðherra Sov- étríkjonna og forystumoður Komm- únistoflokksins þor í landi, er hann einn voldugasti maður hcims, og eftir orðum hans er hlustað meira en orðum annorra manna, þeirra er nú lifa ó þessarri jtírð. Siðasta óratuginn hefur Krustjoff mótað gang veraldorstígunnar meira en nokkur annar maður, og yfir- gnæfandi fjtíidi fólks um heim oll- an, jafnt utan sósíalistisku ríkjanna sem innan þeirra, er sammóla um, að þessi maður hafi reynzt heimin- um hamingjudrjúgur. Vegna starfa hans og stefnu er nú friðvænlegra í heiminum en oftast óður og millj- ónir manna búa við hamingjusam- ara líf en ella mundi. Það munu því murgir um alla jarðkúluna, sem í dag hugsa hlýtt til Nikita Krustjoff, þakka honum mikil og heillarík störf og óska hon- um langra lifdaga. Verkamaðurinn tekur undir þær óskir allar. fjárhag. Tveir íþróttakennarar störfuðu yfir sumarmánuðina. Sambandið gekkst fyrir mörg- um íþróttamótum á árinu, svo sem í frjálsum íþróttum, knatt- spyrnu, sundi, skák og bridge. Komið var á bindindisfræðslu í öllum barna- og unglingaskólum héraðsins. Unnið var að örnefna söfnun í héraðinu og einnig að skógrækt að Miðhálsstöðum í Öxnadal. Þá átti UMSE hlut að Bændahátíð Eyfirðinga á sl. sumri. Ársrit sambandsins var gefið út. Mikill áhugi ríkti á þinginu fyrir framtíðarstörfum ung- mennasambandsins. Var lögð á- herzla á að auka íþróttastarfið og bindindisfræðsluna í hérað- inu, einnig fönduriðn og starfs- íþróttir. Ennfremur að bæta skemmtanalífið á sambandssvæð inu og koma á bókmenntakynn- ingum. Minnisvarði Davíðs Þingið sendi þá áskorun til allra félagasamtaka í héraðinu, að þau tækju höndum saman um að beita sér fyrir því, „að Davíð Stefánssyni skáldi frá Fagra- skógi verði reistur veglegur minnisvarði á æskustöðvum hans að Fagraskógi.“ Héraðsskóli Skorað var á fræðsluráð og sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu, svo og þingmenn kjördæmisins, að vinna sem ötulast að framgangi þess, að héraðsskóli rísi sem fyrst upp í sýslunni. Þá skoraði sambandsþingið á Alþingi að lækka ekki með laga- setningu aldurstakmarkið til á- fengiskaupa. Stjórnarkjör Þóroddur Jóhannsson, sem verið hefur formaður UMSE sl. 7 ár, baðst undan endurkosn- ingu, þar sem hann væri ráðinn framkvæmdastjóri sambandsins. Stjórnina skipa nú: Sveinn Jóns son, formaður, Eggert Jónsson, varaformaður, Haukur Stein- dórsson, ritari, Birgir Marinós- son, gjaldkeri, og sr. Bolli Gúst- afsson, meðstjórnandi. í UMSE eru nú 890 félagar. laidrrajmogin komið i Tjömts Næstu framkvæmdir í Fnjóskadal, Skíðadal og Öxnadal Blaðið hafði fregnir af því, að í byrjun þessarrar viku hefðu margir bæir á Tjömesi verið tengdir rafveitukerfi Laxár. — Náði blaðið þá tali af Ingólfi Árnasyni, rafveitustj óra, og fékk hjá honum þær upplýsing- ar, að raflína hefði verið lögð að 23 bæjum á Tjörnesinu og hefði um helmingur þeirra nú verið tengdur og straumnum hleypt á, en aðrir voru ekki til- búnir að taka við rafmagninu, þar sem ekki er lokið við raf- lagnir innanhúss, en þeir bæir verða tengdir jafnóðum og lok- ið, er innanhússlögnum. Bæirnir á Tjörnesi, sem nú fá rafmagn eru: Héðinshöfði I og II, Eyvík, Hringver, Syðri- Tunga, Steinadalur, Ytri-Tunga I og II, Tunguvellir, Hallbjarn- arstaðir I og II, Breiðavík, Mán- á, Árholt, ísólfsstaðir, Kvíslar- hóll, Hóll, Mýrarkot, Ketilsstað- ir, Sandhólar, Syðri-Sandhólar, Voladalur og Félagsheimilið Sól vangur. Þá spurðum við Ingólf, hvað næst væri framundan með línu- lagnir 1 hans umdæmi. Kvað hann ráðgert, að byrja á línulagningum út Fnjóskadal beggja megin ár norðan Húsa- víkurbrautar. Þá er gert ráð fyr- ir, að leggja í sumar línu að bæj um í Skíðadal, og unnið verður að línulagningu í Öxnadal. Óvíst er þó, hve langt áleiðis þessum framkvæmdum miðar á árinu. KVENFÉLAGIÐ FRAMTÍÐIN hefur merkjasölu á morgun. - Agóðinn rennur til næsta byggingarófanga Elliheimilisins, en aðkallandi er, að þar verði haldið ófram framkvæmd- um. Væntir félagið góðs stuðnings. Hítel KEA opnar d ný Þann 15. febrúar sl. tók Kaup- féiag Eyfirðinga aftur við rekstri Hótel KEA aí Brynjóifi Bryn- j óif ssyni, veitingamnni, sem hafði haft það á ieigu í tæp 2 ár. Undaníarið hafa farið iram gagngerðar endurbætur á húsa- kynnum hótelsins, svo sem sett nýtt dansgólf í aðalveitingasal, gangar og herbergi máluð. — Doíri h.í. sá um aila trésmíði, en Jón A. Jónsson málarameist ari um málningu. — Á sl. hausti var lokið við að skipta um alla innanstokksmuni á öilum gisti- herbergjum hótelsins. Eru þau nú að öllu leyti búin nýjum og smekklegum húsgögnum frá Valbjörk h.f. og um heimingur þeirra með nýjum gólfteppum frá Vefaranum h.f. í Reykjavík. Þá eru að heíjast nokkrar breytingar á fyrstu hæð hótels- ins, þar sem nú er Giidaskálinn. Akveðið hefur verið, að Kaup féiag Eyiirðinga annist sjáiit um rekstur hótelsins í framtíð- inni og 1. apríl sl. var Ragnar Ragnarsson frá Reykjavík ráð- inn þar hótelstjóri. Ragnar hef- ur m. a. starfað sem fulltrúi Þor- vaidar Guðmundssonar hótelstj. í Hótel Sögu. Hótel KEA er nú þegar reiðu- búið að taka á móti gestum til lengri eða skemmri dvalar og mun nú sem áður fyrr, er KEA annaðist rekstur þess, kappkosta að veita þeim sem "bezta þjón- ustu. — (Fréttatilk. frá KEA). lionshlúbburinn Hugioo gejor Shíðihóteliou píooó Hinn 15. marz sl. hélt Lions- klúbburinn Huginn fund í Skíða hótelinu og var bæjarstjóra, Magnúsi E. Guðjónssyni, og frú boðið á fundinn, ennfremur Har- aldi Sigurgeirssyni, gjaldkera, og Þórði Gunnarssyni, umdæmis stjóra Lions og frú. Formaður Hugins, Halldór Helgason, flutti stutt ávarp og tilkynnti, að Lionsklúbburinn Huginn hefði ákveðið að færa Skíðahótelinu að gjöf píanó, Öst lind & Almquist tegund, að verð mæti um kr. 30.000,00 og hefði því verið komið fyrir í setustofu hótelsins, og bar hann fram þá ósk, að það mætti auka ánægju skólaæskunnar, íþróttafólks og annarra, sem í skíðahótelið kæmu. Bæj arstj óri þakkaði fyrir hönd bæjaryfirvalda þessa rausn arlegu gjöf og fór nokkrum orð- um um störf Lionshreyfingarinn- ar í þágu menningar- og líknar- mála. Þá var lesin úrdráttur úr fundargerðum um vinnu Hugins félaga við innréttingu setustofu skíðahótelsins, og nam verðmæti vinnu þeirrar kr. 76.000,00. Fjár til þessa píanókaupa Öfl- uðu Huginsfélagar með sölu jóla húsa og kúluspila, sem Lionsfé- lagar smíðuðu að mestu sjálfir. Loks vár setið að kaffidrykkju, söng og píanóleik fram eftir kvöldi. Umboðsmaður Östlind & Almquist píanóverksmiðjanna hér á Akureyri er Haraldur Sig- urgeirsson, gjaldkeri, og lék hann nokkur lög á hið nýja hljóð færi. Stjórn Hugins skipa nú: Hall- dór Helgason, formaður, Guðm. Tómasson, gjaldk., og Árni Ingi mundarson, ritari. HEYRT Á GÖTUNNI AÐ útvarpinu hafi með fréttum og fréttaaukum i þessarri viku tekizt að sannfæra allan lands lýð um, hvílikur fyrirmyndar- bær Akureyri er og á oð vera. AÐ eins og krotar ttíldu á sínum tíma mikla síldveiði þjóðinni hættulega, þonnig óttist þeir nú ekkert meira en vertiðar- aflann syðra. OG séu því staðróðnir í að nota hann sem afsökun fyrir næstu gcngisfellingu (í sumar).

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.