Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 17.04.1964, Side 4

Verkamaðurinn - 17.04.1964, Side 4
Verkamaðurinn Nokkrar dlyktamr frd BWirsnM S.-Mng. Að tilhlutan Búnaðarsam- bands Suður-Þingeyinga var boðað til abnenns umræðufund- ar að Breiðumýri kl. 13 sunnu- daginn 5. apríl 1964. Fundinn sóttu um 200 bændur úr flestum sveitum á sambandssvæðinu. •— Umræðuefni fundarins var: •— Framtíðarhorfur íslenzks land- búnaðar, og frummælendur þeir Stefán Aðalsteinsson, búfjár- fræðingur, og Helgi Haraldsson, bóndi, Hrafnkelsstöðum, Ámes- sýslu. Að framsöguerindum loknum urðu miklar og fjörugar umræð- ur, sem stóðu til kvölds. í fund- arlok voru eftirfarandi ályktan- ir bornar upp og samþykktar samhljóða: I í framhaldi af umræðum um framtíðarhlutverk íslenzks land- búnaðar ályktar almennur bændafundur, haldinn að Breiðu mýri 5. apríl 1964, eftirfarandi: 1. Fundurinn vekur athygli á þeirri sívaxandi hættu, er steðj- ar að undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar og fjárhagslegu og efnahagslegu sjálfstæði landsins, ef ekki verða gerðar róttækar ráðstafanir til breytinga í efna- hagsmálum. 2. Fundurinn lítur svo á, að óhj ákvæmilegt sé, að dregið verði úr óarðbærri milliliðastarf semi, sem vaxið hefur þjóðinni yfir höfuð á undanförnum ár- um á kostnað sj álfra framleiðslu atvinnuveganna. 3. Það er skoðun fundarins, að nauðsynlegt sé að miða launa kjör og tekjuskiptingu í þjóðfé- laginu við framleiðslu og upp- byggingaraðstöðu höfuðatvinnu veganna á hverjum tíma. Því heinir fundurinn eftirfarandi óskum til ríkisstj órnar og Al- þingis: a) að nú þegar verði gerðar ráðstafanir til þess að endur skipuleggja frá grunni alla útlána- og bankastarfsemi í landinu með það að höfuð- markmiði, að beina fjár- magni þj óðfélagsins frá ó- beizluðu fjárbruðli til arð- bærra framleiðslugreina. VÍSA VIKUNNAR Stjórnin fagnar gýligjöfum, glötuð trú á landið er. Heyra mó í grónum gröfum gömlu skóldin bylta sér. y- -------------------------; b) Að láta fara fram gaumgæfi- lega rannsókn á því, hvaða atvinnustarfsemi þjóðarinn- ar skapi mesta framleiðslu og nettógjaldeyri í þjóðarbú ið. _____ _____ c) Athugun fari fram á því, á hvern hátt verði dregið úr þeim óeðlilega vexti Reykja- víkur, sem átt hefur sér stað á undanförnum árum, með því að flytja hluta ríkisfyrir- tækja og ríkisstofnana frá höfuðborginni sem víðast um land til eflingar lands- byggðinni. d) Fundurinn vill vara mjög al- varlega við því á þesu stigi málsins, að í stóriðju verði ráðist — svo sem alúminíum vinnslu — og skorar á stj órn arvöld landsins að láta fara fram rækilega rannsókn á því, áður en slík ákvörðun verður tekin, hvort ekki séu fólgnir stórum meiri mögu- leikar í eflingu íslenzkra at- vinnugreina, sérstaklega sauðfjárræktar og iðnaðar í sambandi við hana. II Fundurinn skírskotar til sam- þykktar almenns bændafundar BSSÞ 24. 1. sl. um, að Stéttar- samband bænda geri þær kröfur Geymslupláss eða her- bergi óskast strax. Uppl. í síma 1796 eða 1918. MÍR MÍR Ahureyrardeild HIR heldur félagsfund mánudaginn 20. apríl kl. 8,30 að Rotarysal Hótel KEA Dagskrá: Hr. Morozov, sendi- ráðsritari við Sendiráð Sovétríkjanna í Reykja vík, flytur erindi um: Skólamál og fræðslu- kerfi í Sovétríkjunum. Félögum heimilt að taka með sér gesti. Stjórnin. til ríkisstjórnarinnar um fullar bætur fyrir þá kaupskerðingu, er bændastéttinni var skömmtuð í verðlagsgrundvellinum sl. haust, og nemur um 30% á heildarárskaup bænda miðað við tekjur viðmiðunarstéttanna ár- ið 1962 samkvæmt skýrslu Hag- stofunnar. Skorar fundurinn á Stéttarsam bandsstjórnina að fylgja þessari kröfu fast fram nú þegar með málsókn eða sölustöðvun, ef með þarf. III Almennur fundur bænda, hald inn að Breiðumýri 5. apríl 1964, skorar á Stéttarsamband bænda og Búnaðarfélag íslands að gefnu tilefni, að hlutast til um, að íslenzkar landbúnaðarvörur verði meira auglýstar og hlut- verk landbúnaðarins kynnt neyt endum í miklu ríkara mæli en gert hefur verið. ERINDI um skólamál og fræðslukerfi Sovétríkjanna verður flutt í Rot arysal Hótel KEA á mánudags- kvöldið á vegum MIR. -— Fyrir- lesari verður Morozov, sendi- ráðsritari. — Áhugamönnum um skólamál er heimilt að sækja þennán fund MÍR, enda þótt þeir séu ekki félagsmenn. FÉLAGSMÁLANÁM- SKEIÐ verkalýðsfélaganna hefur stað ið þessa viku í Alþýðuhúsinu. Aðalkennari er, sem kunnugt er, Jón Baldvin Hannibalsson, en auk þess eru flutt erindi um ein- staka þætti félagsmála, sem sér- staklega snerta verkalýðshreyf- inguna. a tt '* » # & H $ '*» '1 ** •* '»- ' • • 'A e* Hlé verður á námskeiðinu yfir helgina vegna ráðstefnu AI- þýðusambands Norðurlands, en kl. 8.30 á þriðjudagskvöld flyt- ur Rósberg G. Snædal erindi um sameignarstefnu og einkarekst- ur. — Kl. 4 á fimmtudag flytur Jón Hannibalsson erindi, er hann nefnir: Stefna og starfs- hættir verkalýðsfélaganna á Norðurlöndum. Síðustu fund- irnir verða á föstudag kl. 8.30 og laugardag kl. 2. Heita vatnið og sundlaugin Jón Ingimarsson bæjarfulltrúi hefur nýlega skrifað bæjarráði Akureyrar og lagt til, að athug- að verði um endurnýjun heita- vatnsleiðslunnar að sundlaug- inni. Fer tillaga Jóns ásamt grein argerð hér á eftir: „Eg leyfi mér að bera þó tillögu fram við bæjarróð Akureyrar, að bærinn lóti athugun fara fram á því hið fyrsta, hvort ekki þætti á- stæða til að endurnýja heitavatns- leiðsluna úr Glerórgili að sundstæði bæjorins." Greinargerð : Fyrir rúmum 30 árum var heitavatnsleiðslan úr Glerárgili að sundstæði bæjarins tekin í notkun. Var hitastig vatnsins þá um 48 til 50 st. heitt við upp- tök, og hitatap á leiðinni að sund stæði ca 10 stig, þannig að heita vatnið, sem til sundlaugarinnar kom, var að magni til 3 sek/1 af 38 st. heitu vatni, og var það nægilegt til afnota fyrir útisund- laugina. Á þessum 30 árum, sem liðin eru, hefur leiðslan gengið úr sér, og ekki viðhaldið sem skyldi, enda er hitatapið nú orðið mjög mikið, eða fallið úr 38 st. í 22 við inntak sundlaugarinnar, jafn framt hefur vatnsmagnið minnk- að úr 3 sek/1 í 1 til lþfj- Ef leiðslan yrði endurnýjuð með þeim fullkomnustu einangr- unarefnum, sem nú þekkjast, mætti ætla, að hitatap þyrfti ekki að nema meiru en 3 hitastigum. Ekkert líggur fyrir um það, að heitavatnsrennsli við upptök hafi minnkað eða hitastig þess lækkað, heldur mætti orsakir að hitatapinu rekja til þess að leiðslan er lek orðin og einangr- un er orðið stórlega ábótavant. Væru hins vegar möguleikar á því að auka vatnsrennslið og varðveita hita þess í vel einangr- aðri leiðslu, myndu möguleikar skapast fyrir því, að Sundlaug bæjarins fengi nægilegt vatns- magn, og sparaðist þá við það fyrir bæinn hinn mikli upphit- unarkostnaður með rafmagni, sem nú er í sundlauginni. Jafnvel þótt borað yrði eftir heitu vatni í sumar út á Lauga- landi, og þótt svo vel tækist til, að þar fyndist nægilegt vatns- magn til hugsanlegrar hitaveitu fyrir Akureyri, mun vafalítið líða nokkuð langur tími, þar til sú hitaveita yrði tekin í notkun fyrir bæinn. Að því athuguðu og með það í huga, vil ég leggja áherzlu á að reynt verði að hagnýta sem bezt heita vatnið í Glerárgili fyrir sundstæði bæjarins. f BÚÐ óskast til leigu. — Upplýsingar í símurn 1516 eða 2654. ÞORSTEINN JÓNATANSSON Barnafatnaður NÝKOMINN í MIKLU ÚRVALI. Verzluiiin HLÍN Brekkugötu 5 — Sími 2820 0ST1IHD t ALHQUIST flyglar, píanó og orgel-harmonium eru viðurkennd fyrir gæði. —- Myndir og verðlistar fyrirliggjandi. — Allar upplýsingar gefur undirritaður. Umboð ó Norður- og Austurlandi fyrir Ostlind & Almquist, Arvika, Svíþjóð: HARALDUR SIGURGEIRSSON, Spítalaveg 15, sími 1915. [ PERUTZ ] litfilmur Gullsmiðir Sigtryggur og Pétur Brekkugötu 5 — Sími 1524

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.