Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 01.05.1964, Page 1

Verkamaðurinn - 01.05.1964, Page 1
Verkamaðurinn Ávarp 1. maí-nefndar Undanfarna mánuði hefur æðis- gengnari dýrtíðar- og verðbólguskriða flættyfir landið en nokkru sinni fyrr. Með þrotlausri baráttu hefur verka- lýðssamtökunum tekizt að koma fram nokkrum leiðréttingum á kjör- um verkafólksins en hvort tveggja er, að þær hafa ávallt verið á eftir verð- hækkununum og þeim hefur alltaf verið svarað með nýjum ráðstöfunum til verðhækkana, sýnilega gerðum í þeim tilgangi að hindra allar raun- verulegar kjarabætur. Þessi þróun, óðaverðbólga og kaup- deilur tvisvar til þrisvar á ári sýnir, að það er nú ein mest þjóðarnauðsyn, að skapa vinnufrið, en hann fæst með því einu móti, að afnumið verði bann við verðlagsbótum á laun og samið um fullkomna verðtryggingu laun- anna, ásamt óhjákvæmilegri hækkun þeirra. — Þetta er í dag engu síður hagsmunamál vinnuveitenda en verkafólks. Það er krafa alþjóðar, að þegar í stað verði hætt að nota ríkisvaldið til stöðugrar styrjaldar við verkafólkið, tryggður verði vinnufriður næstu miss- eri, raunverulegur vinnudagur styttur og reistar skorður við þeirri óhugnan- legu þróun, að börn og unglingar sæki vinnumarkað til jafns við fullorðna. Næstu daga munu hefjast samn- ingaviðræður við samtök vinnuveit- enda. Verkalýðssamtökin eru nú sem ævinlega reiðubúin til að semja til verulegs tíma og tryggja vinnufrið, ef á móti er sýndur skilningur þess, hvað það kostar að lifa eðlilegu lífi, vilji til þess að finna raunhæfa lausn vand- ansogviðurkenning þeirrar staðreynd- ar, að verkafólkið er ekki vinnuvélar, heldur lifandi einstaklingar, sem eiga fyllsta rétt til að njóta gæða okkar gjöfula lands. Cera M heiMirMn um virhjanir vatnsjalla Væri ekki rétt að fyrst yrði Laxá virkjuð? Hér í blaðinu hefur áður ver- ið greint frá því, að á fundi bæj arstjórnar Akureyrar hinn 10. marz s.l. lagði Ingólfur Árnason fram tillögu varðandi stórvirkj- anir vatnsfalla og dreifingu ork- unnar um landið. Yar þeirri til- lögu vísað til athugunar hjá Bærínn byggir Loks hefur bæjarstjórn Akur- eyrar ákveðið að hefjast handa um byggingu íbúðarhúsnæðis, eftir að bæjarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins hafa árum saman barizt fyrir því, að hafizt yrði handa á þeim vettvangi. Ákveðið er, að í sumar verði reist 8 íbúða hús við Skarðs- hlíð. Teikningar eru frá Hús- næðismálastofnun ríkisins, en byggingameistarar bæjarins ann ast umsjón verksins. Vonandi er, að framkvæmd- um öllum verði hraðað, því að ærin er þörfin fyrir aukið hús- næði, og löngu orðið bænum til skammar að hafa ekkert aðhafzt til úrbóta. sameiginlegum fundi bæjarráðs og rafveitustjórnar. Sá fundur var haldinn 9. apr- íl og þar einróma lagt til, að bæj- arstjórn samþykkti tillöguna að viðbættri einni málsgrein. Til- laga Ingólfs ásamt viðbótinni kom síðan fyrir bæjarstjórn 21. apríl og var þar samþykkt með 9 samhljóða íjtkvæðum. Ber að fagna því, að bæjar- stjórn skuli nú hafa óskað ákveð ið eftir því, að athugað verði um fullnaðarvirkjun Laxár og bent á, að óskynsamlegt er að ganga fram hjá þeirri á, þegar gerður er samanburður á mögu- leikum til stórvirkjunar. En það er margra skoðun, að virkjun Laxár væri mun hagstæðara fyr irtæki en virkjun við Þjórsá eða Jökulsá, og fyrir okkur, sem bú- um á orkuveitusvæði Laxár, væri það áreiðanlega hagstæð- ast, að sem fyrst yrði hafizt handa um áframhald virkjana þar, en á meðan ekki er tekin ákvörðun um stórvirkjun, er þess lítil von, að nokkuð verði aðhafzt við Laxá. Samþykkt bæjarstjórnar er svohljóðandi: „Bæjarstjórn Akureyrar vill hér með vekja athygli hæstvirtr- ar ríkisstjórnar og Alþingis á eftirf arandi: Bæjarstjórnin telur aðkall- andi, að þegar sé gerð heildar- áætlun um vatnsaflsvirkj anir landsins og dreifingu orkunnar til þeirra staða, sem þörf er á. Jafnframt bendir bæjarstjórnin á, að kostnaðaráætlanir, sem gerðar hafa verið í sambandi við fyrirhugaðar stórvirkj anir, eru ekki að öllu leyti sambæri- legar, hvað fullnaðarvirkjun Lax ár viðkemur, þar sem kostnað- aráætlanir vfir stórvirkjanir í jökulsánum (við Búrfell og Dettifoss) annars vegar og í Laxá hins vegar, hafa ekki ver- ið gerðar af sama aðila. Núverandi Laxárvirkjun er fullnýtt, og verður því öll auk- in aflþörf á orkuveitusvæði Lax- ár, að byggjast á diesil-afli, þar til úr verður bætt.“ „Bendir bæjarstjórn því á, að brýn nauðsyn er á, að fullnaðar- samanburður verði gerður á virkjunarkostnaði Laxár í Þing- eyjarsýslu og J ökulsárvirkj an- anna beggja áður en til endan- legra ákvarðana kemur.“ Hátíðahöld verkalýðsfélaganna 1. maí fara fram hér á Akureyri með líku sniði og undanfarin ár. Hefjast þau með leik Lúðrasveitar Akureyrar við Verkalýðshúsið kl. 13.15, en kl. 13.30 hefst útifundur með ávarpi formanns Fulltrúa- ráðs verkalýðsfélaganna, Arnfinns Arnfinnssonar, en síðan flytur Björn Jónsson, alþingismaður, formaður Verkalýðsfé- lagsins Einingar, ræðu. Að lokinni ræðu Björns verður farin kröfuganga að mestu sömu leið og undanfarin ár, að því undanskildu, að stað- næmst verður við Alþýðuhúsið og verður þar samkoma. — Flutt verða stutt ávörp, Hjálmar Gíslason leikari skemmtir og sýnd verður kvikmynd frá hátíðahöldum verkalýðsfélag- anna á Akureyri 1. maí 1947, tekin af Kjartani O. Bjarna- syni. Samkomunni stjórnar Arnfinnur Arnfinnsson. Kl. 15.30 (3.30 e. h.) hefst svo barnasamkoma í Samkomu- húsi bæjarins, þar skemmtir Hjálmar Gíslason, sýnd verða töfrabrögð, kvikmyndir o. fl. Að venju verður svo dansleikur í Alþýðuhúsinu um kvöld- ið og leika Komet og Hjalti fyrir dansinum en auk þess skemmtir Hjálmar Gíslason. Merki dagsins verða seld á götunum allan daginn. 1. maí-nefnd verkalýðsfélaganna hefur beðið blaðið að koma þeirri áskorun á framfæri við alla launþega bæjarins, að þeir taki þátt í hátíðahöldunum 1. maí og að allir beri merki 1. maí dagsins. Samningar verðo að tahost íyrir 20. moí Á fundi í Verkalýðsfélaginu og að kosnir verði í þá nefnd Einingu, sem haldinn var sunnu- tveir fulltrúar frá félaginu og daginn 26. apríl, var eftirfarandi tveir til vara. tillaga samþykkt: „Fundur Verkalýðsfélagsins Einingar, haldinn 26. apríl 1964, lýsir sig samþykkan þeim meg- inkröfum, sem fram komu í á- lyktun ráðstefnu A.N. og A.S.A. frá 19. þ. m., en felur jafnframt stjórn félagsins að undirbúa aðrar sérkröfur félagsins í sam- ráði við þau félög önnur, sem aðild eiga að væntanlegum samn ingum við atvinnurekendur. Þá samþykkir fundurinn, að Verkalýðsfélagið Eining gerist aðili að samninganefnd félag- anna á Norður- og Austurlandi Björn Jónsson, for- maður Verkalýðsfélags- ins Einingar flytur aðal- ræðuna ó útifundi verka- lýðsfélaganna í dag. Fundurinn felur stjórn félags- ins og trúnaðarmannaráði að veita samninganefnd verkalýðs- félaganna á Norður- og Austur- landi heimild til þess að lýsa yfir vinnustöðvun fyrir félagsins hönd frá og með 20. maí 1964, hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma.“ Fundurinn kaus einnig 3 full- trúa til þess að sitja stofnþing Verkamannasambands fyrir fé- lagsins hönd, en það þing hefst 9. þ. m. Fulltrúar félagsins verða Björn Jónsson, Þórir Daníels- son og Freyja Eiríksdóttir. HEYRT Á GÖTUNNI AÐ útlendu hringornir, sem tala um að reisa aluminiumverk- smiðju hér ó landi vilji borga 7—8 aura fyrir kílówatt- stundina, en framleiðslu- kostnaður sé óætlaður 13— 14 aurar. AÐ kratar hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að verkalýðs- barótta sé nokkuð sem heyr- ii fortíðinni til og ekki þurfi framar um að ræða nema í hópi sagnaritara.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.