Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 01.05.1964, Page 3

Verkamaðurinn - 01.05.1964, Page 3
Qnlt í tn Minni létta myndi þrá, meina ég það af sanni, ef ég gæti gull í tá gefið hverjum manni. Svo mælir höfundur þáttarins í dag: Guðni V. Þorsteinsson. — Guðni er liðlega áttræður, en hress og glaður vísnavinur, þótt hann hafi lítt flíkað stökum sín- um fyrr. Guðni er Þingeyingur í húð og hár, bjó lengst af í Fnjóskadal og nágrenni. Hann var 11 ár á Hálsi, önnur 11 út í Dalsminninu. Akureyringur er hann síðan 1952. Svo koma sýn- ishorn af stökum Guðna: — Blaðið þakkar honum veldvild- ina. Morgunn: Sunnangola sólu frá sveiflar léttum skýjum. Við skulum fara fætur á fagna degi nýjum. Eftir þurrkdag: Hug minn fangar fögur hlíð, finnst mér ganga í haginn, berst mér angan unaðsblíð, eftir langan daginn. Mælt eftir Konráð Vilhjálmsson. Lífs á himni lækkar sól, lifir englaskarinn. Nú er hljótt um „Norðurpól“, nú er Konráð farinn. Vorvísa: Lífsins rennur lukkuhjól, ljúft er vorsins-gengi, þegar blessuð sumarsól signir tún og engi. Á vesturleið yfir Vaðlaheiði: Yndisleg er yfirsýn, er ég lýt til baka, þó eru fögru fjöllin mín falin undir klaka. Heilræði: Leið er ekki auðfundin yfir lífsins klungur: Þú skalt móta manndóm þinn meðan þú ert ungur. Að hugsa sér: Lífið heldur áfram enn: Ósköp væri gaman ef að Guð og góðir menn gætu unnið saman. Um hagyrðing: Á fróðleik ýmsum fann hann skil, fyndinn bæðgi og glaður, aldrei hefur orðið til orðheppnari maður. Föstudagur 1. mai 1964 Sendum öllu verkafólki beztu kveðjur 1. maí Þökkum viðskiptavinum okkar liðinn vetur Gott ©§: s:leðileg:É §nmar Alþýöuhúsið Ahorcyri Iðjufélagar, Akureyri Mætið á útifundinum og í kröfugöngu verkalýðsfélaganna 1. maí. — Undirstrikum með því mótmæli félagsins gegn vaxandi dýrtíð og kaupráni. Stjórn Iðju. HUSMÆÐUR! irmr eru byrjaðir. Veitið athygli auglýsingum um þó í útibúunum. NÝLENDUVÖRUDEILD Fjölbreytt úrval af vor- og sumarhdpum og VERZLUN B. LAXDAL Verkafólk ogr aOi'ir lannþegar Aknrejri Takið öll þátt í hátíðahöldum verkalýðsfélaganna 1. maí. Fjölmennið í kröfugönguna. — Kaupið merki dagsins. 1. maí-nefndin. KONUR Hjá okkur fáið þið hentuga GÖNGUSKÓ (með breiðum hæl) Verð mjög hagstætt. Leðurvörur h.f. Höfum fengið nýja sendingu af ÁTSIÍKKULAÐE fyrir sykursjiíklinga BITTERSÚKKULAÐE og MJÓLKURSÚKKULAÐE Kr. 29.00 stykkið NÝLENDUVÖRUDEILD Verkamaðurinn — (3

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.