Verkamaðurinn - 01.05.1964, Síða 7
r-----------------—
SKRJÁF^
í SKRÆÐUM {
Góð og kristin kona það!
„Eigi skal gráta Björn bónda,
heldur safna liði.“ — Þessi orð,
sem höfð eru eftir Olöfu ríku
Loftsdóttur á Skarði hafa verið
básúnuð í gegnum nið aldanna
og oft til þeirra vitnað við hátíð-
leg tækifæri af leikum og lærð-
um. Það liggur við að Ólöf þessi
hafi orðið þjóðhetja í augum
alþýðu manna, aðeins fyrir
þessa kaldranalegu setningu.
Sagan sýnir þó, að Ólöf Lofts-
dóttir hefur verið hið mesta og
versta kvenskass, sem Island
hefur nokkru sinni alið, og far-
ið í gröf sína og fram fyrir guð
sinn með fleiri morð á samvizk-
unni en nokkur annar íslending-
ur fyrr og síðar.
Maður hennar, Björn ríki
Þorleifsson á Skarði, varð hirð-
stjóri yfir íslandi árið 1457.
Tíu árum seinna var hann veg-
inn í bardaga við enska á Rifi,
en enskir voru þá ofsóttir og
réttdræpir að konungsboði,
hvar sem þeir leituðu hafna á
íslandi, og greina sögur frá
mörgum ljótum atburðum í því
sambandi.
En Ólöf grét ekki Björn bónda
sinn, heldur hefndi harma sinna
(ef harma skyldi kalla) á alsak-
lausum mönnum, með þeirri
grimmd og djöfulmóði, sem
dæmalaus er. Hún kom því til
leiðar við Danakonung — kon-
ung okkar —, að Danir sögðu
Englendingum stríð á hendur.
Það stríð stóð í heil fimm ár og
kostaði báða aðila ægilegar
blóðfórnir, sem nærri má geta.
En þetta var ekki allt. Fyrir
makt sína og jarðaauð lét Ólöf
undirsáta sína við Breiðafjörð
og á Vestfjörðum fanga og
drepa margar skipshafnir ensk-
ar, sem til náðist eða lands
þurftu að leita. M. a. lét hún
einu sinni binda 12 enska fiski-
menn á einn streng og háls-
höggva þá alla að síðasta manni
ásjáandi. Þá er sagt, að hun
hefði um tíma ekki færri en 50
Englendinga í haldi heima á
Skarði í nauðungarvinnu, en
léti svo drepa þá smátt og smátt
eftir geðþótta sínum.
Enn er til saga, sem lýsir
„drenglyndi“ hennar og „mann-
kærleika“ einkar vel, — enda
var hún kona vel kristin! Þá var
hún, sem oftar, að sigla skipi
sínu til Danmerkur, er skipið
lenti í hrakningum og hafvillum,
þannig að algjör vistarþrot urðu
um borð. Þá tók hún það fanga-
ráð, að láta lóga einhverjum af
hásetunum og ætlaði kjötið til
eldis hinum og sjálfri sér. En
AÐALFUNÐUR
KAUPFÉLAGS EYFIRÐINGA verður lialdinn í
Samkomuhúsi bæjarins, Akureyri, mánudaginn 1.
júní og þriðjudaginn 2. júní 1964.
Fundurinn hefst kl. 10 árdegis mánudaginn 1. júní.
DAGSKRÁ:
1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfs-
manna fundarins.
2. Skýrsla stjórnarinnar.
3. Skýrsla kaupfélagsstjóra, - Reikningar
félagsins. - Umsögn endurskoðenda.
4. Ráðstöfun ársarðsins og innstæða inn-
lendra afurðareikninga,
5. Erindi deilda.
6. Framtíðarstarfsemi.
7. Önnur mál.
8. Kosningar.
Akureyri, 24. apríl 1964.
STJÓRNIN.
Kringsjá
vikunnar
Messoð í Akureyrarkirkju kl. 2 e.h.
n. k. sunudag. Hinn almenni
bænadagur. Sálmar nr.374, 376,
378 og 1. — P. S.
Messað verSur í FjórSungssjúkra-
húsinu á Akureyri n. k. sunnu-
dag kl. 5 e. h. — B. S.
Messað verSur í LögmannshlíSar-
kirkju kl. 2 e. h. n. k. sunnudag.
(Hinn almenni bænadagur). —
Sálmar nr. 374, 376,378 og 1.
BílferS verSur úr Glerárhverfi kl.
1.30. — B. S.
Aðalfundur Fegrunarfélags Akur-
eyrar verSur haldinn aS Hótel
KEA (Rotarysal) mánudaginn 4.
maí kl. 8.30 e. h. — Venjuleg
aSalfundarstörf. — Stjórnin.
Þakkir. — KvenfélagiS Hlíf flytur
bæjarbúum innilegar þakkir fyrir
ágætan stuSning viS barnaheim-
iliS Pálmholt á sumardaginn
fyrsta. Sérstakar þakkir flytur
þaS þó öllum þeim, sem lögSu
fram vinnu eSa gjafir í þessu
markmiSi. — MeS ósk um gott
og gleSilegt sumar. — Stjórnin.
ÍBA. - SíSari hluti ársþings íþrótta-
bandalags Akureyrar fer fram f
Iþróttahúsinu á Akureyri n. k.
mánudag kl. 8.30 e.h. —
Stjórn ÍBA.
Kvennasamband Akureyrar heldur
aSalfund aS Hótel KEA (Rotary-
sal) miSvikudaginn 6. maí kl.
20.30. — Venjuleg aSalfundar-
störf. — Stjórnin.
Leiðrétting. Þar sem sagt var í blaS-
þegar hún og nokkrir aðrir, fyr-
ir áeggjan hennar, höfðu neitt
réttarins, lét hún kasta þeim hin-
um sömu fyrir borð, með þeim
ummælum, að ekki dygði að
hver myrti annan sér til matar.
Komst svo við fáa menn til
Köpenhafn. Vert er að minnast
þess, að þegar Ólöf var uppi,
hafði kristinn siður fengið að
þróast á íslandi í meira en fjóra
og hálfa öld, og fyrirgefningar-
og bræðralagshugsj ón meistar-
ans frá Nasaret verið kennd hér
jafnlengi. Frúin á Skarði virð-
ist hafa farið varhluta af fagn-
aðarboðskapnum, a. m. k. verð-
ur varla sagt að hún hafi fyrir-
gefið óvinum sínum „sjötíu
sinnum sjö sinnum.“
Heimildir: Annálar..
í tilefni af baráttu- og hátíðisdegi verkalýðs-
ins, 1. maí, sendir Sjómannafélag Akureyrar
félagsmönnum sínum beztu kveðjur og væntir
þess, að allir þeir sjómenn, sem í landi verða,
mæti á útifundinum og taki þátt í kröfugöng-
unni.
SJÓMANNAFÉLAG AKUREYRAR.
i—— --——--------——————-------—----
Hraðskákkeppni
á vegum Skákfélags Akureyrar verður n.k. laugardag (2.
maí) kl. 8 e. h. í Landsbankasalnum.
Meðal keppenda verða Helgi Ólafsson, skákmeistari ís-
lands, og Freysteinn Þorbergsson.
Stjórnin.
inu 10. þ. m. frá verði á píanói
því, sem Lionsklúbburinn Hug-
inn gaf Skíðahótelinu, var skakkt
farið með tölur. Verðmæti var
talið um kr. 30.000.00, en er
rétt um 36.000.00.
Maí-boðhlaupinu er frestað til
sunnudagsins 3. maí kl. 11 f.h.
Í.M.A.
Frá Kvenfélaginu Hlíf. — Dregið
hefur verið í innanfélagshapp-
drættinu. — Þessi númer hlutu
vinning: 693 Ijósakróna, 1012
sófaborð, 600 málverk, 147 hita-
kanna, 1018 brúða, 1068 borð-
refill, 150 náttkjóll, 892 bað-
handklæði, 1024 skurðarsett,
373 málning. — Vinninganna
má vitja til frú Sigurlínu Haralds
dóttur Eiðvallagötu 8. — (Birt
án ábyrgðar).
Gerið skil í happdrætti
Þjóðviljans
Verkamaðurinn
götu 5, Akureyri, siini 1516. —
Kristján Einarsson frá Djúpalæk.
Lausasöluverð kr. 2.00 eintakið. —
Vikublað. — Útgefendur: Sósíalista-
félag Akureyrar og Fulltrúaráð Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra. Skrifstofa blaðsins er í Brekku-
Kitstjórar: Þorsteinn Jónatansson (áb.) og
— Áskriftarverð kr. 100.00 árgangurinn. —
Blaðið kemur að jafnaði út á föstudögum. —
Prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar h.f., Akureyri.
Föstudagur 1. maí 1964
Verkamaðurinn — (7