Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 01.05.1964, Qupperneq 7

Verkamaðurinn - 01.05.1964, Qupperneq 7
r-----------------— SKRJÁF^ í SKRÆÐUM { Góð og kristin kona það! „Eigi skal gráta Björn bónda, heldur safna liði.“ — Þessi orð, sem höfð eru eftir Olöfu ríku Loftsdóttur á Skarði hafa verið básúnuð í gegnum nið aldanna og oft til þeirra vitnað við hátíð- leg tækifæri af leikum og lærð- um. Það liggur við að Ólöf þessi hafi orðið þjóðhetja í augum alþýðu manna, aðeins fyrir þessa kaldranalegu setningu. Sagan sýnir þó, að Ólöf Lofts- dóttir hefur verið hið mesta og versta kvenskass, sem Island hefur nokkru sinni alið, og far- ið í gröf sína og fram fyrir guð sinn með fleiri morð á samvizk- unni en nokkur annar íslending- ur fyrr og síðar. Maður hennar, Björn ríki Þorleifsson á Skarði, varð hirð- stjóri yfir íslandi árið 1457. Tíu árum seinna var hann veg- inn í bardaga við enska á Rifi, en enskir voru þá ofsóttir og réttdræpir að konungsboði, hvar sem þeir leituðu hafna á íslandi, og greina sögur frá mörgum ljótum atburðum í því sambandi. En Ólöf grét ekki Björn bónda sinn, heldur hefndi harma sinna (ef harma skyldi kalla) á alsak- lausum mönnum, með þeirri grimmd og djöfulmóði, sem dæmalaus er. Hún kom því til leiðar við Danakonung — kon- ung okkar —, að Danir sögðu Englendingum stríð á hendur. Það stríð stóð í heil fimm ár og kostaði báða aðila ægilegar blóðfórnir, sem nærri má geta. En þetta var ekki allt. Fyrir makt sína og jarðaauð lét Ólöf undirsáta sína við Breiðafjörð og á Vestfjörðum fanga og drepa margar skipshafnir ensk- ar, sem til náðist eða lands þurftu að leita. M. a. lét hún einu sinni binda 12 enska fiski- menn á einn streng og háls- höggva þá alla að síðasta manni ásjáandi. Þá er sagt, að hun hefði um tíma ekki færri en 50 Englendinga í haldi heima á Skarði í nauðungarvinnu, en léti svo drepa þá smátt og smátt eftir geðþótta sínum. Enn er til saga, sem lýsir „drenglyndi“ hennar og „mann- kærleika“ einkar vel, — enda var hún kona vel kristin! Þá var hún, sem oftar, að sigla skipi sínu til Danmerkur, er skipið lenti í hrakningum og hafvillum, þannig að algjör vistarþrot urðu um borð. Þá tók hún það fanga- ráð, að láta lóga einhverjum af hásetunum og ætlaði kjötið til eldis hinum og sjálfri sér. En AÐALFUNÐUR KAUPFÉLAGS EYFIRÐINGA verður lialdinn í Samkomuhúsi bæjarins, Akureyri, mánudaginn 1. júní og þriðjudaginn 2. júní 1964. Fundurinn hefst kl. 10 árdegis mánudaginn 1. júní. DAGSKRÁ: 1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfs- manna fundarins. 2. Skýrsla stjórnarinnar. 3. Skýrsla kaupfélagsstjóra, - Reikningar félagsins. - Umsögn endurskoðenda. 4. Ráðstöfun ársarðsins og innstæða inn- lendra afurðareikninga, 5. Erindi deilda. 6. Framtíðarstarfsemi. 7. Önnur mál. 8. Kosningar. Akureyri, 24. apríl 1964. STJÓRNIN. Kringsjá vikunnar Messoð í Akureyrarkirkju kl. 2 e.h. n. k. sunudag. Hinn almenni bænadagur. Sálmar nr.374, 376, 378 og 1. — P. S. Messað verSur í FjórSungssjúkra- húsinu á Akureyri n. k. sunnu- dag kl. 5 e. h. — B. S. Messað verSur í LögmannshlíSar- kirkju kl. 2 e. h. n. k. sunnudag. (Hinn almenni bænadagur). — Sálmar nr. 374, 376,378 og 1. BílferS verSur úr Glerárhverfi kl. 1.30. — B. S. Aðalfundur Fegrunarfélags Akur- eyrar verSur haldinn aS Hótel KEA (Rotarysal) mánudaginn 4. maí kl. 8.30 e. h. — Venjuleg aSalfundarstörf. — Stjórnin. Þakkir. — KvenfélagiS Hlíf flytur bæjarbúum innilegar þakkir fyrir ágætan stuSning viS barnaheim- iliS Pálmholt á sumardaginn fyrsta. Sérstakar þakkir flytur þaS þó öllum þeim, sem lögSu fram vinnu eSa gjafir í þessu markmiSi. — MeS ósk um gott og gleSilegt sumar. — Stjórnin. ÍBA. - SíSari hluti ársþings íþrótta- bandalags Akureyrar fer fram f Iþróttahúsinu á Akureyri n. k. mánudag kl. 8.30 e.h. — Stjórn ÍBA. Kvennasamband Akureyrar heldur aSalfund aS Hótel KEA (Rotary- sal) miSvikudaginn 6. maí kl. 20.30. — Venjuleg aSalfundar- störf. — Stjórnin. Leiðrétting. Þar sem sagt var í blaS- þegar hún og nokkrir aðrir, fyr- ir áeggjan hennar, höfðu neitt réttarins, lét hún kasta þeim hin- um sömu fyrir borð, með þeim ummælum, að ekki dygði að hver myrti annan sér til matar. Komst svo við fáa menn til Köpenhafn. Vert er að minnast þess, að þegar Ólöf var uppi, hafði kristinn siður fengið að þróast á íslandi í meira en fjóra og hálfa öld, og fyrirgefningar- og bræðralagshugsj ón meistar- ans frá Nasaret verið kennd hér jafnlengi. Frúin á Skarði virð- ist hafa farið varhluta af fagn- aðarboðskapnum, a. m. k. verð- ur varla sagt að hún hafi fyrir- gefið óvinum sínum „sjötíu sinnum sjö sinnum.“ Heimildir: Annálar.. í tilefni af baráttu- og hátíðisdegi verkalýðs- ins, 1. maí, sendir Sjómannafélag Akureyrar félagsmönnum sínum beztu kveðjur og væntir þess, að allir þeir sjómenn, sem í landi verða, mæti á útifundinum og taki þátt í kröfugöng- unni. SJÓMANNAFÉLAG AKUREYRAR. i—— --——--------——————-------—---- Hraðskákkeppni á vegum Skákfélags Akureyrar verður n.k. laugardag (2. maí) kl. 8 e. h. í Landsbankasalnum. Meðal keppenda verða Helgi Ólafsson, skákmeistari ís- lands, og Freysteinn Þorbergsson. Stjórnin. inu 10. þ. m. frá verði á píanói því, sem Lionsklúbburinn Hug- inn gaf Skíðahótelinu, var skakkt farið með tölur. Verðmæti var talið um kr. 30.000.00, en er rétt um 36.000.00. Maí-boðhlaupinu er frestað til sunnudagsins 3. maí kl. 11 f.h. Í.M.A. Frá Kvenfélaginu Hlíf. — Dregið hefur verið í innanfélagshapp- drættinu. — Þessi númer hlutu vinning: 693 Ijósakróna, 1012 sófaborð, 600 málverk, 147 hita- kanna, 1018 brúða, 1068 borð- refill, 150 náttkjóll, 892 bað- handklæði, 1024 skurðarsett, 373 málning. — Vinninganna má vitja til frú Sigurlínu Haralds dóttur Eiðvallagötu 8. — (Birt án ábyrgðar). Gerið skil í happdrætti Þjóðviljans Verkamaðurinn götu 5, Akureyri, siini 1516. — Kristján Einarsson frá Djúpalæk. Lausasöluverð kr. 2.00 eintakið. — Vikublað. — Útgefendur: Sósíalista- félag Akureyrar og Fulltrúaráð Alþýðu- bandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra. Skrifstofa blaðsins er í Brekku- Kitstjórar: Þorsteinn Jónatansson (áb.) og — Áskriftarverð kr. 100.00 árgangurinn. — Blaðið kemur að jafnaði út á föstudögum. — Prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar h.f., Akureyri. Föstudagur 1. maí 1964 Verkamaðurinn — (7

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.