Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 15.05.1964, Qupperneq 1

Verkamaðurinn - 15.05.1964, Qupperneq 1
Verkamaðurinn Verkamannasamband íslands stofnað GALDRA-LOFTUR Stofnþing Verkamannasam- bans Islands var sett í félags- heimili Dagsbrúnar og Sjó- mannafélags Reykjavíkur að Lindargötu 9 klukkan 2 e. h. laugardaginn 9. maí. Hermann Guðmundsson formaður Verka- mannafélagsins Hlífar í Hafnar- firði setti þingið með ávarpi. Síðan flulti Hannibal Valdi- marsson forseti Alþýðusam- bandsins kveðju og árnaðar- óskir Alþýðusambandsins. Þá fór fram athugun kjör- bréfa. 23 félög höfðu tilkynnt þátttöku í stofnun sambandsins, en á þinginu voru mættir 43 full- trúar frá 22 félögum og voru kjörbréf þeirra samþykkt. Forsetar þingsins voru kjörnir Björgvin Sigurðsson, Stokks- eyri, Guðmunda Gunnarsdóttir, Vestmannaeyjum og Sigfinnur Karlsson, Neskaupstað. Þá flutti Björn Jónsson, for- maður Einingar á Akureyri, framsögu um hlutverk og starf- semi sambandsins, lög þess og fjárhagsáætlun. Hófust síðan al- mennar umræður um þennan dagskrárlið, er stóðu fram að kvöldverðarhléi. Var þá málinu vísað til 2. umræðu og nefndar. Þingið kaus þrjár starfs- Við höfum hlýtt á árangur vetraræfinga kórsins og viljum óska honum hamingju. Hann söng í Samkomuhúsinu s.l. laug- ardag við sérlega góðar undir- tektir og blómregn. Má það einkum skrifast á tvo nýja kappa, sem nú sáust með í fyrsta sinn: Einsöngvarann Jóhann Daníelsson og hinn efnilega unga undirleikara Jón Hlöðver Áskelsson, son söngstjórans, Ás- kels Jónssonar. Áskell Jónsson hefur nú bráð- lega stjórnað þessum kór í 20 ár. Það eru nú aðeins þrír eða fjórir menn með, sem þá sungu fyrst. Þetta sýnir kannske ofur- lítið við hvaða erfiðleika er að fást í uppbyggingu kórs. Stöðug mannaskipti og innkoma nýrra krafta hljóta að mæða mjög á söngstjóra um þjálfun. Þó er það lífsnauðsyn. Við sáum nú á þessari söngskemmtan, að í nefndir laga- og fj árhagsnefnd, kjaranefnd og uppstillinganefnd. í upphafi kvöldfundar á laug- ardag flutti Eðvarð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar fram- söguræðu um viðhorfin í kjara- málunum. Að loknum almenn- um umræðum var málinu vísað til 2. umræðu og nefndar. Fyrir hádegi á sunnudag störfuðu nefndir, en klukkan 2 e. h. hófust þingfundir að nýju, og fiutti þá Benedikt Gunnars- son byggingafræðingur, erindi um vinnurannsóknir og vinnu- hagræðingu og svaraði fjölda fyrirspurna þingfulltrúa. Voru þá tekin fyrir nefndar- álit og fyrst samþykkt lög og fjárhagsáætlun fyrir sambandið og síðan ályktun um kjaramál. Þá var kosin stjórn fyrir sam- bandið og er hún þannig skipuð: Formaður Eðvarð Sigurðsson, Reykjavík, varaformaður Bjöm Jónsson, Akureyri, ritari Her- mann Guðmundsson, Hafnar- firði, gjaldkeri Björgvin Sig- urðsson, Stokkseyri og með- stjórnendur: Guðmunda Gunn- arsdóttir, Vestmannaeyjum, Sig- finnur Karlsson, Neskaupstað, og Oskar Garibaldason, Siglu- firði. í varastjórn voru kjörnir Guðmundur J. Guðmundsson, hægri fylkingararm vantaði Jó- hann Konráðsson, sem forðum daga setti aðalsmerki á kór þenna. í vinstri arm vantaði hinn djúpa og hreinræktaða bassa Magnús Sigurjónsson, sem eitt sinn var grunnur undir stórum veruleik, einnig vantaði þar Eirík Stefánsson, sem var prýðis söngmaður og félagi í þessum kór. Þetta er blóðtaka, ef ekki koma númer í staðinn. Samt sem áður er Karlakór Akureyrar virðulegur félags- skapur og vekur ákveðnar fagn- aðarkenndir, kannske fyrst og fremst vegna þess að Áskell er lifandi músikmaður og hlýtur að tendra glóð í samstarfsmönnum sínum, sem margir hverjir leggja sig alla fram. En það má aldrei gleyma því, er kórar okkar eru dæmdir, að þetta er ekki atvinnu- lið, heldur áhugamenn, sem vinna sinn fulla vinnudag fyrir Reykjavík, Margeir Sigurðsson, Sandgerði og Jón Ásgeirsson, Hrísey. Formaður, varaformaður og ritari sambandsins mynda fram- kvæmdanefnd. Samþykkt var að næsta þing sambandsins skuli haldið í maí- mánuði 1965 og að þau félög sem ganga í sambandið fyrir þann tíma eða á því þingi skuli telj ast stofnfélög. Meðlimafjöldi þeirra félaga er að stofnun sambandsins standa er nú um 8500. Stðdentar frd Oslð Væntanleg er hingað til bæj- arins 19. þ. m. Sinfóníuhlj óm- sveit stúdenta frá Osló og munu þeir halda einn konsert hér. Verður það 19. maí. Forsala aðgöngumiða verður í Bókabúðinni Huld, og hefst á föstudag kl. 9. Barnaheimili I.O.G.T. að Bögg- versstöðum tekur til starfa 20. júní n.k. Börn á aldrinum 5—8 óra sitja fyrir um dvöl. Tekið verður á móti umsóknum næstu daga hjó Jóni Kristinssyni, Róðhústorgi 3, sími 2131, sem veitir allar nónari upp- lýsingar. — Barnahemilisnefndin. lífsbrauði sínu og leggja æfing- arnar á sig, eftir vinnutíma. Hvað gerum við hinir við þessa frítíma? Það, sem helzt virðist á vanta í kórnum eru milliraddir, í sterkum söng yfirgnæfir fyrsta rödd hinar. Annar bassi mætti vera sterkari, en á honum bygg- ist æði mikið í kór. Kannske er kórinn beztur í veikum söng, s.b. Dansvísa, eftir Hans L. Hassler. Gaman var að heyra, Golan mín, ágætt kórlag eftir Jóhann Ó. Haraldsson. Og söngurinn fór batnandi eftir því sem á leið. Sólólögin, Sólskinsnætur eftir Schrader og Cavalleria Rusti- cana eftir P. Mascagni voru ágæt í flutningi kórsins. Ein- söngvarinn Jóhann Daníelsson skilaði hlutverki sínu með prýði, jafnvel þótt hann gengi ekki í þetta skipti heill til skógar og Síðastliðinn föstudag hafði Leikfélag Akureyrar frumsýn- ingu á leikriti Jóhanns Sigur- jónssonar, Galdra-Lofti, undir leikstjórn Ragnhildar Stein- grímsdóttur. Galdra-Loftur er eitt hinna fáu, þjóðlegu, rammíslenzku leikrita, sem er að finna í leik- bókmenntum okkar, og nýtur að verðleikum mikilla vinsælda. Langt er þó orðið síðan Loftur hefur sézt á sviðinu hér, en hann var leikinn hér 1927 og lék Har- aldur Bj örnsson titilhlutverkið. Með önnur helztu hlutverk fóru þá: Gísli R. Magnússon, Álf- heiður Einarsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Jóhann Þ. Kröyer, Steinþór Guðmundsson, Svava Jónsdóttir og Páll Vatnsdal. Að þessu sinni hefur leikari frá Reykjavík verið fenginn til að fara með titilhlutverkið, hinn snjalli Gunnar Eyjólfsson. Hann er eini atvinnuleikarinn í þeim hóp, sem þama kemur fram, og hefur því eðlilega nokkra sér- stöðu. Hann hefur og áður farið með hlutverk Lofts á sviði í Reykjavík. Er fljótsagt um leik Gunnars, að hann er með ágæt- um. Ymsir hinna akureyrsku leik- ara, sem þarna koma fram standa sig og með ágætum, og sumir gera betur en ég minnist áður að hafa séð til þeirra. Á það sér- staklega við leikstj órann, Ragn- hildi, sem fer með hlutverk Steinunnar og gerir því mjög góð skil. Verður leikur hennar í þessu hlutverki áreiðanlega mörgum minnisstæður. Þórey Aðalsteinsdóttir, sem leikur væri lítt undir búinn. Jóhann hefur stundað söngnám hjá Vin- cento Demetz í Reykjavík og í söngkennaradeild Kennaraskól- ans. Hann hefur sungið með öðr- um kórum, t. d. Fóstbræðrum. Hann mun ágætur söngvari. I heild má þakka Karlakór Akureyrar fyrir sönginn. Hann hefur bætt við nýjum viðfangs- efnum og hann gladdi áheyrend- ur mjög, með söng sínum í þetta sinn. Hann endurtók söng- inn annan dag og syngur nú í kvöld enn fyrir almenning í Sjálfstæðishúsinu. Menn ættu að styðja að sönglífi í bænum með því að sækja þessar söng- skemmtanir. Persónulega þakka ég undir- leikaranum unga og óska honum frama. Þökk þér í heild, Karla- kór Akureyrar. k. biskupsdótturina, fer einnig vel með sitt hlutverk og eðlilega. Yfirleitt virðist val leikara hafa tekizt óvenjuvel. Guðmundur Magnússon Teikur biskupinn á Hólum og er mjög biskupslegur. Anna Björnsdóttir er aftur á móti varla nógu ma- dömuleg í hlutverki frúarinnar. Guðmundur Gunnarsson leik- ur ráðsmanninn og er að vanda traustur og öruggur á sviðinu og nær vel að skapa þá persónu, sem við ímyndum okkur ráðs- manninn hafa verið. Marinó Þorsteinsson er nýr á leiksviðinu hér. Hann fer með hlutverk Olafs, vinar Lofts. Hann bregzt ekki í allerfiðu hlutverki. Loks verður ekki hjá því kom- izt að geta sérstaklega Kristjáns Kristj ánssonar, sem leikur blind- an ölmusumann, og gerir það svo vel að sérstök ánægja er að fylgjast með honum. Rúmsins vegna er ekki hægt að fara lengra út í lýsingar á meðferð einstakra leikara á hlut- verkum sínum, en ótaldir eru þessir leikarar: Eva Þ. Haralds- dóttir, Steinn Karlsson, Árni Böðvarsson, Sæmundur Ander- sen, Jón Ingólfsson, Kjartan Ölafsson, Kristjana Jónsdóttir og Jón Ingimarsson. Flest eru þau í smáum hlutverkum, en skila þeim sómasamlega og sum vel. í heild er þessi leiksýning ein sú allra ánægjulegasta, sem hér hefur sézt um árabil, og þá um leið öllum er að henni standa til sóma. Leikfélagið hefur aukið við hróður sinn og sömuleiðis leikstjórinn og flestir þeirra leik- ara, sem þarna koma fram. Væri betur að svo mætti segja um hvert leikrit, sem hér er fært á svið. Frá því frumsýningin var hef- ur verið sýnt á hverju kvöldi og jafnan við húsfylli. Er vel, að það skuli þannig metið, sem vel er gert. Þ. HEYRT Á GÖTUNNI AÐ í undirbúningi sé blað af „Okurkörlum" hclgað Akur- eyri. AÐ stórir happdrættisvinningar séu líklegir til aS flýta fyrir gjaldþroti. AÐ framundan séu útibússtjóra- skipti við Útvegsbankann á Akureyri og muni Guðmund- ur I. og krataliðið standa þar é bak við með góðum stuðningi Björns í Coca- Cola. Söngskemmtun Karlakórs: Akureyrar

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.