Verkamaðurinn - 05.06.1964, Blaðsíða 1
Verkamaðurinn
SAMKOMULAGI ER NÁÐ
í nótt nóðist samkomulag í viðræðum ASÍ annars vegar og ríkisstjórnar-
innar og atvinnurekenda hins vegar, er hófust eftir að ASÍ sneri sér til ríkis-
stjórnarinnar og bar fram tillögur um leiðir til stöðvunar verðbólgunnar og
tryggingar kjörum launþega. — Mæla allir aðilar með því, að samningar verði
gerðir ó grundvelli þess samkomulags, sem nú hefur nóðst.
Somkomulagið er í V. köflum, og fara fjórir þeirra hér á eftir, en vegna rúmleysis verður kaflinn um hús-
næðismól að biða birtingar. Hann er þó einna merkastur og mun hafa mikla þýðingu fyrir ungt fólk og aðro
þó, sem þurfa að byggja sér íbúðarhúsnæði ó næstu órum.
8amning:ar fyi'ir
Horðnr> og: Anstnr>
land gfrðir í (lag
«ilda f
I. Verðtrygging kaupgjalds.
1. Ríkisstjórnin beitir sér fyrir
því, að verðtryggingu kaupgj alds
sé komið á með lagasetningu.
Verðtryggingin sé miðuð við
vísitölu framfærslukostnaðar í
Reykjavík. Þó nái verðtrygg-
ingin ekki til hækkunar þeirrar
vísitölu, sem stafar af hækkun á
vinnulið verðgrunns landbún-
aðarafurða vegna breytinga á
kauptöxtum eða vegna greiðslu
verðlagsuppbótar á laun.
2. Reiknuð sé út sérstök kaup-
greiðsluvísitala fjórum sinnum
á ári, miðað við þann 1. febrúar,
I. maí, 1. ágúst og 1. nóvember.
Þessi vísitala sé miðuð við sama
grundvallartíma og núverandi
vísitala (marz 1959).
3. Kaup breytist samkvæmt
hækkun kaupgreiðsluvísitölunn-
ar frá því, sem hún var 1. maí
1964. Þessar breytingar fari
fram ársfjórðungslega mánuði
eftir að kaupgreiðsluvísitalan
hefur verið reiknuð út, þ. e. 1.
marz, 1. júní, 1. september og 1.
desember. Kaup breytist með
hverri hækkun eða lækkun vísi-
tölunnar um eitt stig eða meira.
4. Aðilar samkomulagsins
mæla með því við Kauplagsnefnd
og Hagstofuna, að hafin sé end-
urskoðun grundvallar vísitölu
framfærslukostnaðar. Nýr vísi-
tölugrundvöllur taki því aðeins
gildi á samkomulagstímabilinu,
að samkomulag sé um það milli
aðila.
II. Viku- og mónaðarkaup
verkafólks í samfelldri vinnu.
Verkalýðsfélög og vinnuveit-
endur semji um, að verkafólki
sem unnið hefur sex mánaða
samfellda vinnu hjá sama vinnu-
veitanda, verði greitt óskert
vikukaup, þannig að samnings-
bundnir frídagar, aðrir en
sunnudagar, séu greiddir.
Með samfelldri sex mánaða
vinnu er átt við, að unnið hafi
verið hjá sama vinnuveitanda
full dagvinna í sex mánuði, enda
jafngildi fjarvistir vegna veik-
inda, slysa, orlofs, verkfalla eða
verkbanna fuliri vinnu. Sama
gildir um daga, sem falla úr, t. d.
í fiskvinnslu, vegna hráefnis-
skorts eða sambærilegra orsaka.
Það jafngildir samfelldri
vinnu, ef unnið hefur verið í
árstíðabundinni vinnu samtals í
sex mánuði hjá sama vinnuveit-
anda á undanförnum tveimur ár-
um. Slík árstíðabundin vinna
skal þó því aðeins tekin til
greina, að unnið hafi verið sam-
fellt yfir heil athafnatímabil
(vertíðir).
III. Breyting eftirvinnutíma
og eftirvinnuólags.
Verkalýðsfélög og vinnuveit-
endur semji um, að tillaga
Vinnutímanefndar í áliti nefnd-
arinnar, dags. 21. maí 1964, um
samræmingu eftirvinnutíma og
álags á eftirvinnukaup hjá verka-
mönnum, verkakonum og iðn-
verkamönnum taki gildi, en hún
er á þá leið, „að eftirvinna skuli.
teljast fyrstu 2 klst. eftir að dag-
vinnu lýkur, þannig að 15 mín-
útur af henni falli niður. Greidd-
ur kaffitími sé látinn standa
óbreyttur. Eftirvinnuálag lækki
í 50%. Nætur- og helgidaga-
kaup standi óbreytt í krónutölu,
þannig að hlutfallstengsl þess við
dagvinnukaup rofni um sinn.“
Jafnframt sé dagvinnukaup
hækkað þannig, að tekjur verði
óbreyttar þrátt fyrir styttingu
vinnutímans um stundarfjórð-
ung og lækkun eftirvinnuálags.
Ríkisstjórnin mun nú þegar
beita sér fyrir lagasetningu um
lengingu orlofs verkafólks úr 18
dögum í 21 dag sem svarar hækk-
un orlofsfjár úr 6% í 7%.
Þá mun ríkisstjórnin beita sér
fyrir því, að löggjöf verði sett
um vinnuvemd, þegar tillögur
í því efni liggja fyrir frá Vinnu-
tímanefnd. Einnig verði haldið
áfram athugunum og undirbún-
ingi að frekari styttingu vinnu-
tíma.
V. Onnur otriði.
Samkomulag um þau atriði,
sem að framan greinir, er háð
því skilyrði, að samningar náist
milli verkalýðsfélaga og vinnu-
veitenda, er gildi til ekki
skemmri tíma en eins árs og feli
ekki í sér neina hækkun grunn-
launa á því tímabili.
Blaðið hafði í morgun tal af
Birni Jónssyni formanni Verka-
lýðsfélagsins Einingar, en hann
hefur ásamt mörgum fleiri full-
trúum verkalýðsfélaganna á
Norður- og Austurlandi setið á
samningafundum í Reykjavík
undanfarnar vikur.
Taldi Bjöm nær fullvíst, að um
hádegið í dag yrðu undirritaðir
samningar fyrir almennu verka-
lýðsfélögin á þessu svæði, og
yrðu þeir síðan lagðir fyrir
fundi í viðkomandi félögum.
Fundur í Einingu hefur þegar
verið boðaður í kvöld.
Ekki er hér unnt að rekja ná-
kvæmlega hin ýmsu atriði samn-
inganna, en þeir byggjast í aðal-
atriðum á samkomulagi ASÍ og
ríkisstjórnarinnar, sem greint er
frá hér á síðunni.
Auk þess verða allmiklar til-
færslur milli kaupgjaldsflokka
og hækkun í einstökum flokk-
um. Eftirvinna verður tveir tím-
ar á dag og álag á eftirvinnu-
kaupið 50% í stað 60 áður, en
dagvinnukaupið hækkar, sem
þeim mun nemur miðað við að
unnið hefði verið 10 tíma og 15
mínútur á dag. Næturvinnu-
kaup verður óbreytt frá því, sem
var. Þær breytingar, sem verða
af þessum tveim atriðum, valda
því, að kaup í almennri dagvinnu
hækkar um 4,4%, í hafnarvinnu
um 6,2% og í síldarvinnu um
6,6%.
Veikindadagar verða nú
greiddir eftir þriggja mánaða
vinnu hjá sama atvinnurekanda,
eitt ár
og vikukaupsgreiðslur verða
teknar upp í allmiklu ríkara
mæli en verið hefur. Þýðir það
3,8% hækkun fyrir þá, sem þess
njóta, en það verða þeir, sem
unnið hafa 6 mánuði á sama
stað.
Loks er samið um mikilsverð
vinnuverndarákvæði, og ýmsar
fleiri breytingar hafa verið gerð-
ar á samningunum, sem taldar
eru horfa til bóta.
Aðeins verður nú einn samn-
ingur fyrir öll almennu verka-
lýðsfélögin á greindu svæði, og
þar sem ekki er um nýmæli að
ræða, hefur yfirleitt verið miðað
við það, sem áður var bezt hjá
einstökum félögum.
17 N ÆTU R
Samningafundunum syðra er
nú að ljúka eftir eitt lengsta og
strangasta úthald í kaupgjalds-
samningum. f 17 nætur hafa
samningamennirnir vakað við
störf sín og samanlagður fund-
artími er orðinn fullar 200
klukkustundir. Mun því samn-
ingamönnunum orðin full þörf
hvíldar, en landsmenn allir fagna
því, að þeir skyldu ná friðsam-
legu samkomulagi.
jSkókfréttír
Hópur skákmanna úr Skák-
félagi Akureyrar fór til Norð-
fjarðar um síðustu helgi og
háði þar keppni við heimamenn.
Urslit urðu þau, að Akureyring-
arnir báru sigur úr býtum með
11 vinninga á móti 2, en keppt
var á 13 borðum. Einnig höfðu
Akureyringar betur í hraðskák-
keppni. Eiga þó Norðfirðingar
mörgum góðum skákmönnum á
að skipa.
HEYRT A GÖTUNHI
AÐ ó aðalfundi KEA hafi Jakob
Frímannsson fekið á sig alla
óbyrgð ó viðskipfum kaup-
félagsins við Brynjólf veit-
ingamann.
AO á sama fundi hafi Jakob
sannað, að hann sé íslands-
meistari í að kveða niður
umræður og „leiðinda"-
fyrirspurnir.
AÐ talinn sé litill „bisnes" oð
bjóða upp hænur Brynka,
gróðavænlegra væri að
sleppa þeim og selja siðan
veiðileyfi.