Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 12.06.1964, Page 4

Verkamaðurinn - 12.06.1964, Page 4
Samið um hsrri m og Eitt hið þýðingarmesta atriði, sem verkalýðshreyfingunni tókst í síðustu viku að ná samningum um við ríkisstj órnina í sambandi við gerð hinna nýju kjarasamninga, er að aukin verði lán til íbúða- bygginga og jafnframt verði vextir af þeim lánum lækkaðir í 4%. Svo fremi, að ríkisstj órnin standi við þau fyrirheit, sem hún hef- ur gefið með samningi þessum, má ætla að fjörkippur færist nú aftur í byggingu íbúðarhúsnæðis og einnig, að þeir, sem í bygging- ar ráðast, þurfi ekki með því að binda sér jafnslæmar drápsklyfjar og verið hefur nú um skeið. Hér fer á eftir sá hluti samkomulagsins milli Alþýðusambands íslands, Vinnuveitendasambands íslands og ríkisstj órnarinnar, sem fjallar um lausn húsnæðismálanna, aðrir kaflar samkomulagsins birtust í síðasta blaði: Ríkisstj órnin mun beita sér fyrir ráðstöfunum til úrlausnar í húsnæðismálum, er hafi þann tilgang annars vegar að létta efnalitlum fjölskyldum að eign- ast íbúðir, og hins vegar að tryggja nægar og stöðugar íbúðabyggingar í landinu. í þessu skyni mun ríkisstj órnin tryggja eftirfarandi: 1. Aflað verði á þessu ári og á fyrri hluta næsta árs 250 millj. kr. til þess að mæta þeim um- sóknum, sem lágu óafgreiddar hjá Húsnæðismálastjórn 1. apríl s.l. Húsnæðismálastjórn ákveður reglur um uppgjör fyrri skuld- bindinga sinna. 2. Frá og með árinu 1965 verði komði á kerfisbreytingu íbúðalána, þannig að tryggt verði fjármagn til þess að veita lán til ákveðinnar tölu íbúða á ári og verði loforð fyrir lánun- um veitt fyrirfram. Fyrstu árin verði þessi lán ekki færri en 750 og lánsfjárhæð út á hverja íbúð ekki lægri en 280 þús. kr. eða % kostnaðar, hvort sem lægra er. (Lánin greiðist að hálfu að hausti, en að hálfu næsta vor). Þessi tala sé við það miðuð, að tryggð verði bygging 1500 íbúða á ári, er síðan fari smáhækkandi í samræmi við áætlanir um þörf fyrir nýjar íbúðir. Telji Hús- næðismálastjórn æskilegt, getur hún fækkað lánum á árinu 1965 samkvæmt nýja kerfinu, enda bætist þá samsvarandi upphæð við það fé, sem til ráðstöfunar verður samkvæmt lið 1) hér að framan. 3. Hluta þess fjár, sem Bygg- ingarsjóður hefur til umráða, verði varið til viðbótarlána um- fram þær 280 þúsund kr. á íbúð, sem að framan getur, til að greiða fyrir íbúðabyggingum efnalítilla meðlima verkalýðs- félaga. Húsnæðismálastjórn á- kveður lán þessi að fengnum til- lögum frá stjórn þess verkalýðs- félags, sem í hlut á. í þessu skyni skal varið 15—20 millj. kr. ár- lega. 4. Jafnframt mun ríkisstjórn- in beita sér fyrir öflun lánsfjár til byggingar verkamannabú- staða. Eftirfarandi atriði eru for- sendur fyrir því, að ríkisstjórn- in tekur á sig skuldbindingar þær, sem að ofan getur: a) Lagður verði á launagreið- endur almennur launaskattur að upphæð 1% af greiddum vinnulaunum og hvers konar atvinnutekj um öðrum en tekjum af landbúnaði. Renni skatturinn til Bygg- ingarsj óðs ríkisins sem stofn- fj árframlag. b) Til viðbótar við launaskatt- inn og það eigið fé, sem Byggingarsjóður þegar ræð- Þing Stórstúku íslands haldið á Akureyri í tilefni af 80 ára afmæli Góð- templarareglunnar á fslandi verður Stórstúkuþingið nú hald- ið hér í bæ, — á stofnstað Regl- unnar. — Þingið verður sett laugardaginn 13. júní kl. 10 ár- VlSA VIKUNNAR Nú er úti suddi og súld svona til að breyt'um. Af því fólkið inni kúld- ost í bæ og sveitum. rp. _____________________——) degis, í Oddeyrarskóla og lýkur með samsæti í Sj álfstæðishúsinu á mánudagskvöld. Öllum félög- um Reglunnar er þar heimill að- gangur, ásamt gestum sínum og liggur áskriftarlisti frammi í Oddeyrarskóla, sími 2886, og verða þar veittar allar nánari upplýsingar. Á sunnudagsmorgun verður hlýtt messu í Akureyrarkirkju kl. 10 f. h., séra Birgir Snæ- björnsson predikar. Ef veður leyfir, verður gengið í skrúðgöngu frá Hótei Varð- borg til kirkjunnar og er þess óskað, að sem flestir templarar, yngri og eldri, verði þar með. lœgri vexti Verkamaðurinn Föstudagur 12. júní 1964 Þjóðhátíð 1964 Dagskráin á Akure^ri ur yfir, mun ríkisstj órnin tryggja honum 40 milljónir króna nýtt stofnframlag á ári með framlagi úr ríkissjóði, álagningu nýs skatts á fast- eignir eða með öðrum hætti. c. Svo verði frá gengið, að ríkis- framlag til Atvinnuleysis- tryggingasjóðs gangi árlega til kaupa á íbúðalánabréfum hins almenna veðlánakerfis. d) Komið verði á nýju kerfi íbúðalána fyrir lífeyrissjóði til samræmis við þær reglur, sem gilda um lán Húsnæðis- málastjórnar. Til þess að þessar aðgerðir nái tilgangi sínum og hið nýja veðlánakerfi geti byggt sig upp með öruggum hætti og hægt verði að lækka vexti og haga lánskjörum í samræmi við greiðslugetu alþýðufjölskyldna verði tekin upp vísitölubinding á öllum íbúðalánum. Er þá gert ráð fyrir því, að lánskjör á íbúðalánum verði þannig, að lánin verði afborganalaus í eitt ár og greiðist síðan á 25 árum með 4% vöxtum og jöfnum ár- greiðslum vaxta og afborgana. Full vísitöluuppbót reiknist síðan á þessa árgreiðslu. 17. júní-nefndin á Akureyri kvaddi fréttamenn á fund sinn í vikunni og skýrði frá helztu at- riðum varðandi undirbúning hátíðahaldanna í bænum á 20 ára afmæli lýðveldisins. Alllengi og mikið hefur verið unnið að undirbúningi, og er dagskráin að mestu fullmótuð. Er hún í stórum dráttum á þessa leið: Kl. 8 um morguninn verða fánar dregnir að hún og kl. 9 hefur blómabíll för sína um bæ- inn með hljóðfæraleik að vanda. Kl. 1.20 leikur Lúðrasveit Ak- ureyrar á Ráðhússtorgi meðan fólk safnast þar saman, en síðan setur Magnús E. Guðjónsson bæjarstjóri hátíðina. Þá flytur sr. Pétur Sigurgeirsson hátíða- guðsþjónustu með aðstoð kirkju- kórs Akureyrar og Lúðrasveitar- innar. Að því loknu verður flutt hátíðaljóð 1964 eftir Helga Val- týsson og síðan flytur Kristjana Halldórsdóttir Ávarp Fjallkon- unnar. Að þessum atriðum loknum hefst skrúðganga frá Ráðhúss- torgi undir stjórn Tryggva Þor- steinssonar skátaforingja. Lúðra- sveitin leikur fyrir göngunni, sem lýkur á íþróttasvæði bæjar- ins og þar heldur hátíðahöld- unum áfram. Fyrst verður fánahylling skáta, þá flytur Ingvar Gíslason alþingismaður lýðveldisræðu, Karlakórinn Geysir syngur, Jó- hann Heiðar Jóhannsson nýstúd- ent flytur Minni Jóns Sigurðs- sonar, Lúðrasveitin leikur milli atriða. — Þá fer fram knatt- spyrnukeppni milli meistara ÍBA frá 1954 og núverandi meistara, og loks verður keppni í frjálsum íþróttum. Meðan þessi atriði fara fram á íþróttasvæðinu verður fjöl- breytt dýrasýning sunnan vallar- ins og ennfremur verða þar til- tæk leiktæki fyrir börn. Þá verð- ur og nokkur hópur hesta á staðnum, og verður börnum leyft að skjótast á bak. Klukkan 17 verður barna- skemmtun á Ráðhússtorgi undir stjórn Einars Haraldssonar. Klukkan 20.30 verður svo enn samkoma á Ráðhússtorgi. Þá syngja Jóhann Daníelsson og Sigurður Svanbergsson tvísöng, félagar úr Leikfélagi Akureyrar flytja gamanþátt eftir Einar Kristjánsson, Karlakór Akur- eyrar syngur, Guðmundur Gunn- arsson les gamansögu eftir Kristján frá Djúpalæk, Smára- kvartettinn syngur, og loks verður dansað lengi nætur. 1 17. júní-nefndinni eru: Her- mann Sigtryggsson (formaður), Gunnlaugur Búi Sveinsson og Oddur Kristjánsson, kosnir af bæjarstjórn, og Jón P. Hall- grímsson og Jónas Jónsson til- nefndir af IBA. Vegna fjarveru Odds síðustu dagana fyrir hátíð- ina hefur varamaður, Ingólfur Kristinsson, tekið sæti hans. ( PERUTZ ) litfifmur Gullsmiðir Sigfryggur og Pétur Brekkugötu 5 — Sími 1524 LÖGTAK Eftir kröfu bæjargjaldkerans á Akureyri og að undan- gengnum úrskurði verða lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð bæjarsjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir gjald- fallinni fyrirframgreiðslu útsvara árið 1964, en síðasti gjald- dagi var 1. þ. m. og áttu gjaldendur þá að hafa lokið greiðslu á upphæð, sem nemur helmingi fyrra árs útsvars. 10. júní 1964. Bæjarfógetinn ó Akureyri Til samtakfl vinnumnrknðnrins Skv. fjárlögum (gr. 17. III. 11.) er ráðgert að gefa sam- tökum vinnumarkaðarins kost á opinberum stuðningi til þjálfunar manna til sérfræðilegra starfa á vegum samtak- anna á sviði hagræðingarmála, sbr. áætlun um opinberan stuðning við atvinnusamtök vegna hagræðingarstarfsemi (sjá tímaritið IÐNAÐARMÁL, 4.—5. hefti 1963). Er hér með auglýst eftir umsóknum téðra aðila, sem óska eftir að verða aðnjótandi ofangreindrar fyrirgreiðslu. Skal fyllgja umsókn, rökstudd greinargerð um þörf slíkrar starf- semi fyrir hlutaðeigandi samtök. Skriflegar umsóknir skulu sendar Sveini Björnssyni, fram- kvæmdastjóra Iðnaðarmálastofnunar íslands, Reykjavík, fyrir 21. júní n.k. og veitir hann nánari upplýsingar. Framkvæmd áætlunarinnar annast framkvæmdastj órinn í samráði við vinnutímanefnd og undir yfirstjórn þess ráðu- neytis. Reykjavík, 4. júní 1964. Félagsmólaráðuneytið.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.