Verkamaðurinn - 07.08.1964, Síða 1
Verkamaðurinn
*>••• '
í ^Vonarskarði 1. ó-
gúst. Þar snjóaði vel
um nóttina og renndi
i skafla, sem sums-
staðar voru ekki væð
ir ó fullhúum stígvél
um. En ekkert stóð
fyrir fjallabíl Gunn-
ars Jónssonar ó Dal-
vík, sem ók þótttak-
endum i skemmti-
ferð Ferðafélags Ak-
ureyrar. - Ljósm. PB.
KynþdttökÚQun tg appelsínur
Iskyggileg próun
Öllum er það kunnugt, að í
Suður-Afríku situr að völdum
ríkisstjórn, sem í einu og öliu
traðkar á mannréttindum hins
svarta innfædda kynstofns. —
Hvergi á jörðinni á sér nú stað
jafn almenn og opinber kynþátta
kúgun og þar. Reynt hefur verið
af Sameinuðu þjóðunum og fjöl-
mörgum félagasamtökum víða
um iönd að hafa áhrif á stefnu
ríkisstj órnar Suður-Afríku í
þessum málum og rétta hlut svert
ingjanna, en án árangurs til
þessa. Fasistarnir láta sér ekki
segjast.
Ein aðferðin til þess að berj-
ast gegn kynþáttastefnu S.-Af-
ríkustjórnar og leitast við að
hafa áhrif á hana er sú, að fólk
kaupi ekki vörur frá S.-Afríku.
Hafa félagasamtök víða um heim
beitt sér fyrir þessu með góðum
árangri, þótt þetta hafi ekki orð-
ið nógu almennt ennþá. Á Norð-
urlöndum hafa æskulýðssam-
bönd, verkalýðs- og samvinnu-
sambönd haft foryztu í þessum
efnum og viðskipti þessarra
landa við Suður-Afríku stór-
minnkað.
En hér á íslandi er aðra sögu
að segja. Hér er innflutningur
frá S.-Afríku margfaldaður og
sjálft Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga leyfir sér að vera
þar í fararbroddi. I verzlunum
kaupfélaganna má daglega líta
appelsínur og fleiri ávexti, nýja
og niðursoðna, frá Suður-Af-
ríku. Er þó erfitt að ímynda
sér, að SÍS geti ekki fengið nóg
af þessum vörum annars staðar
frá.
En fyrst foryztumenn Sam-
bandsins hafa ekki hugsun á að
hætta að flytja þessar vörur kyn-
þáttakúgaranna til landsins, ætti
fólk að taka sig saman um að
kaupa þær ekki í verzlununum
og kenna þannig innkaupastjór-
unum betri siði.
Algengasta merkið, sem hér
sézt á nýjum ávöxtum frá Suður-
Afríku er Outspan, en einnig eru
Klukkan 2 á morgun, laugar-
dag, opnar Kristinn Jóhannsson
listmálari málverkasýningu í
Landsbankasalnum. Verða þarna
til sýnis 33 listaverk. Myndirn-
ar eru unnar í vatnslitum og
túxi og mjög vandvirknislega
gerðar, sérstaklega eru þau verk
góð, sem unnin eru í svörtu og
hvítu. Menn ættu að sjá þessa
sýningu.
Listamaðurinn er menntaður
í Myndlistarskólanum í Reykja-
vík og stundaði einnig nám í
Edinborg. Þetta er fimmta sýn-
ing hans hér í bæ og hátíðasýn-
ing í rauninni. Það eru 10 ár
síðan hann sýndi fyrst opinber-
lega.
Kristinn er Akureyringur, þótt
hann eigi nú heima í Ólafsfirði.
Hann er sonur Jóhanns Sigurðs-
sonar smiðs, sem allir kannast
við hér í bæ.
Þetta er engin abstraktlist. —
Þetta eru myndir frá lífi og
landi í Ólafsfirði og t. d. Svarf-
aðardal, eyfirzkt landslag og bát
ar í fjöru, gamlir bæir og leikur
með liti, svart og hvítt, snjó og
skugga, dökk spor í mjöll, hús í
tvíleik þessarra andstæðna. —
vörumerkin Golden Jubilee,
Cape Fruit og Cape Grapes frá
Suður-Afríku. Forðist að kaupa
vörur með þessum merkjum, og
athugið áður en þið kaupið nið-
ursoðna ávexti, hvaðan þeir
koma. Leggjum okkar litla lið til
aðstoðar svertingj unum í mann-
réttindabaráttu þeirra.
Kristinn er góður listamaður.
Myndirnar eru allar til sölu.
Sýningunni lýkur nk. þriðju-
dag. k.
Þótt nóg sé af illum heims-
fréttum og nú auknar viðsjár í
Austurlöndum, sem enginn sér
hvernig enda, þá má hiklaust
telja að hið mikla fylgi Barry
Goldwater tii forsetakjörs fyrir
Repúblikana í U. S. A. séu í-
skyggilegustu fréttir undanfar-
andi vikna.
Goldwater þessi virðist hrein-
ræktaður fasisti, tileinkar sér
m. a. ýmsa takta þeirra í mál-
flutningi. Hann hefur heimtað
kj arnorkuárásir á N.-Víet-Nam
og er harður fjandmaður kyn-
þáttafrumvarps Kennedys, þótt
hann láti í það skína, að lögin
eigi að virða. Hann heimtar rót-
tækar aðferðir gegn „kommúnist
um“, hvar sem er í heiminum,
— en það þýðir: berjum niður
hverja frjálslynda og framsækna
hugsun. Hann krefst þess að
Bandaríkin segi sig úr Samein-
uðu þjóðunum og hugmyndir
hans virðast: Einangrun, vald-
beiting, eldur og brennisteinn.
Það má segja, að slíkir ein-
staklingar séu alltaf uppi og er
ekki uggvekjandi um einn og
einn mann. En þegar slíkur mað-
ur virðist eiga fylgi mikils hluta
flokksbræðra í hinu fyrrverandi
landi frelsisins, þá er málið orð-
ið ljótt. Hvað er að gerast í sál-
arlífi Bandaríkjamanna? Kyn-
þáttaóeirðirnar undanfarið og
vaxandi aðgerðir gegn „komm-
únistum“ eru afleiðingar af sí-
auknum völdum hinna aftur-
haldssinnuðustu, mannanna, sem
heimurinn telur hafa staðið að
baki morðsins á hinum frjáls-
lynda foringja, Kennedy forseta,
hvað sem allar „skýrslur" kunna
að segja.
Það er ekki að undra þótt með
limir í Atlantshafsbandalagi,
hérna megin hafsins, séu ugg-
andi ef höfuðríki bandalagsins
á í framtíð að lúta stjórn manna
eins og Goldwaters, enda munu
tiltölulega heilbrigðar þjóðir í
stjórnmálum, svo sem Danir,
hálf smeykir, telja sig jafnvel
munu yfirgefa bandalagið fari
svo að Goldwater sigri.
En hvað segja íslendingar?
Áköfustu aðdáendur Bandaríkj-
anna í röðum stj órnmálamanna
hér þykjast móti stefnu Gold-
waters nú. En lúffa þeir ekki,
sigri hann? Það er fáu að treysta
í þeim herbúðum.
Mál þetta varðar allan heim-
inn: Stríð, yfirgangur, eyðing?
Eða friðsamleg sambúð þjóða,
frelsi, uppbygging?
Menn munu fylgjast vel með
málum. Það eru illar blikur á
lofti. k.
EMmili Akoreyrdr
berst orjur
Þann 26. júní sl. afhenti bæj-
arfógetinn á Akureyri stjórn
Elliheimilis Akureyrar krónur
180.489.63, sem er arfur eftir
frk. Elínu Óladóttur Laufásvegi
69 í Reykjavík. í erfðaskrá
sinni hafði hún ánafnað Elli-
heimili Akureyrar þessa upp-
hæð til minningar um foreldra
sína, Sigríði Magnúsdóttur, og
Óla Guðmundsson snikkara, er
bjuggu á Akureyri.
Stjórn Elliheimilisins þakkar
þessa stóru gjöf og þann hlýhug,
er að baki henni liggur. Biður
hún góðan guð að blessa minn-
ingu þessarrar ágætu konu og
sendir ættingjum hennar og vin-
um kærar kveðjur.
Stjórn Elliheimilis Akureyrar
HEYRT
Á GÖTUNNI
AÐ dulfróðir menn hafi komixt
að þeirri niðurstöðu, að öll
dýr merkurinnar muni eiga
sér eilíft lif nema „silfurref-
urinn."
AÐ vel miði framkvæmdum ó
Barðstúni við einkaveg bæj-
arverkfræðings.
AÐ búixt sé við miklu fjölmenni
ó þúsundpútnauppboðinu í
næstu viku.
AÐ lítið hafi verið drukkið á
bindindismannamótum um
verxlunarmannahelgina.
í síðustu viku lestaði Katla 20 þúsund tómar sildortunnur ó Akureyri til
flutnings ó Austfjarðahafnir. Myndin er tekin, þegar verið var að skipa
tunnunum út. — Flutningur ó síldartunnum til og fró um bæinn og nó-
grenni hans hefur verið góð atvinnubót fyrir vörubifreiðastjóra ó þessu
óri, en er ekki tími til kominn að byggja tunnugeymslu i bænum og fó
vörubílstjórunum önnur og hagnýtari verkefni en þetta tunnutransport,
sem einno helxt minnir ó þau vinnubrögð, sem kennd eru við spitalann
að Kleppi í Reykjavik?
Málverkasýning