Verkamaðurinn - 02.10.1964, Blaðsíða 1
Verkamadurinn
Verðtir símstððvunum lohuð?
ALÞYÐ USAHBANDSROSNIHG ARH AR
Alleinkennileg og athyglisverð
deila er risin milli yfirstjórnar
pósts og síma og stöðvarstjóra á
2. flokks símstöðvum.
Svo ótrúlegt sem það annars
kann að virðast munu stöðvar-
stjórar þessir ekki taldir til op-
inberra starfsmanna og taka ekki
laun eftir launalögum eða kjara-
dómi, heldur ákveður Póst- og
símamálastjórnin þeim laun (og
ekki rífleg). Sumarleyfi fá þeir
ekkert, og þegar þeir hafa reikn-
að sér orlof á launin, fá þeir að-
eins það svar, að orlofið sé inni-
falið í laununum. Mun það ein-
stakt fyrirbæri og í algerri mót-
sögn við landslög, að orlofsfé
sé ekki greitt sérstaklega, þar
sem ekki er um launað sumar-
leyfi að ræða.
Þá hefur símstjórum þessum,
sem yfirleitt hafa einnig með
póstafgreiðslu að gera, verið neit
að um greiðslur fyrir yfirvinnu,
og þau rök ein færð, að heimild
vanti til að ynna slíkar greiðsl-
ur af höndum.
Verkfallsréttur
Nú hafa símstjórarnir á 2.
flokks stöðvunum komizt að
þeirri niðurstöðu, að þar sem
þeir teljist ekki „opinberir
starfsmenn“ hljóti þeir að hafa
I ÞROTTAHUS
A síðasta bæjarstjórnarfundi
var samþykkt svofelld tillaga frá
Gísla Jónssyni, Braga Sigurjóns-
syni, Sigurði Ola Brynjólfssyni
og Jóni Ingimarssyni:
„Með hliðsjón af bókun
skipulagsnefndar frá 24. þ. m.
ákveður bæjarstjórn að reist
skuli íþrótta- og æskulýðshús á
óráðstafaðri lóð vestan Þórunn-
arstrætis, sunnan Byggðavegar,
gegnt lögreglustöðinni, svo fljótt
sem tæknilegur undirbúningur
og fjárhagsástæður leyfa.“
verkfallsrétt, og eru því teknir
að hugleiða að beita því vopni
til að reyna að fá fram einhverja
leiðréttingu sinna mála.
Annars flokks stöðvarnar eru
margar hringinn í kringum land-
.ið, og það myndi verða eitthvað
skrítinn svipur á símaþjónust-
unni daginn þann, sem þær lok-
uðu allar.
í undirbúningi eru sérstök
samtök þeirra stöðvarstjóra
pósts og síma, sem þarna eiga
hlut að máli. Hefur þegar verið
sett á laggirnar undirbúnings-
nefnd eða bráðabirgðastjórn,
og eiga sæti í henni Bjarni Pét-
ursson stöðvarstj óri á Fosshóli,
Halldóra Magnúsdóttir stöðvar-
stjóri á Staðarhóli og Magnús
Jónsson stöðvarstj óri á Greni-
vík.
Þess skal að lokum getið, að
mjög hefur stöðvarstj órum hér
nyrðra gengið illa að fá svör frá
Póst- og símamálastjórninni
varðandi fyrirspurnir og óskir í
sambandi við greind hagsmuna-
mál þeirra, og hafa bréf þeirra
leg.ið syðra mánuðum saman án
þess, að þeim væri sinnt.
Væntanlega mun blaðið síðar
geta sagt frekar frá gangi þessa
óvenjulega máls.
Kosningarnar til 29. þings
Alþýðusambands íslands standa
nú sem hæst, og líður vart sá
dagur, að ekki sé kosið í fleiri
eða færri félögum.
Heildarsvipurinn af kosning-
unum það sem af er, er sá, að
mjög litlar breytingar hafa
orðið með fulltrúaval frá því,
sem var fyrir þingið 1962, og
munu hlutföllin milli vinstri og
hægri manna því lítið sem ekk-
ert hafa breytzt frá því sem þá
var.
Nokkuð hefur það verið áber-
andi í þessum kosningum, að
BORINN AD KOMA
Norðurlandsborinn er nú að
koma til Norðurlandsins aftur
eftir Vestmannaeyjaförina, og
verður nú hafizt handa um hita-
vatnsleit vegna væntanlegrar
hitaveitu á Akureyri.
Fyrst verður borað að Lauga-
landi á Þelamörk, en þar eru
taldar mestar líkur á, að veru-
legt magn af heitu vatni fáist.
Verður sennilega byrjað að
vinna við uppsetningu borsins
þar strax eftir helgina, og er
ráðgert að bora allt að 1500
metra djúpa holu. Fáist ekki við-
unandi árangur verður næst
reynt í Glerárgili. Minni vonir
eru taldar til að þar fáist nægi-
legt vatnsmagn, en hinsvegar er
þá fjarlægðin frá bænum lítil og
hitanýtingin yrði góð.
Heita vatnið er ódýrasta ork-
an, sem völ er á í þessu landi,
og því ber að stefna að því, að
hver kaupstaður og hvert kaup-
tún, þar sem heitt vatn er að
finna í nálægð, verði hitað upp
með þessum ódýra hitagjafa.
Aflamet d síldveiðum
Aldrei fyrri í sögu síldveiða á
íslandi hefur borizt jafnmikil
síld á land á vertíðinúi fyrir
Norður- og Austurlandi og orðið
hefur á þessu sumri. Hið eldra
met var frá 1962, 2 millj. og
400 þúsund mál og tunnur, en á
laugardagskvöldið er var hafði
veiðzt 13 þúsund málum betur
á þessu sumri, og síðan hafa bor-
izt a. m. k. 60 þúsund mál.
Síldveiðiskýrsla Fiskifélags-
ins var þannig um síðustu helgi:
Sæmileg síldveiði var sl. viku,
þó veður hafi hamlað veiðum
mikinn hluta vikunnar. Flotinn
hélt sig aðallega S.A. af Seley.
Um 50 skip stunda ennþá síld-
veiðar fyrir austan.
Vikuaflinn var 71.642 m. og
tn. og var þá heildarafli á mið-
nætti s.l. laugardag orðinn
2.413.737 mál og tn. en var í
lok sömu viku í fyrra 1.646.225
mál og tunnur.
\
Aflinn hefur verið hagnýttur
þannig (tölur frá í fyrra í svig-
um):
í salt (uppm. tn.) 335.795
(463.235).
í frystingu (uppm. tn.) 35.848
(33.424).
í bræðslu (mál) 2.042.458
(1.149.566).
H elztu, löndunarhafnir eru
þessar:
Siglufjörður .......... 282.829
Raufarhöfn ............ 421.159
Vopnafjörður .......... 221.494
Seyðisfjörður ......... 408.071
Neskaupstaður .... 345.625
?!
Eskifj örður ........ 183.249
Reyðarfjörður........ 137.601
Sex skip með yfir 30 þús.
mól og tn.
S.l. laugardagskvöld voru sex
síldveiðiskip komin með meira
en 30 þús. mál og tunnur í afla
hvert á þessu sumri. Síðan hefur
a. m. k. eitt skipanna, Jón Kjart-
ansson, bætt við sig það miklu,
að aflinn er orðinn nokkuð yfir
40 þús. mál og tn.
Þessi sex skip voru:
Jón Kjartansson, Eskif. 38487
Jörundur III, Rvík 37278
Snæfell, Akureyri 34153
Sigurpáll, Garði 31871
Helga Guðm.d. Patr.f. 31646
Sigurður Bjarnas., Ak. 30253
þar sem annaðhvort vinstri eða
hægri menn hafa verið vissir
með að fá fulltrúana kosna úr
sínum hópi, þá hefur hin fylk-
ingin ekki boðið fram. Hefur því
orðið rólegri blær yfir kosning-
unum að þessu sinni, en oft áður
og þær ekki einkennzt eins áber-
andi af þeirri pólitísku orrahríð,
sem viðgengizt hefur innan
verkalýðssamtakanna og náð
hefur hámarki á Alþýðusam-
bandsþingum, þegar margir dag-
ar hafa stundum farið í að ríf-
ast um einstök kjörbréf. Kann-
ske þeir dagar verði færri nú
og þá meira hægt að sinna hin-
um raunverulegu viðfangsefn-
um.
Þar sem þegar virðist séð, að
hin pólitísku hlutföll á komandi
þingi Alþýðusambandsins breyt-
ist ekki teljandi, virðist einnig
mega gera ráð fyrir því, að sam-
bandsstjórnin verði áfram skip-
uð á svipaðan hátt og verið hef-
ur, þ. e. fulltrúum vinstri manna,
andstæðingum núverandi ríkis-
stj órnar.
KOSNINGAR A AKUREYRI.
Frá því síðasta blað Verka-
mannsins kom út hefur aðeins
verið kosið í einu félagi á Akur-
eyri, þ. e. Sveinafélagi járniðn-
aðarmanna. Þar var Björn Krist-
insson kosinn aðalfulltrúi og
Bjarki Arngrímsson varamaður
hans. — Sveinafélagið átti engan
fulltrúa á þinginu 1962.
Á laugardag og sunnudag fer
fram allsherjaratkvæðagreiðsla
í Bílstjórafélagi Akureyrar um
fulltrúakj örið, og eru tveir listar
í kjöri. Á lista vinstri manna eru
Baldur Svanlaugsson og Friðrik
Blöndal, en á lista hægri manna
Magnús Snæbjörnsson og Jó-
hann Böðvarsson.
Auglýst hefur verið eftir fram-
boðslistum í Sjómannafélagi
Akureyrar, og rennur framboðs-
frestur þar út um hádegi á mið-
vikudag.
Bílstjórar! A-listinn er iisti vinstri
manna i Bflstjórafélagi Akureyrar
HEYRT A GðTUNNI
AÐ samkvæmt upplýsingum
Gylto farandráðherra sé
kommúnismi kominn á í
Kína.
AÐ samkvæmt sömu upplýsing-
um leggi menn austur þar
„áherzlu á", að þeir „leggi
ekki áherzlu á", að farand-
ráðherrann viðurkenni Al-
þýðulýðveldið.
AÐ Baldur á Ofcigsstöðum æfi
um þessar mundir handhlaup
undir skriðum norður við haf.
AÐ bandariskur atvinnuhermað-
ur á eftirlaunum hafi verið
ráðinn kennari við Mennta-
skólann á Akureyri.