Verkamaðurinn - 06.11.1964, Page 1
Verkamaðurinn
Alþýðubandalagið í Norðurlandshjör-
dœmi eystra treystir shipulag sitt
l4jöi'<lu‘mis|»iii» þc§$ einliu^a nm uppb^gfgingu
Alþýðnbandalagsins §cni §kipnlag;ð§ flokk§
w
tUyktun um skipulngs-
mnl llþýðuboodAlagsins
Kj ördæmisþingið lýsir ánægju sinni yfir því frumkvæði,
sem stjórn Kj ördæmisráðsins hefur haft um stofnun Alþýðu-
bandalagsfélaga í Norðurlandskjördæmi eystra og þeim mik-
ilsverða árangri, sem náðst hefur í þá átt að treysta samtök
Alþýðubandalagsmanna í kjördæminu.
Þingið telur, að hér sé hafið það skipulagsstarf, sem nú
þurfi að vinna af alefli um land allt, þ. e. að sú víðtæka sam-
staða, sem náðst hefur innan Alþýðubandalgsins verði var-
anlega fest skipulagslega með stofnun Alþýðubandalagsfélaga
í öllum byggðarlögum, stofnun kjördæmisráða í hverju kjör-
dæmi og loks með landssamtökum, sem stofnuð verð.i á lands-
fundi þeirra á næsta ári. Telur þingið, að landsfundinn
eigi að skipa fulltrúar Alþýðubandalagsfélaga, sem kosnir
verði í hverju félagi í samræmi við félagsmannafjölda, og
verði höfuðverkefni hans að ráða endanlega til lykta skipu-
lagsmálum Alþýðubandalagsins, mótun stefnuskrár þess og
kjör flokksstjórnar.
Þingið felur væntanlegri stjórn kj ördæmisráðsins að stuðla
að öllum aðgerðum í framangreinda átt í samstarfi við önn-
ur samtök Alþýðubandalagsmanna.
jStofooð Alþpðu-
bflodfllflg Epfirðiogo
Kj ördæmisþing Alþýðubanda-
lagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra var haldið á Akureyri um
síðustu helgi og voru þar mætt-
ir kjörnir fulltrúar frá öllum Al-
þýðubandalagsfélögunum, sem
starfandi eru í kjördæminu og
ennfremur frá Sósíalistafélagi
Húsavíkur, en þar hefur enn
ekki verið stofnað félag Alþýðu-
bandalagsmanna.
Þingið stóð aðeins einn dag,
en var mjög athafnasamt. Voru
samþykktar fjölmargar ályktan-
ir og ríkti alger eining um af-
greiðslu allra mála. Meðal álykt-
ana þingsins voru samþykktir
um skipulagsmál Alþýðubanda-
lagsins, atvinnumál kjördæmis-
ins, landbúnaðarmál og raforku-
mál. Ennfremur um starfsemi A1
þýðubandalagsins í kjördæminu
svo sem útgáfustarfsemi, út-
breiðslumál, fjármál og fleira.
Verða ályktanir þingsins birtar
hér í blaðinu í þessu blað.i og
þeim næstu.
I heild bar þingið vott um
mikinn áhuga fyrir vaxandi
KVIKMYNDASÝN-
INGAR
Akureyrardeild M. I. R. efn-
ir til kvikmyndasýninga í Al-
þýðuhúsinu dagana 10.-—13.
nóv. næstk. Sýningar hefjast kl.
21. Þessar myndir verða sýnd-
ar: Þriðjudag 10. nóv.: Þrett-
ándakvöld eftir samnefndu leik-
riti W. Shakespeare. — Þess má
geta, að Leikfélag Akureyrar
setti leikrit þetta á svið síðast-
liðinn vetur. ■—■ Miðvikudag 11.
nóv.: Ivar grimmi (fyrri hluti)
— Fimmtudag 12. nóv.: Ivar
grimmi (síðari hluti). — Mynd
þessi er gerð af S. Eisenstein og
tónlist er eftir Prokofief. Hefur
hún hvarvetna hlotið mikið lof
sem ágætt listaverk og verið tal-
in með beztu kvikmyndum, sem
Rússar hafa gert. — Fimmtu-
dag 13. nóv. Engisprettan eftir
samnefndri sögu rúsneska skálds
ins A. P. Tjekofs.
Framh. á 4. síðu.
gengi Alþýðubandalagsins og
gat engum dulist, sem þingið sat,
að Alþýðubandalagsmenn hér í
kj ördæminu munu ekki láta sinn
Þorsteinn Jónatansson
hlut eftir liggj a í þeirri sókn, sem
Alþýðubandalagsmenn um allt
land eru nú að hefja fyrir bættu
skipulagi samtaka sinna og nýj-
um sigurvinningum í stjórnmála
baráttunni.
Björn Jónsson alþingismaður
flutti ýtarlega og fróðlega fram-
söguræðu um stjórnmálaviðhorf
ið, en um málefni kjördæmisins
fluttu Tryggvi Helgason, Páll
Gunnlaugsson, Ingólfur Árnason
og Jóhann Hermannsson fram-
söguræður.
Þann 25. okt. sl. var haldinn
stofnfundur Alþýðubandalags
Norður-Þingeyinga vestan heið-
ar. Var fundurinn haldinn á
Raufarhöfn og var allvel sóttur,
þrátt fyrir mikið annríki heima-
manna. Á fundinum voru sam-
þykkt lög félagsins, rætt um
stjórnmálaviðhorfið og kosin
stjórn félagsins og fulltrúar í
kjördæmaráð.
Stjórn félagsins skipa:
Hreinn Ragnarsson, kennari,
formaður.
í þinglok fór fram kjör stjórn-
ar kjördæmisráðsins og hlutu
þessir kosningu, allir einróma:
Þorsteinn Jónatansson, Akureyri
formaður.
Stefán Halldórsson, Hlöðum.
Jón B. Rögnvaldsson, Akureyri.
Páll Gunnlaugsson, Veisuseli.
Jóhann Hermannsson, Húsavík.
I varastjórn voru kjörnir:
Ingólfur Árnason, Akureyri.
Hjalti Haraldsson, Ytra-Garðsh.
Hörður Adólfsson, Akureyri.
Hreinn Ragnarsson, Raufarhöfn.
Þorgrímur Starri Björgvinsson,
Garði.
I blaðstjórn Verkamannsins
voru kosnir:
Björn Halldórsson, lögfræðingur
Rósberg G. Snædal, rithöfundur
Páll Kristjánsson, bókari
Stefán Björnsson, verkstjóri'
Einar Kristj ánsson, rithöfundur
í fastanefnd til að fjalla um
landbúnaðarmál voru kosnir:
Páll Gunnlaugsson, Hjalti Har-
aldsson, Stefán Halldórsson, Jón
Þ. Buck og Þorgrímur Starri
Björgvinsson.
Forseti þingsins var Jóhann
Hermannsson, Húsavík, en vara-
forseti Stefán Halldórsson, Hlöð
um.
Nánar er rætt um kjördæmis-
þingið í grein Björns Jónsson-
ar annars staðar í blaðinu.
Þorsteinn Hallsson, verkstjóri,
ritari.
Guðmundur Lúðvíksson, sjó-
maður, gjaldkeri.
Magnús Jónsson, verkamaður,
varaformaður.
Einar Borgfjörð, verkamaður.
Lárus Guðmundsson, kennari,
og Jóhannes Björnsson, verka-
maður, meðstjórnendur.
Stofnendur voru 27 að tölu,
en von er á vænlegri fjölgun fé-
lagsmanna næstu vikurnar.
Þann 30. f. m. var haldinn
stofnfundur Alþýðubandalags
Eyfirðinga, en félagssvæði þess
er Eyjafjarðarsýsla. Stofnendur
voru úr nær öllum sveitarfélög-
um sýslunnar. í stjórn félagsins
voru kosnir:
Björn Halldórsson, lögfræðing-
ur, formaður.
Hjalti Haraldsson, bóndi, ritari.
Stefán Björnsson, verkstjóri,
gjaldkeri.
Meðstjórnendur: Jón Ásgeirs-
son, formaður Verkalýðsfélags
Hríseyjar og Jónatan Davíðsson,
bóndi. — Varaformaður var kos
inn Eiríkur Björnsson, Arnar-
felli, og aðrir varamenn í stjórn:
Friðsteinn Bergsson, málari, og
Hermann Sigurðsson, bóndi.
KOSNINGASIGRI
JOHNSONS
FAGNAÐ UM ALLAN
HEIM
Kosningasigri Johnsons for-
seta hefur verið fagnað vel um
allan heim og er hann talinn mik-
ill sigur þeirra afla í Bandaríkj-
unum, sem æskja friðar og frið-
samlegrar sambúðar við önnur
ríki. Menn gera sér vonir um
að Johnson muni leita eftir að
bæta sambúðina við Sovétríkin
og efla friðarvonir almennings.
Borunin á Laugalandi
gengur vel
Stóri Norðurlandsborinn mal-
ar stanzlaust á Laugalandi og
miðar drjúgt niður, eða l1/^ til
3 metra á klst. Þeir eru nú komn-
ir niður á 150 metra dýpi.
Björn Halldórsson
Á fundinum var rætt um
stj órnmálaviðhorfið og ennfrem
ur voru samþykkt lög félagsins
og kosnir í kjördæmisráð þeir
Björn Halldórsson, Hjalti Har-
aldsson og Stefán Halldórsson.
HEYRT
Á GÖTUNNI
AÐ Sjólfstæðismenn krefjist for-
stjórastarfsins við Tryggingarn
or sem sórabóta fyrir útibús-
stjórastarfið i Utvegsbankan-
um.
AÐ nú komi til með að losna rit-
stjórostarf við Alþýðumann-
inn, og Steindór Steindórsson,
menntaskólakennari, sé líkleg-
astur í stað Braga.
AÐ blómasala hofi aldrei verið
meiri í Reykjavík en sl. þriðju
dag, og slík toppsala kunni
oð skapast oftur eftir fund
allra bankaróðsmanna.
$tof»flð 3l|fýðubflmlfllflg
Norður-Þingeyinga -