Þjóðhvellur - 20.03.1907, Blaðsíða 1

Þjóðhvellur - 20.03.1907, Blaðsíða 1
ÞJÓÐHVELLUR BLAÐ TIL SKEMTUNAR, FRÓÐLEIKS OG ALVARLEGRA ATHUGANA Nr. 7 KEYKJAYÍK, 30. MARZ 1907. I, 2. ársfj. C. & L. Lárusson, Laugaveg, 1, Reykjavik. Póstliólf A. .‘11. Telefón 10. Benedict Gabriel Benedictsson, skrautskrifari, Austurstræti 3. Heykjavik. Bækur, ritföng o. íl. á Laugavegi 19. Annar ársfjórðungur tMÓÐHVELLS byrjar með þessu blaði, og þótt hann sé ekki knúður til að gera grein fyrir peim drætti, sem orðið hefur á útkomu hans, frá pvi hann lauk fyrsta ársfjórðungi sinum, skömmu fyrir jól, vill hann samt, vina sinna vegna og velunnara, taka pað fram, að hon- pótti ekki hyggilegt, að eiga tilveru sína og viðgang undir mestu illviðrum og útsynning- um vetrarins, heldur taka pann kostinn, að bíða byrjar pangað til nú. Mönnum skilst pað auðvitað, að lausasala biaða er al- veg að heita má bundin við pað, að veður sé hagstætt og menn alment á ferli til og frá um strætin. Börnum ekki ætlandi að selja blöð í illviðrum. Af pessu stafar drátturinn. f’jóðhv. væntir pess, að honum verði fagn- að með lófaklappi af borgarbúum öllum, og einkum peim, er mest hafa saknað hans og oftast spurt um hann. Búningur hans verð- ur svipaður og áður og allri sanngirni beitt gagnvart blessaðri veröldinni. Þeim, sem eitthvað langar til að segja til gagns eða gamans, er velkomið rúm í Þjóhv. Sömuleisis peim, er kynnu að vilja taka lítið eitt i lurginn á náunganum fyrir einhverja drýgða smásynd. XívenfóllíiÖ. Fáar ritsmíðar, er birst hafa í blöð- um vorum nú um hríð, hafa vakið eins mikla athygli og „Ahyggjuefni" Guðm. á Sandi í „ísaf." í febr. þ. á. Og hefir sá kafli þeirra, er beinist að kvenfólkinu íslenzka, vakið megna gremju og fyrir- litningu flestra hugsandi manna, eins og eðlilegt er. Merkilegt er það, að varla nokkur rödd frá hálfu kvenna hefir látið til sín þeyra í þá átt, að hrinda þeim óhróðri Jónatan Porsteinsson, kaupm., Ilúsgagnaverslun. Laugaveg 31. Telefón 64. öfugum til baka, er Guðm. ber þar að heiðri þeirra. Og þótt hann kunni að vera vær og viðfeldinn, svefnhöfginn, sem hvfla virðist yfir hugum ísl. kvenna, sem stendur, þá getur mér naumast komið til hugar sú dul, að kvenfólkið ekki sjái brýna skyldu og nauðsyn, að standa á verði, þegar ó- hlutvandir menn, fullir hroka og mikil- mensku, hlaða valkesti óhróðurs og ill- kvitni að sæmd þeirra og virðingu. Kvenþjóð Islands er ekki svo köld og kærulaus, að hún geti tekið því með jafnaðargeði, þegar ausið er á hana brigslum og svfvirðingarorðum, og það fullyrt, að helmingur hennar, ef því er að skifta, liggi fallinn fyrir útlending’- um, að hún hjóði sig hverjnm sem hafa vill, leigi sig út og seiji sæmd sina er- lcndum durguin og öðrum verri lýð. Svona er málverkið, sem Guðm. dreg- ur upp af kvenfólkinu ísienzka — svart og sóðalegt. Getur það slegið þögninni við því, að Guðm. á Sandi verzliQ) með scemd þess á þennan hátt í víðlesnu blaði, þar sem það svo stendur eítir berskjaldað og brennimerkt fyrir saurlifnað og svívirði- legt háttalag? Eg þarf auðvitað ekki að efast um svarið! Hver maður, karl og kona, sem heil- brigða lyndiseinkunn hefir, hlýtur að sjá, að þessar ásakanir Guðm. eru svo vit- firringslega djarfar og andstyggilegar, að enginn, nema hann, skáldið(!) hefði getað verið þektur fyrir að bera slíkt á borð fyrir alþjóð Islands. Og þá er það ekki síður eftirtekta- vert, að blað, sem telur sig í flokki hinna betri, skyldi geta verið þekt fyrir að selja slfkan óþverra lesendum sínum, athugasemdalausan. Og aldrei verður Guðm. Friðjónsson öfundsverður af því, að skafa burt þá skollarún, sem hann hefir meitlað allri hinni ísl. þjóð með þessum kafla á- hyggjuefna sinna. Eg fyrir mitt leyti get ekki álitið það Jóhann Ármann Jónasson, úrsmiöur, Laugaveg 12. Telefón 112. neitt sérlega undarlegt, þótt útlendir durgar, sem hingað hafa flægst, — og ef til vill aldrei hafa átt neitt siðprýðis- lögmál — hafi sýnt sig í því, að vilja særa heiður kvenna hér á landi, þar sem þeir í átthögum sfnum erlendis hafa ef til vill vaðið innan um vændis- konur, er gera sér það að atvinnu, að ljá sig fyrir nokkra skildinga. En það álft eg undursamlegra, að vér Islendingar skulum eiga svo hræmulega durga innan þjóðfélags vors, er leyfa sér að sökkva sæmd þjóðarinnar ofan í sorpgryQu svívirðunnar, með því að setja helming kvenþjóðarinnar ísl. á bekk með versta óskírlífis-illþýði stórborganna, — iiann er meira en meðal-durgur sá mað- ur, sem mót betri vitund smánar svo þjóð sína. Því miður er ekki hægt að neita því, að meðal kvenþjóðarinnarísl. erutó'kon- ur, sem hafa ilt orð á sér fyrir lausung og ósiðsemi, ef þvf er að skifta. En sem betur fer, eru þær svo mörgum sinnum rniklu fleiri liinar, sem gæta sóma síns og virðingar. Fullyrðing Guðm. um það, að helm- ingur ísl. kvenna meti ekki virðingu sína og skírlffi meir en duggarasokk, er blátt áfram gífuryrði, sem hann setur fram, án minstu sönnunar, — skákandi vitanlega 1 þvl skjóli, að hann megi vel mæla slfkt, því hvorttveggja sé jafn ómögulegt: að láta hann standa reikingskap á þvf, né heldur gerlegt fyrir kvenþjóðina að sanna, að það sé lygi. Guðm. hefir verið nógu vænn sjálfum sér, að gera sér grein fyrir þessu, er hann reit grein sína. En mér er spurn: Hver er ástæðan til þess, að Guðm. veitist að kvenþjóðinni á þennan hátt? Hvað getur hann átt henni varhent? Má vera, að hann hafi orðið fyrir ein- hverjum sárum vonbrigðum í „elskunn- ar akri“ og þess vegna þurft að svala sér svona rösklega(l), — það her stund- um við, að menn taka upp á því, að bera last á alt og alla, þegar tilfinning-

x

Þjóðhvellur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðhvellur
https://timarit.is/publication/222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.