Þjóðhvellur - 21.09.1907, Qupperneq 1

Þjóðhvellur - 21.09.1907, Qupperneq 1
ÞJÓÐHVELLUR BLAÐ TIL SIvEMTUNAR, FRÓÐLEIKS OG ALVARLEGRA ATHUGANA Nr. 14 REYKJAYÍK, 21. SEPT. 1907. I, J. íirsij. Jóhann Ármann Jónasson, úrsmiður, Laugaveg 12._______________________Telefón 112. Kaupmenn og alþýða. Dýrir tímar. Um þessar mundir er mjög um pað talað hér í Vik, hvernig á því standi að hinar ýmsu nauðsynjar, er menn þurfa sér til framfærslu, hækki nú svo ótt i verði. Niðurstaðan hljóðar á ýmsan veg, og verður hjá allflestum sú, að eðlilegar orsakir liggi þó ekki til grundvallar. Á dögunum hækkuðu öll brauðgerð- arhúsin hér vöru sína alt í einu svo geypilega, að býsn þóttu. Menn höfðu engan grun um ástæðuna, því mjöl og annað verkefni bakara haíði ekki hækk- að á markaðinum ytra. Hér gat því varla verið um annað, en samtök ein að ræða — gjörræði gagnvart alþýðu manna. Kolakaupmenn hér hafa hækkað svo verð á kolum, að allur fjöldinn fær þau ekki undir 5 kr. i smákaupum. Pótt þessi hækkun sé sögð stafa af hærra verði ytra, og aukinni eftirspurn liér, — sem aðallega mun vera fólgin í trollarastraumi þeim, sem hingað er farinn að sækja kolaföng sín við og við — þá er engin sönnun fyrir því, að hér geti ekki lika verið um athuga- verð samtök að ræða. — Að minsta kosti er sjálfsagt að ganga út frá því. Allir vita um steinoliuna. Hún hefir hækkað svo úr hófi fram, að meðal kaupmanna er hún ekki fáanleg fyrir minna en 25 til 30 kr. tn. — 5—10 kr. dýrari en í fyrra. — Eins og kunnugt er, á þessi hækkun rót sín að rekja til þess, að kaupmenn hér hafa látið ameríska miljónamæringin Rockefeller, hefta sig — fengið honum í hendur alla olíuverslunina og þar með sett eðlileg viöskifti i fjötra. Sem vonlegt er, þykja þetta alt ann- að en frjálslegir ijörkippir hjá reyk- Jónatan Porsteinsson, kaupm., Húsgagnaverslun. Laugaveg 31. Telefón 64, víkskum kaupmönnum, og anda þeir þvi fúlt á ahnenning á þessum tímum. Pykist hann sjá svarta skýslakka renna upp á íslenskan viðskiftahiminn, sem spái illu einu i framtíðinni. Menn eru smeikir um það, og þykjast þess full- vissir, að úr þvi að ísl. kaupm. í Reykja- vik hafa á þessu sumri látið útlent auðvald leggja hespu að hálsi sér, að því er frjálsa og eðlilega verslun á olíu snertir, þá muni þess mjög skamt að bíða, að ýmsar fleiri vörutegundir fylgi á eftir. Petta er eðlileg hugsun. Pví hvar sem auðkýflngnum hefir tekist að leggja undir sig einhvern lið viðskiftalifsins —- hefir tekist að bregða snörunni og fengið endann í sínar hendur, heflr hann ekki þurft annað en að kippa í lítilsháttar til þess að koma að nýjum einokunarbrellum, — og þar sem snar- an heflr legið að hálsi kaupmanns eða kaupmanna, þá þekkja þeir býsna vel sársaukann undan átakinu, — kaup- maðurinn hefir fallið til jarðar —sagt já og amen og stunið undan ijötran- um. — Pegar svo er komið er hann ekki frjáls kaupmaður lengur, sem verð- skuldar traust almennings, hann er viljalaust verkfæri, er nauðugur viljug- ur verður að hneyja sig og beyja und- an okurvaldi auðvaldans. — Pessi leikur er alkunnur i heiminum að vísu, en óþektur á okkar landi fyr en nú að tjaldið er dregið upp og fyrsti þáttur leikinn. Rockefeller hinn ameríski er fyrsta persónan, danskur umboðsmað- ur hans önnur og ísl. kaupmenn nr. 3 á leiksviðinu. — Pannig eru nú skipin gerð og þvi engin undur, þótt mörg- um sé þungt í huga. Almenningur verður því að hafa ó- bilugt auga til þess nú strax að sjá, að hér er verið aö reyna að hefja nýtt einokunartímabil, — og að það er á hansvaldi, almennings, hvort hann vill sæta því eða ekki. — Eina ráðið til þess, að verjast þess- C. & L. Lárusson, Laugaveg, 1, Reykjavík. Póstliólf A. 31. Telefón 10. um ófögnuði eru samtökín — heppileg samvinna, er til sé stofnað með ráði vitrustu manna, er verkamanna- og iðnaðarflokkarnir hér eiga til. — En ef slík ráéli eiga að geta komið að not- um, verða allir þátttakendur í slíkum samtökum að standa sem einn maður, með áreiðanleik í orði og verki, forð- ast öll fals- eða l'agurgala-bráðabyrgða- loforð frá hendi þess, er vaflnn er tjóðurbandi þúsundanna. Án þessa, er ekkert hægt að gera fjöldanum til bjargar. Nú undanfarið bafa menn ekki stað- ið þegjandi um þetta mál; þeir hafa rætt það sín á milli á ýmsan veg og spurt hvern annan: »Hvað á að gera?« Verkamenn og iðnaðarmenn ýmsir hafa haldið fundi og valið fulltrúa til þess að ihuga hvað gera eigi. Sú full- trúanefnd heflr nú látið uppi álit sitt opinberlega og gert almenningi þar með kunnugt, hvað hagkvæmast sé í þetta sinn, eins og málið liorflr nú við. Mikill fjöldi manna heflr fallist á til- lögur nefndarinnar og haflð kaup á kolum og steinoliu, án minsta fulltingis kaupmanna hér, og er það þýðingar- vert spor og mikils vísir, ef það tekst. Og þótt þau viðskifti í þetta sinn verði hvorki eins stórfeld né hagkvæm eins og verið gætu, ef bráðari bugur hefði verið undinn að málinu, þá er víst, að alvarleg hreifing, sem hlýtur að lifa og dafna, er lcomin á það, og samtök hafin gegn því, að kaupmenn kúgi alþýðu til þess að borga lífsnytjar sínar hærra verði en sanngirni krefur. Og sannarlega er kominn tími til þess, að bæði kaupmenn og fleiri þreiíi á því, að alþýða manna er ekki dauð úr öllum æðum, þurfa að finna, að hún hvorki vill né þarf eðborgaþeim lífsnauðsynjar sinar með blóði ör- byrgðar sinnar né fátæktar. — Sátími er horfinn, og getur naumast runnið á »Þjóðhvell« geta menn fengið keyptan í Söluturninum á Lækjartorgi. — Eintakið á 10 a,

x

Þjóðhvellur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðhvellur
https://timarit.is/publication/222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.