Þjóðhvellur - 01.06.1908, Page 4
88
Þjöðhvellur
til staðið í þeirri meiningu, að enginn
fullorðinn náungi á voru landi væri svo
snildarlega af guði gerður, að vita ekk-
ert um annað eins og það, sem ég nú
hef minst á við yður-------. En svo ég
víki að öðru: Þér hafið náttúrlega heyrt
getið um blöð, sem heita Þjóðólfur og
ísafold?
Sá aðk.: Jú; lítilsháttar. ísafold hef
ég að vísu aldrei séð, en í réttunum í
fyrra haust heyrði ég hreppstjóra, er þar
var staddur, lesa upp óskilafjárauglýs-
inga-runu frá árinu áður, og hafði ég og
fleiri mestu unun af; sögðu nærstaddir,
að auglýsing þessi væri lesin úr ísafold.
— En Þjóðólf hef ég heyrt nefndan, en
samt ekki séð hann, — hans var getið
í sambandi við neðanmálssögu, voða-
lega langa, er byrjaði fyrir 5 árum síð-
an, og er ekki nærri, nærri búin enn.
Stúlka í næstu sveit við mína, sem er
mjög sólgin í sögur, gat um þetta við
mig. En að öðru leyti er mér ókunn-
ugt um þessi blöð.
Víkv.: Jæja—jeghef svoekkitíma til
• að tefja yður lengur í þetta sinn. Ég
hef öðlast fróðleik af þessum viðræðum
okkar, er mér var hulinn áður. Þér far-
ið nærri um, hver hann muni vera. En
úr því þér eruð nú á ferðinni, vildi ég
ráða yður til, að skrifa yður fyrir ein
hverju blaði, t. d. Þjóðólfi, ísafold, eða
hverju, sem yður sýnist. Ég þykist viss
um, að ekki óskýrari maður en þér er-
uð í raun og veru, munuð kannske hafa
eitthvert gagn og gaman af, að kynnast
einhverju því, sem nú er að gerast með-
al landsins barna.
Og verið þér nú sæll! Ég tek það
fram enn, að ég hef haft mikla ánægju
af yður — og vona að hitta yður aftur,
ef guð lofar!
1 { œ jar - in olar.
Nýr „ökumaður“.
Það þóttu fyrirbrigði hérna á dög-
unum, þegar Þjóðólfur skýrði frá því, að
Friðrik VIII. hefði tekist ferð á hendur
suður í lönd til að hitta einhvern Jósep
k e i r a r a í Austurríkis. „Það hlýtur að
vera heimsfrægur ökumaður", sögðu
kallarnir, „úr því að kongurinn sjálfur
fer á fund hans“.
Hrópaður niður.
Jónas Guðlaugsson, sem ritstjóri var
um tíma, hröklaðist úr Landvarnarfélag-
inu reykvíska fyrir hálfum mánuði síð-
an. Ástæðan var sú, að hann var hróp-
aður niður, er hann var nýbyrjaður að
flytja tölu, er ekki var í fullri samhljóð-
an við skoðanir allra, er þar voru.
Lengi lifi frjálslyndið!!
Verðlækkun.
Þegar það fréttist hingað umdaginn
að austan, að Jón í Múla væri á m ó t i
sambandslagafrumvarpinu, man ég ekki
betur en að Isaf. mintist á, að hann og
Jón á Egilsstöðum, hefðu fengið fjöl-
menna áskorun frá Sunnmýlingum um,
að bjóða sig frarn til þings, en í mið-
vikudagsblaðinu segir hún, (þegar upp
kemur hið sanna: að Jón er með frum-
varpinu), að hann hugsi til að leita fyrir
sér hjá Sunnmýlingum um þingsetu. —
Þessi samanburður er að eins tekinn hér
til garnans til þess að sýna, hvernig
einn og sami maður, eftir atvikum —
hækkar nú og lækkar í verði á vorurn
pólitiska markaði, er nær dregur kosn-
ingunum.— Do, do og ná, ná.
Pólitisk óhamingja.
„Það er makleg hegning og réttmæt á
heimastjórnarmenn og stjórnina, aðVal-
týr er með frumvarpinu, því fylgi hans
flytur því vondar spár“, sögðu nokkrir
landvarnarmenn á dögunum, áður en
Valtýr kom. En nú hafa sakirnar snú-
ist þannig, að hann er mótmælandi;
svo þessir sömu landvarnarmenn verða
nú að taka þeirri óhamingu, sem af
fylgi hans kann að fljóta, með kristilegri
þögn og langlundargeði.
Skúla-yeislan.
Svo segja kunnugir, að veislukostur
Skúlasamsætisins hafi nú húsnæði í íshús-
inu, það er að segja sá hluti hans, stm
hætta getur leikið á, að í geti slegið. —
Það er því alveg óþarfi fyrir s u m a, að
gleðjast hjartanlega yfir því, að maturinn
hafi allur skemst, þótt Skúli ekki kæmi
með Sterling, eins og við var búist. —
Annars eru það lítil óþægindi sem ein-
hvern stjórnmálaflokkannahendir, að ein-
hver þeirra gleðjist ekki hjartanlega yfir
og kalli það sigur fyrir sig.
ÞJÓÐHV. kostar 10 a. nr., borgast út i hönd.
Abyrgðarm. blaðsins er Hallgr. Benediktss., Berg
staðastr. 19. Heima kl. 3—4 og 8—10 síðd.; veitir
hann viðtöku stuttum og smellnum skrýtlum og ritgerð-
um og kemur þeim til ritstj. blaðsins. A Bergst.str. 19
geta menn fengið blaðið keypt alla tíma dags.
Lögregluþjónarnar
hér kváðu nú gera það að reglubund-
inni vinnu á sunnudögum, að halda vörð
um ýmsar búðir, er áfengisverzlun reka,
til þess að koma 1 veg fyrir, að menn
fari þar inn þá daga til áfengiskaupa.
Veiðar þessar kváðu ganga fjandalega,
og varla koma fyrir, að þeir nái í söku-
dólg, enda lítið um þá að líkindum.
Annars er það stórmerkilegt, að lög-
regluþjónar skuli ekki hafa annað þarf-
ara fyrir stafni, en þennan bölvaðan hjá-
rænuhátt, sem sjálfsagt á rót sína að
rekja til templaraofsjóna, og ímyndana
um brennivfnsberserki, sem ætíð eiga að
vaða brennivínselginn upp í lendar alla
daga jafnt, út og inn um dyrnar hjá
þeim kaupmönnunum Siggeir, Benedikt
og Gunnurunum báðum. — En sé það
meining lögregluþjónanna, að útrýma
áfengiskaupum á helgum dögum, — ef
nokkur eru — verður langsnjallast fyrir
þá að læra fyrst aðferðina, og fara
síðan á fjörur og njósna; þetta bölvað
kák þeirra verður aldrei að liði, — og
flestir skynsamir brennivínsberserkir eru
vísir til að smjúga fram hjá þeim eptir
vild og fara sinna ferða.
,,Heimdallur“.
Svo segja gárungar, að hann eigi að
hafa dvöl hjer við land, þangað til eft-
ir kosningar í haust. — Kjósendur geta
að sjálfsögðu ráðið í, hvað slíkt hefur
að þýða. — En þetta er ekki selt dýrar
en það er keypt.
»Halablámeim«
hef ég aldrei hugsað mér á þessu
landi, en þegar maðurinn fór út af Báru-
búðarfundinum, þessi sem ekki vildi láta
kúgast, og t e y m d i á eftir sér nokkra
s í n a menn, þá flaug mér eitthvað svip-
að í hug. Að minsta kosti er ekki
synd að sega, að slíkur h a 1 i sé ein
tegund »attanfossa«.
Þjóðhv. frá byrjun, 22 blöð, geta
menn fengið keyptan. Verð: 1 kr. 75 a.
Prentsmlðjan Gutenberg.