Þjóðhvellur - 14.11.1908, Page 1

Þjóðhvellur - 14.11.1908, Page 1
ÞJÓÐHVELLUR BLAÐ TIL SIÍEMTUNAR, FRÓÐLEIKS OG ALVARLEGRA ATHUGANA Nr. 24 REYKJAYÍK, 14. NÓV. 1908. I, 4. ársfl. Jóhann Ármann Jónasson, úrsmiður, Laugaveg 12.___________T'elefón 112. Safnaðarfundur var haldinn hér í Bárubúð á laugar- daginn var; var par strjálingur fólks saman kominn, lconur og karlar. A fundinum var það aðallega tvent, sem gert var: sem sé samþykt, að afnema söngsveit þá, er sungið hefur í dóm- kirkjunni undanfarin ár, og svo, að söfnuðurinn kysi sér annan prest í viðbót, með þeim sem nú er, og verða þvi hér eftirleiðis tveir fastir prestar við dómkirkjuna. Verður nú brauð- inu »slegið upp«, sem kallað er, og guðfræðingum vorum gefinn kostur á að sækja um hnossið. — Afnám söng- sveitarinnar hefur vakið hið mesta um- tal og töluverða gremju í bænum, sem vonlegt er, þvi dómkirkjusöngurinn hefur verið rómaður að maklegleikum, og ef til vill átt mestan páttinn í því, að söfnuðurinn hefur ekki tvístrast meir en orðið er, enda hafa margir jafnvel komist svo að orði, að söngur- inn væri hið eina, er tengdi pákirkj- unni, og væri þess valdandi, að peir sæktu hana. Peir sem aðallega töluðu gegn því, að hafa söngflokkinn, með þeirri þókn- un, er hann fór fram á, voru þeir kapparnir Kristján Svíakonsúll og Gísli búfræðingur. Sá fyrnefndi lét sér ekki nægja að mæla gegn söngsveitinni og þóknun þeirri, er hún áskildi sér, ein- ungis með það fyrir augum, að söfn- uðurinn gæti ekki lagt á sig þann út- gjaldaauka, heldur þóknaðist honum að varpa til hennar smánaryrðum að skilnaði, fyrir vel unnið starf, og var það Kristjáni líkt, en auðvitað gersamlega rangt af honum, að hefna sín þannig á söngsveitinni, eða þó öllu heldur kirkjunni, þótt »míssíónin« helti hon- um út úr safnaðarnefndinni siðast, — en lögmál náttúru sinnar hefur hann ekki getað brotíð í þetta sinn, og þvi þótt drengilegra að jafna á söngsveit- inni, með styrk nokkurra sinna manna, Jónatan Porsteinsson, ltaupm., Husgagnaverslun. Laugaveg 31. Telefón 64. með því að afhrópa hana — söfnuðin- um til greinilegrar minkunar. Dómkirkjan, sem fyrirmyndarkirkja, getur ekki verið þekt fyrir annað, en hafa æfðan og viðunanlegan söngflokk í þjónustu sinni, og það sæmir henni engan veginn að taka Pétur og Pál eða hina og aðra óæfða utan af götunni, í það og það skiftið, upp á söngpall sinn, til aðstoðar við messur. Pað væri ekki til fyrirmvndar, heldur greinileg afturför, sem ekki á að viðgangast. Eins og nú standa sakir, stendurfrí- kirkjan miklu framar en dómkirkjan hvað þetta snertir, því hún hefur fasta söngmenn og borgar hverjum 50 kr. um árið, og eru þar þó ekki haldnar nema rúmar 50 messur árið yfir, en dómkirkjan, sem telur yfir hundrað um árið, hefur borgað sínu söngfólki 50—60 kr., hverjum manni, eðatæplega það, ef tillit er tekið til þess.aðsöng- fólkið hefur stundum sjálft orðið að safna fé upp í laun sín, með því að halda söngskemtun; en slíka ómynd hefur frí- kirkjan ekki látið um sig spyrjast. — Af þessu sjá menn, að fríkirkjan hefur staðið miklu framar í þessu efni hing- að til, hvað þá heldur nú, þegar þjóð- kirkjumenn hér hafa nú sparkað i söngflokk sinn, og vísað honum á bug, með fyrirlitningu, eins og raun varð á, á þessum safnaðarfundi. B o r g a r i. Andatrúar-öryggi! Mottó: Hvað þurfum vér nú framar vitnanna við? Hefur ekki andi hins lifanda manns í Bang- árþingi birst þeim á samkomu í Bolungar- vík? Halelúja! Nú er heldur en ekki farinn að fær- ast miðaldabragur á andatrúarhetjurn- ar reykvísku. Eins og sagan segir, að C. & L. Lárusson, Laugaveg, 1, Reykjavík. Póstliólf A. 31. Telefón 10. Tetzel syndakvittunarsali hafi ferð- ast um Suðurlönd, á dögum Leós páfa X., og selt fólki fyrirgefningu syndanna fyrir peninga, eins segir sag- an nú, að tveir andatrúar-berserkir hafi gengið eins og grenjandi ljón um Vesturland, inn á hvern fjörð og vík, og selt aðgang að andasýningum(i) fyrir 5 krónur á nef! Hvort þeir muni vera að öngla saman fé á þennan hátt til þess að reisa nýja og veglega anda- trúarkirkju hér í Vík, líkt og Tetzel gerði til Péturskirkjunnar í Róm, það veit maður ekki, — en eitthvað liggur nú við og eitthvað hlýtur að standa til, úr því farið er að sýna þessi »meistarastykki« hverjum sem hafa vill á Vesturlandi. Og ósennilegt, að þeir séu að »trekkja upp« fátæka, en for- vitna náunga, án þess að hafa ein- hverja »stór-spekúlasjón« i höfðinu. En hví sýna ekki þessir vísindamenn annað eins og þetta hér í Víkinni? Ég hefði haldið, að hér væri þó akurlendi fyrir þessi undraverk, — hér hafa þeir líka svo lengi sáð til ávaxta úr and- anna heimi. Og hví skyldu þeir ekki vilja unna sem flestum Víkverjum þess að sjá og frelsast? Eða eru þeir verri menn en Vestfirðingar? Kosningarnar fóru þó eins hér eins og þar — svo ó- hætt er það þess vegna. — Ekki getur sagan um, hversu margir vestfirskir hafi frelsast á ferðalagi þessara mátt- ugu Messíasa Reykjavíkurbæjar, en fjárhagslega hvað árangurinn hafa orð- ið feikimikill.— En aðalrúsínan í þessu ferðalagi er sú, þar sem segir, að á anda- sýningu í Bolungarvík, haíi þeim birst andi Pórðar alþm. í Hala!, sem sagður var látinn hér á dögunum, en reyndist lygi; — hafi bæði presturinn og mið- illinn staðið stórhrifnir og steinilostn- ir að særing þessari lokinni, og þá er ekki að efast um útlit áhorfendanna. Mér er sem ég sjái augu þeirra Bol- víkinganna, er undrin sáu. En á leið- inni suður, fréttu þeir, presturinn og Afgreiðsla »Þjóðhvells(( er á Bergstaðastræti 19. á

x

Þjóðhvellur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðhvellur
https://timarit.is/publication/222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.