Á morgun - 30.01.1918, Síða 2

Á morgun - 30.01.1918, Síða 2
2 Stefnan er skýr og ákveðin. íhalds- stefnan er ætíð andvíg því, að al- þýðan hafi fullan kosningarrétt. íhaldið vill láta alþýðuna strita, en sjálft ráða. Á stofnfundi »Sjálfstjórnar« hæl- ist einn aðalstofnandinn um, að það félag muni sigra því að þeir eigi peningana og nærfelt öll blöð- in, og peningarnir eigi að ráða. Honum láðist að geta þess, að Al- þýðuflokkurinn víðsvegar í lieim- inum hefir ætíð þurft að berjast gegn þessum beittu vopnum stór- borgaranna, og þó sigrað vegna þess að hann hefir haft það afl, sem sigrar alt, nauðsynina og sannfæringuna.. Hinn nýi bæjarmálaflokkur ber mjög fyrir brjósti í orði fjármál bæjarins eins og allir íhaldsflokkar. Þeir vilja sýna hagsýni í bæjar- málum. Jú, við þekkjum þá hag- sýni. Þeir vilja spara fé til fræðslu alþýðunnar, spara fé til dýrtíðax-- ráðstafana, spara fé til fátækra, spara það að bærinn byggi sæmi- legar íbúðir handa alþýðunni. Þeir vilja koma í veg fgrir að bærinn reki arðvænleg fyrirtæki, því að það geti þeir sjálfir gert, og liirt ágóðann. Þeir vilja leggja slcattana sem jafnast, þ. e. a. s. nokkurn- veginn jafnt á alþýðu og stóreigna- menn. Þau einu útgjöld, sem þeir vilja ekki spara er lögreglueflirlitið til að vernda eignír sínar. Alþýðuflokkui'inn þekkir þessa menn og það að maklegleikum. Við viljum hú sjálfir segja fyrir um sijórn bessa bæjar. Við viljum gera ílest það, sem íhaldsflokkui'- i«n yill ekki, bæta alþýöufiæöslu, hjálpa alþýðu fram úr þessurn hörmungartímum með atvinnubót- um og á annan hátt. Við viljum leggja skattana þannig, að þeir, sem mest græða gjaldi mest. Al- þýðan vill hafa eftii'lit með rekstri allra bæjarfyrirtækja. Það er al- kunnugt að bærinn rekur stóra verzlun algerlega eftirlitslaust af bæjarstjórn. Borgarstjóri og einn eða tveir aðrir menn gera stór innkaup af vörum, ákveða verð á þeim og selja án nokkurs eftirlits bæjarstjórnar. Það er alkunnugt að bæjarverzlunin er mesta okur- verzlun þessa lands. Þelta getur ekki gengið lengur. Bæjarstjórn verður að hafa eftirlit með bæjar- verzluninni og gera hana sem hag- feldasta fyrir almenning. Reykja- vík er þar eftirbátur annara hér- aða landsins. Þannig er um svo fjölmargt. Þessi mál snerta fyrsl og fremst fjölmennustu sléttina, þá sem mest eiga í vök að verjast, alþýðuna. En þegar flokkaskiftingin fer að verða svo skörp milli auðs og vinnu, íhalds og framsóknar, þá vitum vér að fjölmargir frjálslyndir menn í þessum bæ, sem ekki eru í Alþýðuflokknum, munu kjósa okkar lista. Við erum þess vísir að ef við mætutn allir og kjósum á kosningardaginn þá rennur föstu- dagurinn upp yfir bæ, þar sem íhaldið er sigrað og alþijðan rceður. Alþýðukonur. Á morgun á að kjósa fulltrúa í bæjarstjórn Reykjavíkur. Alþýðu- flokkurinn, sá eini flokkur þessa bæjar, sem vinnur ósleitilega að almenningsheill, hefir stilt upp lista með Þorvarði Þorvarðarsyni efst- um. Þegar rætt var um hverju skyldi hafa á lista alþýðuflokksins, var þeirri konu þessa bæjar, er lang kunnugust er kjörum alþýð- unnar, frú Jónínu Jónatansdóttur, boðið efsta sæti á listanum. En frú Jónína aftók það með öllu að gefa kost á sér í bæjarstjórn. Flokkurinn vildi rnjög svo gjarn- an hafa konu á sínum lista, en þó því að eins, að sú kona setn í björi væri þekti mjög vel til kjara aimennings í bænum, til jafns við þá karlmenn er vel kunnugir eru hag bæjarmanna og komið gat til mála að kjósa í bæjarstjórn. Nú heftr broddborgara listinn, Sjálfstjórnarlistinn sett konu í ann- að sætið á lista sínum, B-listaöum. Um þessa konu er fátt að segja. Þess hefir hvergi sést getið að hún hafi nokkurntíma hið allra minsta skift sér af bæjarmálum eða kynt sér kjör almennings. Nú mundi þessarar konu ekki hafa verið frekar minst liér, ef hún hefði ekki sjálf gefið tilefni til þess. Á fundi kvenna 2íi. þ. m. fullyrti hún að engri konu hefði verið boð- ið sæti á öðrum lista en »Sjálf- stjórnar«, og fór hxxn þar með bein ósannindi eins og menn geta séð á því er að framan getur. Með þessu hefir Inga L. Lárus- dóttir, viljað sanna, að »Sjálfstjórn- arfélagið« væri frjálslyndasta félag- ið af þeim er lista koma með til þessara kosningu, hefir liún ætlað með því að vinna sér inn fylgi kvenna og vann svo mikið til þess að hún fór með rangt mál. Þá gat Inga þess, að á engum öðrum lista en »Sjálfstjórnar« hefði hún viljað eiga sæti við þessar lcosningar. Þessi yfirlýsing ungfrú- arinnar er nokkurs virði fyrir al- þýðukonur þessa bæjar. Með þess- um orðum lýsir hún því yfir, að hún telji það lilutverk silt að vinna með »Sjálfstjórn«, »junkara«félag- inu, gegn hagsmunum alþýðu þessa bæjar. Hverri konu er því vorkunn- arlaust, sem vill stuðla að hag al- þýðu, að sjá, að með því að kjósa B-listann vegna þessarar konu, vinnur hún beint á móti því máli er hún vill ljá lið. Eða ællið þér að, það muni ykkur nokkuð happa- drýgra að kjósa konu, sem vinnur á móti ykkur, heldur en karlmann er vinnur fyrir ykkur? Þessi ummæli Ingu L. Lárus- dóttir eru því fráleit. Henni rennur ekki mjög til rifja ójafnaður sá er Sveinn Björnsson, sem er 1. maður á B-listanum, ásamt hinum í kjörstjórninni lxefir framið við fjölda marga kjósendur þessa bæjar, með því að svifta þá ólög- lega kosningarrétti, konur jafnt sem karla. Margir af þeim sem ekki eru búnir að greiða aukaútsvar, eru efnalega illa staddir. Þeirn er því full vorkun á drættinum á greiðsl- unni. En er það i anda »Sjálfstjói’n- ar«, að vorkunsemin ná að eins lil hinna ríku? Sjálfstjórnar liðið flúði á náðir kvenfólksins, þegar þeir sáu að allur þorri karla viidi enga lið- veislu ljá þeim. Nú kemur til kasta kvennfólksins, og þó einkum al- þýðu kvenna, hvort að þær ætla að vera svo lítilþægar að kjósa listann þeirra, að eins vegna þess að kona er á honum, kona sem fyrirfram telur sig eiga að eins heima í auðvaldsfélaginu. Alþýðukonur! Minnist þess hvaða stétt þér heyr- ið til. Gætið þess að fela þeim ein- um fulltrixastörfin, sem þekkir kjör ykkar og vill bæta þau. Farið ekki ekki eftir þvi, sem einhver »junkarinn« (auðvaldssinn- inn) fleyprar. Fylgið eindregið ykkar stétt, al- þýðustéttinni. Forðist að styðja auðvaldslxringinn »Sjálfstjórn«. Góðar konur forðist liið illa. Snertið ekki B-lislann. Kjósið allar A-listann. Hildur. Hart leiknir karlar. Allmargir skipstjórar þessa bæjar, eru orðnir — að minsta kosti í sínum eigin augum — voldugir höfð- ingjar, eftir því, sem það orð ber nú orðið að skilja. Þegar hið nýja félag, »Sjálfstjórn« — »hinn við- brendi grautur«, sem sumir kalla — var stofnað, gekk þessi stétt manna fljótlega í kosningabandalag við þann graut og mun hafa á- litið, að mikið tillit yrði tekið til sín við listasmíði það, sem nú er framkomið frá »Sjá 1 fstjórn« þeirra. En lxvernig fer? Sá maður, sem þeir munu hafa komið sér saman um, kemst ekki á listann, en ann- ar, sem sagt er að hafi þvertekið fyrir að verða í kjöri, hann er sett- ur á listann, en livar? í sæti langt fyrir neðan alla von um sigur, en er þó langskársti nxaðurinn á öll- um lislanum. Sjá nú ekki skipsljórar og þeirra áhangendur, livernig með þá er far- ið? Ef þeir hafa ekki séð það áð- ur, þá getur þeim eigi lengur dulist, hvernig álit hinna áður andstæðu, nú í bili sameinuðu leiðtoga hinna pólitísku flokka er á þeim, sem sé: Af vissum ástæðum hefir nokkrum þessara manna tekist að safna sér talsverðu fé og þar með náð í það vald og það álit, sem fæst með peningum eingöngu; þessir karlar eru flokknum dýrmælir, og verður að halda þeim í {xeirri trú, að þeir skoðist hafa meira manngildi en aðrir sjómenn, en í raun réttri eru þeir ekki hóti belri en aðrir sjó- arar nema vegna aura sinna. Reynslan er nú þegar búin að sýna ofangreint álit hinna fölsku máítarstólpa »Sjálfstjórnar« á þess- ari stétt manna, sem ég þrátt íyrir alt álít langt of góða til að láta nota sig svona. En — hvenær verða menn leiðir á brenda grautnum?!! X. Siimaskiýti pinsetis. Nú hefir alþýðan í Rvík. mist spón xir askinum sínum. Allir vita hve ákafur talsmaður hennar Morg- unblaðsritstjórinn hefir verið. Nú vill hann ekki vera það lengur. Nú skorar lxann á alla sanna al- þýðumenn að troða á sjálfum sér með því að kjósa B-listann. Ekki vantar hollráðin lijá honum bless- uðum. Og hvað olli þessum sinna- skiftum mannsins? Það var nýi sprengingarlistinn, C-listinn. Fin- sen lagði út af lionum í blaðinu í gær. Telur hann listann fyrst í greininni kominn fram frá Sig. Eggerz, en rétt á eftir frá Alþýðu- flokknum. Hvortlveggja er vitan- lega jafnmikil lýgi. Og lýgin er framúrskarandi klaufaleg líka. Ekta Morgunblaðs Iýgi. — Það þykir jafnan bera vott um sekt að verða tvísaga fyrir rétti. Morgunbl. varð tvísaga í lýginni. Ætla flestum verði nxx ekki á að halda, að samviskan sé ekki sem lireinust? Ætli mönn- um delti ekki í hug að ritstj. liafi vitað betur um framkomu C-list- ans en haun lætur? Alþýðumönn- um dettur ekki í hug að saurga lista broddborgaranna með því að kjósa þá. hvorki B-Iislann eða C- listann Annars var hreinasli óþarfi fyrir Finsen að vera að skríða úr sauð- argærunni. Við vissum hvað í gær- unni var. Við höfurn séð úlfseyrun upp úr og »þar er úlfs von, er á eyru sér«. Hann hefir nú greyið, í þessi 4 ár, sem hann liefir verið ritstjóranefna, legið á því lúalagi að skríða á víxl fyrir alþýðu og auðmönnunum. Nú hafa þeir, sem eiga sálina í honum, bannað lion- um að skríða lengur fyrir alþ^'ðu. Nú á að láta hana hlýða með hörku. Þess vegna skorar hann á alþýðu að kyssa á vönd böðla sinna. Hann varar sig ekki á því í fávisku sinni að skriðsdýrseðlið er ekki eins rikt í alþýðu þessa bæjar og í ritstj. Morgunblaðsins. Allir sannir al- þýðumenn þektu Finsen áður, en þeir þekkja hann enn belur nú. Að lokunx ræðst Morgunbl. í greininni með nokkrum orðum á forvígismenn alþýðunnar hér í Rvík. Veit hann ekki mann-greyið að við teljum það að ráðast á þá, sein berjast fyrir okkar málefni, alveg sama og ráðist vœri á okkur. Slíkri árás svarar alþýðan með því að koma á kjörfund og kjósa A-listann. Verkamaður.

x

Á morgun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Á morgun
https://timarit.is/publication/226

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.