Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Page 69

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Page 69
>33 er settur var i ormag’arð; á fýzkalandi var einnig ormatrú, því Gunnar var líka settur í ormagarð, og Fafnir, Miðgarðsormur og 511 ormaheitin í Eddu bera vitni um, að íslendingar vissu um þessa ormatrú, sem gekk um öll Norðurlönd; vegna hennar kölluðu menn skipin „drekau, og vegna hennar var skírður „Ormr- inn langi:‘. — Sverðin voru hvergi eins stór og fögur og á Norðurlöndum, og það er eins og dýrð þeirra og átrúnaðurinn á þeim hljómi langt fram eptir öldunum í gegnum allar sögur, og ef til vill frá enn eldra tíma- bili en þessu; sverðin voru skoðuð sem lifandi verur, gæddar guðlegu eðli; þau voru ekki mannaverk, held- ur dvergasmíði, flutt til mannheima frá andans heimi og gefin mönnunum af tröllum og dvergum, goðum og valkyrjum, eða tekin af draugum og óvættum með hjálp einhverra goðmagna. En þótt þetta sé átrúnað- ur og eintómar hugmyndasögur, þá fela þær í sér verulegan sannleik: drauma um horfna dýrð og um liðna lista-öld — fyrir utan þann hugmyndarlega sann- leik og skáldskap, sem með þeim táknast — og hver veit, nema leifar hafi fundiztaf Ángurvaðli, Dragvandli, Gram og Tyrfingi? — Fyrir utan það, að menn voru haugsettir í skip, voru menn opt grafnir með hestum sínum og hundum, ætíð með vopnum, ogbæði á þess- ari öld (járnöldinni) og eiröldinni voru þjónar eða svein- ar höfðingjanna stundum drepnir og heygðir með herr- •um sínum, eins ogvér vitum af Brynhildarkviðu 2. og Völsungasögu. Bautasteinar og rúnasteinar voru reistir eptir hina dánu og föllnu menn. Ogrynni peninga frá þessari öld finnst einkum á Gotlandi í Eystrasalti, serkneskir og býsantinskir, þjóðverskir og engilsax- neskir, og virðist því sem Gotland hafi verið eitt að- alaðsetur eða samkomustaður hinnar fornu verzlunar og samgangna við austurlönd1. þ>á hófst og samganga ') Worsaae i Aarb. 1872. bls. 423-424.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.