Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Side 7

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Side 7
7 semja bókmentasöguna, hafði jeg engu að síður ekki leyft neinni skoðun að festa rót í huga mjer. Jeg var alveg óháður og raín einasta og fysta hugsun var sú að láta annara víti mjer að varnaði verða; »jeg vil rannsaka kvæðin sjálf, spyrja þau, svo að segja, sjálf um uppruna sinn, kryfja þau til mergjar og vita, hvort þau geta ekki sjálf gefið svar, er við megi hlíta« — svona hugsaði jeg. Eing- inn óhlutdrægur maður getur sagt annað en þetta sje rjett; geti kvæðin ekki sjálf gefið oss leiðbein- íngar, getur ekkert í veröldinni gert það. Það er nú sannleikur, sem er með öllu óhrekj- andi og algildur, að ekkert er meira en skáldskap- ur rigbundið við þá þjóð og það land, sem hann er upp runninn í. I kvæðum kemur ósjálfrátt fram þjóðarandinn, hugsunarhátturinu, og fyst og fremst sú náttúra landsins, sem skáldið hefur haft fyrir augum, frá því hann var borinn, með öllum sínum skörpu einkennum. Jafnvel á vorum tímum, þar sem menn á einu hendíngskasti geta farið land úr landi, sjeð og beyrt svo mart útlent og óþekt, þar sem menn ennfremur geta feingið svo mart útlent inn i sig af blaða lestri og bóka, getur valla nokk- urt skáld rifið sig svo upp úr sínum eigin jarðvegi og rætt upp hjá sjer þær hugmyndir af lífi þvf, sem hann er alinn upp við, að þeim bregði ekki fyrir alveg ósjálfrátt og honum jafnvel óafvitandi í öllum hans kveðskap. Einkum eru náttúrulýsingar eða þótt ekki sje nema nefnt á nafn eitthvað ein- kennilegt lángmerkilegast og óbrigðulast. Taki mað- ur t. d. íslenskan skáldskap frá vorri öld og menn munu finna, að það er rjett, sem hjer er sagt. Jeg gæti fært til óteljandi dæmi frá flestum fsl. skáld- um, sem sýna, að það og það skáldið hlyti að vera

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.