Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 126
12
vill hann gefa yður til heils hugar og hreinnar ást-
ar, til jrndis og eptirlætis og alls góðs vinskapar.
Nu hefir þú vel keypt, tekið mikið gott inn en látið
engan pening út. En þó hann spilli þá sjálfur, er þjer
leggið honum á vald, þá á hann sjálfur að sjer rjett.
að heimta. Nú mun yður leiðast langmælgi mín.
Hafið þjer nú þegið f dag tvo hluti, er dýrastir eru:
gull og mann. Guð láti ykkur að góðu verða. Tak-
ið nú gripina, og geyma látið; njótið vel gulis og
gjafar, sess og sætis, auðs og æru, með yndi og tima,.
sigurs og sóma, heiðurs og hamingju, guðs hylli og
góðra manna vináttu, en mannsins því lengur, sem
hann er dýrra til keyptur en alt annað, en ef nokk-
uð þykir á vanta, þá bætist, þegar sólina dregur að-
sjónum, (og) húmið yfir sængina. Sje nokkuð áfátt
i mínu máli, þá bæti sá um, er betur kann. En
mildur guð og María gleðji oss alla saman. Sitjið
í góðum frið«.
Kristsminni var drukkið síðast, áður en staðið
var upp frá borðum. Það sýnist hafa verið æfa-
forn siður að enda samsæti dagsins með Kristsminnn
Svo var í veizlu þeirri, er Sigurðr Hranason hjelt
Siguiði konungi Jórsalafara. Margir formálar eru til
fyrir Kristsminni. Þetta minni var mjög heilagt, og
því er skorað fast á alla að drekka það ósleitulega,
I Á. M. 685 4to er þessi formáli fyrir
Kristsminni:
Mildur guð og miskunsamur styðji og styrki,
friði og frelsi, verndi og varðveiti kristni sína alla
og kennimenn, fyrst að upphafi páfann að Róma og
alla hans klerka og kardinála, blessaða biskupa og
boðorð kristinna manna, keisara kristninnar og kon-
unga rjetttrúaðra, veraldlega valdsmenn og vini