Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 167
167
Scheving — hann trúi jeg hafi skrifað sig fyrir 6 eður 12
•exempl.--------Ef þið setjið nöfnin okkar framan á titil-
inn, þákref[st] jeg [fiess], að mitt [nafn] sje seinast, þar
þær 2 einustu reglur, sem við getum gengið eptir, eru annað-
hvort Tidsfölge ved Indtrædelsen — og þá er jeg sá seinasti —
eður stafrofsröð, eins og þeir brúka við »Maanedskrift for
Litteratur« — og þá er jeg líka sá seinasti. — — Munið fjrst
og fremst til að sleppa engu frá ykkur, sem þið ekki á éptir
viljið vera kunnir að, og þar næst, að ykkur liggur öllum á
að losast sem fyrst frá Attestats, og sjer í lagi þjer, Brynj-
úlfur — jeg skal reyna til að skaffa þjer jörð í Breiöaból-
staðarsókn, ef þú kemur með Kangárvallasýslu. — —
Jeg hefi verið á hins íslenzka bókmentafjelags fundi í
Keykjavík og sjeð aðgjörðir ykkar hjerna, þær í vor, sem jeg
•ekki hafði heyrt neitt um; — mjer s/nist þið ráða til, að
Gunnlögsen hætti að mæla, en mjer s/nist fjelagið vel hafa
efni til og ekki geta annað en verið áfram um, að hann
haldi því, sem honum hefir verið gefið, hvert sumar sem
hann finnur sig færan að gjöra nokkuö; hver veit hvað
lengi viS höldum Gunnlögsen og landiS er stórt. BlessaSir
ljáið ekki rentukammerinu kort Gunnlögsens; það getur ekki
hrúkað þau, fyrst þau eru svoón/t; sjáið þið ekki, hvað im-
pertinent þeir hafa afslegið okkur hjálpina um að prenta
þau, svo þeir geti reiknað okkur kortin, sem þeir Schell eru
að tína saman eptir eldri kortum og sjálfum Gunnlögsen,
upp á 130,000 rhd. eins og sjókortin og gjört allan okkar
kostnað ón/tan. Reynum okkur heldur til að gjöra þeim
sama bragS og vera búnir að útgefa eitt fjórðungakort af
Gunnlögsens, útdregið af s/slukortunum, áður þeir viti af.
Yidenskahernes Selskab hjálpar fjelaginu okkar til að útgefa
það, og Gunnlögsen gjörir án efa, hvað hann getur, til að
verða búinn með það. Jeg hefi ei getaö talað við hann,
því hann er á mælingum í Rangárvallas/slu. — Ekkert tal-
að um alþing hjer til lands! Das ist die grosze Aufgabe
unserer Zeit! Lifið heilir!