Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 184
184
of lengi skaða á Fjölni, þar sem hann skal vel fæSa mig, ef
jeg er einn mjer, og jeg skal syna ykkur, ef við skiljum
fjelag, aS jeg hefi nóg til að láta í hann, þó ekki njóti jeg
ykkar við.--------
IX.
[Til Jónasar]. Laugarnesi 10. mai 1838.
Elskulegi Jónas! Nú sjerðu hvernig fór: öll brjefin og
sendingarnar, sem jeg hafði ætlað Fjölni urðu eptir af póst-
skipinu. Það var látið fara 3 dögum áður en pósturinn koro
frá okkur eptir tæpa 12 daga, svo að enginn náði í það
austan yfir heiði úr öllum austurs/slunum.------------Þú sjerð,
fyrst svona tókst til með póstskipið, að alt sem jeg hefi ráð-
gjört, viðvíkjandi ritlingum mínum til þessa árs Fjölnis, er
kollkastað; það verður hjeðan af alt að bíða til næsta árs,
og jeg gjöri því enga ráðstöfun fyrir peningum fyr en í
sumar; þó skil jeg handritin eptir hjer og eiga þau að fara
með fyrsta skipi til þín.-------Sra Audres Hjaltalín er hjerna
núna, rjett eins og við eigum von á honum. Hann segir,
[að] enginn þekki tvö síöustu ár [Fjölnis] fyrir vestan. ÞiS
verðið að eiga gott við einhverja kaupmenn þar. Dr. Scheving
er nú aptur afhuga því, að láta lexiconið sitt koma á prent.
Þeir hafa verið að grauta í honum, og Björn Skúlason er
ekki lagaður til að redigera. Jeg skal samt ekki hætta að
svo búnu að koma þessu áfram, heldur leitast við að útvega.
einhvem, ef norræna fjelagiö gefur peningana til verksins.
Það verðið þið að útvega, því eg veit ekki hvað sra Þor-
steinn hefir gjört í því eptir aftali okkar í sumar, sem þú
heyrðir á.
X.
rTil Jónasar]. Breitabólstað 3. ág. 1838t
Elskulegi Jónas minn! Með seinustu skipunum fjekk
jeg brjef frá þjer, það fyrsta frá Khöfn, sem raunar var
afargott og skemtilegt og fræddi mig um flest alt það, sem
mig helzt langaði til að vita eitthvað um; jeg þakka þjer
það þess vegna ástsamlega.-------------Mjer líka vel aðgjörðir