Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 192
'82
Yegna þess að jeg er svona vesall, treystist jeg ekki til
að taka lectoratið, þó jeg gæti fengið það, því helzt er von,
að lífið gæti tollað í mjer, meðan jeg er hjerna, því jeg get
hjer lifað eins og mjer er hægast og bezt á við mig, enda
uni jeg hjer í bezta máta hag mínum, og get því ekki breytt
nema til hins verra. Þetta hefir nú umbreytt öllum plön-
um mínum, því að þessu á nú að búa, og þykir mjer mál
-að fara að koma einhverju í lag. Jeg hafði helzt hugsað
-að verka til þess með tímariti, sem jeg og við fjelagar
skyldum forleggja, þegar við værum komnir saman og seztir
á laggirnar hjema heima og þess vegna hefi jeg hingað til
ekki átt neinn hlut að því, að þess konar tímarit kæmi á
gang í stað Sunnanpóstsins. Nú þykir mjer ekki lengur
mega svo búið vera, því meinlaust frjettarit þurfum við að
eiga, sem kæmi út quartaliter; því er ekki ofaukið, þó Fjöln-
ir sje öðru megin, og slík rit gætu einmitt verið hvort öðru
til styrktar. Jeg rjeði því af núna á dögunum að bjóða Sekre-
teranum að forleggja þetta rit — einn árgang fyrir það
fyrsta — nú frá nyári, sem verða mundi í hæsta lagi 24
arkir í 4 heptum og stóru broti, og hjet hann að gefa 10
dali í hónórar fyrir örkina, sem jeg antók. Jeg hefi tekizt
á hendur að kasta upp formálanum og ætla að reyna til að
laga þetta blað í sumu að efninu til, eins og jeg vildi hafa
Fjölni, til að gjöra hann útgengilegri, en þið hafið altaf
hamlað. Hjer hefi jeg hjer um bil æðstu völdin, þó jeg geti
ekki beitt þeim nærri eins og með þarf, eins og jeg er við
kominn. Blaðið stendur að vísu ekki lengur en jeg er í því,
•en það getur verið, [að] það standi samt ekki árinu lengur,
því alt er komið undir, að forleggjarinn verði skaðlaus, en
aðrir geta ekki forlagt, eins og nú er ástatt. Þú getur meðal ann-
ars nærri, hvernig málið verði, þar sem við erum allir: jeg,
assessor Johnsen með löggjöfina, Sveinbjörnsen með dómana,
Melsteð með Relation af aðgjörðum þeirra í fyrra í commissi-
óninni, Magnús Hákonarson með ýmislegan samtíning úr blöð-
um etc.; ef Jónas verður hjer í Iteykjavík í vetur, tek jeg
hann inn í fjelagið.-------