Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Blaðsíða 12

Eimreiðin - 01.01.1896, Blaðsíða 12
»Þvf þaö er einmitt hiö einkennilega, og svo að kalla dæmalausa, viö þetta ástand, að hin sjerstaklegu mál sjálf, sem hjer koma til greina, og löggjöfin um þau sjerstaklega, eru rikisþinginu óviökomandi, þegar ekki er litið til hinnar fjár- hagslegu hliðar. Þau heyra öll, eptir því sem hingað til hefir við gengizt, undir ráðgjafaratkvæði alþingis, og þegar alþingi hefir sagt álit sitt um þau, er það konungur, sem hefir vald d aö auglýsa eöa gefa út fyrirskipanir, innan þeirra tak- marka, sem ákveðin eru í alþingis-tilskipuninni og öðrum ákvörðunum, sem þar til heyra, fyrir hiö sjerstaklega islenzka löggjafarsviö.« Það er þannig viðurkennt jafnvel af þeim ráðherra, sem kom stöðulögunum á framfæri, að þessi lög hafi inni að halda ákvæði um málefni, sem hafi verið ríkisþinginu óviðkomandi. Og þegar nú þessu er þannig háttað, hvernig getur þá það atvik, að ríkis- þingið með því að samþykkja lagaákvæði, er snertu stjórnarskipun Islands, hefur stigið feti framar en það var um komið, haft nokkra rjettarþýðingu gagnvart íslandi? Nei, lögin eru að því leyti, sem þau eru samþykkt af ríkisþinginu, einungis bindandi fyrir Dan- mörku, en fyrir Island hefur samþykki ríkisþingsins — þegar fjár- hagsákvæðin eru frá skilin — alls enga þýðingu. Fyrir ísland eru lögin einungis bindandi að þvi leyti, sem þau eru gefin af hinum einvalda konungi, því þegar þau vóru gefin út, var hið íslenzka löggjafarvald í höndum hans eins. Þessi skoðun, að lögin, að því leyti sem þau eru samþykkt af ríkisþinginu, væru einungis bindandi fyrir Danmörku, kom líka þegar fram við umræðurnar á fólksþinginu hjá Dr. Winther, án þess að nokkur hreyfði mótmælum gegn henni. A þingfundi ii. nóv. farast honum þannig orð: »í 7. gr. er kveðið svo að orði: »lög þessi öðlast gildi 1. dag aprílmánaðar 1871«. Jeg hugsa mjer, að þessi ákvörðun geti orðið orsök til mótmæla af hálfu íslendinga, að þeir nefnilega kunni að halda, að engin lög, sem snerta ísland, eigi að geta orðið gildandi fyrri en þau hafi verið lögð fyrir alþingi; en það er ómögulegt, að lög þessi geti orðið lögð fyrir alþingi á íslandi fyrir 1. apríl 1871. Hjer vil jeg þó einnig halda því fram, að ákvörðun þessi hafi fulla heimild, því hún þýðir, að lög þessi gilda milli hinnar dönsku stjórnar og hins danska ríkisþings þ. e.fyrir Danmörku; ,en því næst gilda þau og að nokkru leyti fyrir ísland, sem sje aÖ pvi leyti, aö Islendingar geta ekki vœnzt eöa krafizt heerra tillags til sinna sjerstaklegu útgjalda.t Menn geta af þessu sjeð, að sú skoðun, sem jeg hefi haldið fram hjer í kveld, er engin ný skoðun, sem jeg eða íslendingar yfir höfuð hafi fundið upp á. Hún hefur þegar komið fram við umræðurnar um lögin sjálf á hinu danska fólksþingi og verið þar sett fram af einum af fulltrúum hins danska höfuðstaðar (Kaup- mannahafnar). Jeg sný mjer þá að stjórnarskránni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.