Eimreiðin - 01.01.1896, Blaðsíða 17
17
sannarlega ekki hægt að saka þessa nefnd um það, að hún hafi
viljað sýna allt of mikla tilslökun gagnvart kröfum Islendinga.
Þessi orð nefndarinnar hljóða svo:
»Aðferð þessi (3: úrskurður í ríkisráðinu) verður líkast til viðhöfð í öllum
íslenzkum málum, sem nokkuð kveður að, en stjórnskipulega nauðsynleg (kon-
stitutionelt nodvendig) er hún því að eins, að málið sje þannig vaxið, sem áður
var á vikið (3: að íslenzkt mál snerti jafnframt danskt rjettarfar).«
Já, sá spádómur nefndarinnar, að þessari aðferð mundi verða
beitt við öll íslenzk mál, sem nokkuð kvæði að, hefur sannarlega
ræzt; en eins og áður var á vikið, þá er engin lagaheimild fyrir
þeirri aðferð í neinum lögum, sem hafa gildi á Islandi.
Mjer getur þannig ekki fundizt, að ástæður stjórnarinnar fyrir
að neita endurskoðunarfrumvarpi alþingis um samþykki sitt sjeu
á góðum rökum byggðar. Annað mál er það, hvort skipulag það,
sem farið er fram á í frumvarpinu, verði af öðrum ástæðum að
álitast heppilegt eða æskilegt sem stendur eða eigi, þegar litið er
til þess, hvernig nú í raun og veru er á statt á Islandi. Og að
því er þetta snertir, er jeg á annari skoðun en meiri hluti landa
minna. Jeg er þeim samdóma um það, að skipulagi því, sem nú
er, verður að breyta, en er um það er að ræða, hvernig eigi
að breyta því, þá held jeg mína leið fyrir mig.
Mín skoðun er sú, að breytingin ætti að vera fólgin í því,
að skipaður sje sjerstakur ráðgjafi fyrir ísland, er sje óháöur ríkis-
ráðinu í hinum sjerstöku málefnum landsins og beri ábyrgð fyrir
alþingi á sjerhverri stjórnarathöfn. Enn fremur að þessi ráðgjafi sje
íslendingur, er eigi sjálfur sæti á alþingi og semji við það.
Þetta er að minni skoðun nóg; en þetta er líka nauðsynlegt.
Skipulag það, sem nú er, er, auk þess að það er mjög særandi
fyrir þjóðartilfinning Islendinga, afaróheppilegt fyrir löggjafarstarf
landsins og þar af leiðandi fyrir framfarir þess yfir höfuð bæði í
andlegu og efnalegu tilliti. Jeg skal nú ekki reyna að sýna þetta
og sanna í einstökum atriðum með því að fara að þylja upp synda-
registur stjórnarinnar, því til þess mundi ganga allt of langur
tími, enda var sá heldur ekki tilgangurinn með ræðu minni hjer
í kveld. En jeg ætla þó að reyira að gera ykkur þetta skiljanlegt
með fáeinum orðum, og held að þetta geti helzt orðið með dæmi,
sem þið munuð allir skilja.
Jeg ætla þá að biðja ykkur, herrar mínir, að hugsa ykkur, að
líkt væri á statt fyrir Danmörku eins og nú er fyrir Islandi. Setj-
2