Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Qupperneq 3

Eimreiðin - 01.01.1898, Qupperneq 3
æíi mín öll önnur, ef jeg hefði lært að stjórna geði nhnu. Anna sagði í fyrradag, að jeg væri svo skapillur, að ómögulegt væri að eiga við mig, og svo væri jeg sífullur.« — »Jæja,« sagði hann og tók vínflösku úr vasa sínum og þeytti henni niður í grjótið, »ekki skalt þú framar gera mig að djöfli, eða koma mjer til að vinna fleiri ódáðaverkin. Og — hvað ætli liggi nú næst fyrir rnjer? Sjálf- sagt að jeg verð tekinn fastur, dreginn fyrir sýslumann og dæmd- ur sekur, því glæpir dyljast aldrei. Og — hvað svo? Fangelsi, eða hvað? Það afsakar mig ekki neitt, þó jeg segi, að jeg hafi verið viti mínu fjær af ölæði, það er lika óvíst, hvort jeg hefi verið það, því jeg man vel eptir öllu, sem gerðist. Það má nærri geta, hvað úr því verður. Jeg braut minna, þegar jeg sló búðar- mennina fyrir að hræða Mariu gömlu, og lá við að jeg sætti fang- elsi fyrir. Það er eins og jeg sje fæddur til að vera öllum til ills. það er enginn vafi á því, að æfi mín endar með skelfingu, og það er betra að það verði nú en síðar. Fóstra mín sagði mjer, að jeg væri ekki nema til ills á heimilinu, og úr báðum kaup- stöðunum hefi jeg verið rekinn fyrir drykkjuslark og óreglu. Og - þó fannst mjer jeg hafa löngun til að vera heiðarlegur maður, og jeg var búinn að einsetja mjer að verða það, ef jeg næði í Önnu. En svo spilltu vondir menn og djöfullinn þvi. Hún sagði, að það væri ekkert vit í, að bindast öðrum eins manni og jeg væri, og svo rauf hún öll sín heit við mig, en lofaðist konum. Hann er lika ríkur, og gullið kaupir allt, jafnvel mannssálina. Og svo verð jeg, sveitarómaginn, dáðleysinginn, fyllisvínið að lúta í lægra haldi fyrir honum. »Æfi mín er ekkert nema strið, endalaust stríð við sjálfan mig og heiminn. Og allt af bið jeg ósigur, hvort heldur jeg berst við sjálfan mig eða aðra. Og svo þetta síðasta — og versta. Nú er allt farið. Mannorðið farið, — hafi það nokkurntíma við mig loð- að. Vinirnir farnir. Stúlkan töpuð. Öll von um atvinnu og heið- arlegt lif á enda. Því ætli jeg sje að reyna til að lengja þetta vesæla og tilgangslausa líf? Margur maðurinn hefir stytt sjer aldur. Hvers- vegna geri jeg það ekki líka? Jeg geri þá tvennt í einu: Losa sjálfan mig úr klóm mannanna og losa mennina við slíkt óarga- dýr, sem jeg er.« Hann stóð nú upp, skjálfandi af kulda, og gekk ofan hlíðina og niður að sjónum. Þar settist hann niður á blágrýtis-klöpp, sem sjórinn skall upp að, og hjelt þar áfram hugleiðingum sínum. i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.