Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Page 8

Eimreiðin - 01.01.1898, Page 8
góðum áhrifum í æsku, og síðan, þegar hann vitkast betur, hafa stöðugt gát á sjálfum sjer, ef hið illa í eðli hans á ekki að ná yfir- hönd, þá má nærri geta, hvernig munaðarleysinginn varð, sem eng- inn aumkvaðist yfir nje leiðbeindi, og sem auk þess sá þess daglega vott, að hann væri öðrum til leiðinda og þyngsla. Það var aðeins ein lifandi vera, sem hann kærði sig nokkuð um; það var fóstur- systir hans og jafnaldra, sem hjet Anna, dóttir bóndans í Dal. Hún var ljómandi falleg stúlka, með blá augu og kringluleitt, bjart og hreint andlit, og nettar og mjúkar hendur. Þau um- gengust hvort annað, og enginn fjekkst um það, og sízt af öllu kom Dalbóndanum til hugar, að hann Arni, sveitarómaginn, mundi dirfast að fella ástarhug til dóttur hans, — ríkustu og fallegustu stúlkunnar í firðinum. Árni gerði sjer heldur enga von um að fá hana, og reyndi með öllu rnóti að kæfa niður ást þá, er hann bar til hennar. En hann gat það ekki, og honum fannst lífið fara að verða óbærilegt. Svo reyndi hann að gleyrna hörmum sínurn í svölunarlind Bakkusar, og vínið, sem venjulega glæðir allt hið illa í eðli mannsins, hafði þau áhrif á hann, að hann varð svo illur og hamslaus, að enginn gat við hann ráðið. Svo leið timinn þangað til þau voru átján ára. Þá um sumarið í sláttar- byrjun vildi það til, að smalinn varð veikur. Anna bauðst til að sitja hjá ánum um daginn, svo vinnumenn föður hennar mættu vera við sláttinn. Hún fór. En þegar komið var fram yfir nón, sortnaði í lopti og laust á svartaþoku. »Árni, þú;« sagði gamli maðurinn — það var venja hans að segja »þú« þegar hann ávarpaði einhvern. »Farðu á móti henni Önnu og hjálpaðu henni heim með ærnar. Það er sennilegt að hún sitji hjá þeim upp’ á Fagrahjalla.« Árni ljet ekki segja sjer þetta tvisvar. Hann hefði farið, þó verið hefði svartnættis rnyrkur. Hann fór að leita að henni og fann hana loks skammt frá Fagrahjalla. Þar stóð hún uppgefin og ráðalaus yfir ánum. Þær vildu hvergi fara, vildu bara liggja og jórtra. Hann sendi hundana af stað, og gekk sjálfur svo rösklega að verki, að þær urðu að gera sjer að góðu að lötra af stað heim- leiðis. Þau Anna gengu hægt á eptir þeim, og bæði þögðu, þang- að til hann loks sagði: »Anna, þú ert uppgefin; viltu ekki lofa mjer að leiða þig? Hún svaraði engu en rjetti honum höndina, og svo hjeldu þau áfram. Hann var í vakandi draumi og rankaði fyrst við sjer, þegar hann í þokunni sá rofa fyrir bænum 1 Dal.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.