Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 14

Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 14
14 þeirra, nema tunglið, og það var jafn þögult og fjallstindurinn. Hann leit aptur á Einar, og sýndist andlit hans fölvara en áður. Svo þoldi hann ekki að standa yfir honum og hljóp af stað, áleiðis til fjalls. Honum fannst einhver vera á hælum sjer, en hann þorði ekki að líta við. Svo sýndist honum svört þúst vera þar á svig við sig, og honum duttu í hug apturgöngur og forynjur. Og 'át úr því fór hann að hugsa um, hvort hinn dáni — ef hann væri dauður — mundi ganga aptur og fylgja sjer og ætt sinni í niunda lið. —--------- Loks fleygði hann sjer niður við stein einn, og þar hittum vjer hann í upphafi sögunnar. III. Finis coronat opus,« Síðan eru liðin fjögur ár og hann er nú kominn til Ameríku. »Jeg geri mjer enga von um, að þú fyrirgefir mjer,« hafði hann sagt við Einar, þegar þeir skildu, »en jeg ætla að biðja þig að hlífa mjer við því að komast undir mannahendur, þvi það hefir þau einu áhrif á mig, að gera mig að illmenni fyrir fullt og allt. Jeg ætla að fara burt — eitthvað út í heiminn, og þú mátt eiga Önnu og njóta hennar vel og lengi mín vegna.« Og Einar var þá svo mannlundaður, að hann varð við bón hans. Svo kom Árni sjer í norskt fiskiskip og fór utan um haustið, og á áliðnum vetri komst hann til Ameríku. Enginn harmaði brottför hans, nema gamla María. Þegar hún heyrði aðra hall- mæla honum, þá hjelt hún ætíð fram þeirri skoðun, að það hefðu þó verið góðar taugar í honum. Hann hafði ekki sótt auð nje upphefð til Ameríku fremur en flestir aðrir. Þó hafði honum yfirleitt liðið þar betur en á Islandi. Hann gekk sæmilega til fara, og borgaði fæði sitt skil- víslega, og það er meira en hægt er að segja um alla í Ameríku. Hann var sparsamur og reglumaður, og síðan hina minnisstæðu nótt hafði ekki víndropi komið inn fýrir varir hans. Hann átti nú heima í Winnipeg, og hafði þar stöðuga vinnu við kolamokst- ur hjá járnbrautartjelagi einu. Hann vissi, að Einar og Anna voru gipt fyrir löngu, og líka kominn vestur til Winnipeg fyrir einu ári siðan. Einhver hatði sagt honum, að Einar væri óreglumað-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.