Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 15

Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 15
ur; drykki út hvert oent, sem hann kæmist yfir og væri hvergi vel liðinn. Svo var það eitt kveld í júlímánuði, að Arni gekk heim til sin að loknu dagsverki. Leið hans lá eptir tái fram með járn- brautinni. Fólksstraumurinn var afarmikill, fram og aptur. Það var ekki nóg með það, að táin væru troðfull, heldur gengu líka margir eptir brautinni; enda er það einn af ósiðum Ameríku- manna, að ganga í makindum eptir járnbrautunum, og víkja ekki utaf, fyrri en lestin er nærri komin á hæla þeim. En enginn virtist veita því eptirtekt, að járnbrautarlest kom brunandi að norðaustan. Hún linaði ferðina lítið eitt meðan hún fór yfir brúna, sem liggur yfir Rauðá. Svo hvæsti hún hátt, tvis- var, þrisvar, og herti á ferðinni, því nú var skammt eptir að járn- brautarstoðvunum. Og áfram geisaði fólkstraumurinn. Það var eins og enginn hugsaði um neitt, nema að komast áfram, komast fram fyrir þann, sem gekk næst á undan honum. En þótt þeir færu hart, fór þó lestin harðara. Hún kom nær og nær; brunaði áfram með skark- ala og ■skrúðningum, og reykjarmökkurinn kolsvartur lagðist eins og ábreiða aptur yfir vagnana og sameinaðist síðan reykjarskýi því, sem grúfði yfir öllum norðurhluta Winnipeg-’bæjar það kvöld. Þeir, sem gengu á sporinu, viku úr vegi smátt og smátt, sumir undir eins og þeir sáu lestina, en aðrir ekki fyrri en hún átti að- eins fáa faðma að þeim. Arni gekk eptir hliðartáinu og hætti sjer ekki út á sporið. Allt í einu tók hann eptir því, að andspænis honum gekk maður, sem hann þóttist bera kennsl á. Það var Einar; lítið eitt skeggj- aðri og ellilegri, en þegar hann sá hann síðast, en að öðru leyti hinn sami. Hann slangraði áfram eptir sporinu, og sá Arni fljótt, að hann var mjög drukkinn. Hann leit aptur. Lestin var enn um 50 faðma burtu, en eptir fá augnablik mundi hún verða kom- in til þeirra og yfir Einar, ef hann viki ekki úr vegi. Hann sá, að svo búið mátti ekki standa. »Einar!« hrópaði hann, »forðaðu þjer frá lestinni.« Einar leit til hans og svaraði með einhverju, sem byrjaði með »God damn,« og hjelt áfram. Lest- in þrumaði nokkra faðma fyrir aptan hann. Stálteinarnir titruðu, þegar hinir þungu vagnar runnu eptir þeim. Kyndarinn sá nú manninn og hringdi bjöllu sinni, en árangurslaust. Einar var o

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.