Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Page 20

Eimreiðin - 01.01.1898, Page 20
20 fátækralöggjöf fyr á öldum, þegar ástand landsins var annað, en það er nú, og þá einkum á þeirn timum, er hagur landsins stóð með mestum blóma. Petta hafa þeir og gert í síðasta árgangi »Andvara« (1897) landritari Jón Magnússon og síra porkell Bjarnason. Landritarinn skýrir í sinni ritgerð frá fátækralöggjöf Dana, Norðmanna, Svía og Englendinga, en ritgerð sira Porkels er sögulegt yfirlit yfir fátækramálefni hjer á landi frá þvi að Jónsbók var i lög leidd (1280). Oss þykir nú eigi ólíklegt, að mörgum kunni að þykja fróðlegt að sjá, hvernig fátækralöggjöf vorri var háttað á sjálfum þjóðveldistímanum, þeim tíma, er vjer jafnan lítum til sem gullaldar vorrar, og viljum vjer þvi hjer skýra frá þvi, sem eins konar viðbæti við ritgerð sira þorkels. Þótt margt af þvi, sem þá vóru lög, geti ekki átt við nú á tímum, má þó ýmislegt af því læra og eigi örvænt, að sumt gæti verið eptirbreytnisvert og vakið menn til nýrrar og ýtarlegri íhugunar á þessu einu hinu mesta vandamáli nútimans. Með tilliti til sveitastjórnar var öllu landinn skipt í hreppa (lög- hreppa), og vóru þeir í sveitamálum algerlega óháðir landsstjórninni. Hrepparnir höfðu ákveðin staðarleg takmörk, en stærð þeirra gat verið mjög mismunandi. Enginn hreppur mátti minni vera en svo, að í honum byggju 20 bændur, þeirra er höfðu full þegnrjettindi. En full þegnrjettindi höfðu þeir einir, er svo vóru efnum búnir, að þeir áttu þingfararkaupi að gegna. Aðrir búendur vóru ekki ->taldir til breppa- tals«. Ef svo bar til, að færri slíkir búendur urðu í einhverjum hrepp en 20, þá fjell hann þegar úr sögunni sem sjálfstæður hreppur og hvarf undir þann nábúahrepp, er næstur var, nema lögrjettan (löggjafarvaldið) veitti leyfi til, að hann mætti vera sjálfstæður, þótt hann uppfyllti eigi þetta skilyrði fyrir því. Væri aptur einhver hreppur mjög stór, mátti skipta honum i þriðjunga og fjórðunga, til þess að gera mönnum hægra fyrir með að annast sveitarstjórnina. Verksvið hreppanna var aðallega að annast fátækraframfærsluna, einkum að því leyti, sem hún hvíldi á sveitarfjelögunum, og að sjá um framkvæmd á hinum lögboðnu reglum fyrir vátrygging á nautpeningi manna og húsum. FRAMFÆRSLAN. Framfærsluskyldan hvildi sumpart á ætt þurfa- lingsins og sumpart á þjóðtjelaginu, annaðhvort hreppnum, þingsókninni, fjórðungnum eða öllu landinu. Allir þurfalingar skiptust í tvo aðal- flokka: ómaga og þurfamenn. I. Omagar nefndust allir 'þeir, ungir og gamlir, er ekkert áttu fyrir sig að leggja, og annaðhvort sökum bernsku, elli eða lasleika gátu

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.