Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Page 25

Eimreiðin - 01.01.1898, Page 25
2) bændur i þingsókninni eða fjórðungnum, er þingfararkaupi áttu að gegna. Með því að þessi hjeruð vóru svo stór og hinir eldisskyldu bændur þvi svo margir í samanburði við ómagatöluna, varð þessu að eins við komið með þvi að hafa skiptingareldi, þannig að ómagarnir skyldu fara á milli bænda og dvelja sinn timann hjá hverjum. Var það kallað för um þing og för í fjórðungi. Af þvi fjórðungurinn var svo viðáttumikill, máttu fjórðungsmenn, ef þeim þótti það hentugra, skipta honurn i smærri sveitir til ómagaeldis, svo að ómagarnir þyrftu ekki að fara um allan fjórðung- inn, heldur yrði vísað á eldi hjá bændum, er byggju i einhverjum ákveðnum hluta hans. Til framfærslu landsómaga virðast menn að hafa varið einhverri ákveðinni upphæð af lögrjettufjám eða þeim tekjum lögrjettunnar, er henni guldust fyrir þau ýmsu leyfi, er hún veitti og annað þess konar. Reyndar eru ekki í lögunum — eins og þau n ú liggja fyrir oss — nein bein ákvæði um þetta, en bæði virðist mega ráða þetta af þeirn ákvæðum, er i þessu efni giltu fyrir fjórðunginn og þingsóknina, og eins er það ljóst, að menn hafa orðið að hafa ráð á einhverju opinberu fje til þess að ala ungbörn og veik gamalmenni og aðra þess konar ómaga, sem ekki varð gert að eiga för um landið; og þá virðist ekki um neitt annað opinbert fje að gera, er gripið yrði til að borga eldi þeirra með, en einmitt lögrjettusjóðinn, sem var hinn eini landssjóður, er til var. En annars áttu landsómagar för um land allt. Var þá hverjum bónda skylt að gefa þeim einn málsverð, er þá bar að bæ hans, nefnilega náttverðareldi, en. heldur ekki heimilt að gefa þeim meira. Síðan gátu þeir farið til granna hans og heimtað næsta málsverð. Þó mátti bóndinn, ef honum sýndist svo, líka gefa þeim landsómögum dagverð, er ekki var skylt að fasta (yngri en 7 og eldri en 70 ára, þunguðum konum, og stundum konum, er höfðu barn á brjósti), og eins á'öllum helgidögum. Hann mátti og bæði hýsa og ala landsómaga nieira en eina nótt, ef þeir gátu ekki haldið áfram för sinni sökum óveðra, af því ár væru ófærar, eða aðrar slíkar tálmanir á leið þeirra. VARNARRÁÐ GEGN SVEITARfYNGSLUM. Auk þess sem menn þannig höfðu sjeð um, að bætt yrði úr þurft fátæklinga, þegar hún átti sjer stað, reyndu nienn og á ýmsan hátt að verja menn fátækt, og þá einkum að afstýra þvi, að alltof margir fátæklingar hrúguðust saman í einum einstökum hrepp eða sveit. Rannig varð hver sá bóndi, er flytja vildi úr einum hrepp í annan, að biðja sjer byggðarleyfis hjá hlutaðeigandi hreppsbúum. Þó varð honum eigi neitað um leyfið, nema hann hefði annaðhvort orðið sannur að þjófnaði, eða að fjárhagur hans væri svo bágborinn, að hætt væri við, að hann mundi þegar á næsta ári þurfa að beiðast sveitarstyrks handa sjer og hyski sínu. Settist einhver að i

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.