Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Qupperneq 27

Eimreiðin - 01.01.1898, Qupperneq 27
27 hjónaefnin ættu fyrir utan hversdagsklæðnað sinn að minnsta kosti hund- rað (i 20) lögaura (= 60 kr., er mundi samsvara hjer um bil 600 kr. eptir gildi peninga nú). Færi giptingin fram, án þess að hjónin ættu þessa fjárupphæð, þá varðaði það íjörbaugsgarð og skyldu þau fara af landi á brott og eiga eigi apturkvæmt, nema fje þeirra yxi svo, að þau ættu hundrað eða meira, eða konan hefði náð þeim aldri, að hún væri ekki lengur barnbær. ?ó var enginn fjeránsdómur háður yfir þeim, sem öðrum fjörbaugsmönnum, nje fje þeirra gert upptækt, og þau máttu koma heim aptur jafnskjótt og fyrgreind skilyrði vóru fyrir hendi. Á hinum fyrri hluta þjóðveldistímans mátti og slíta löglegu hjónabandi sökum fá- tæktar hjónanna, bæði af frjálsum vilja að tilhlutun sjálfra þeirra, og einnig að þeirn nauðugum eptir kröfu þess ættingja, er næst stóð að framfæra börn þeirra. En seinna kom þó kirkjuvaldið því til leiðar, að þessi ákvæði um hjónaskilnað sökum fátæktar vóru úr lögum numin. Af sömu ástæðum var og bannað að skipta manneldi þannig á hendur bændum, að saman yrðu karlmaður og kona barnbær hjá sama bónd- anum i einu. Ennfremur var og skipamönnum, er áttu búðir við strönd- ina, bannað að ala barnbærar konur, jafnvel þó þær væru innanhrepps- ómagar. Pá var og sjerhverjum vermanni stranglega bannað að hafa barnbæra konu í fiski með sjer, nema hann gæti sjeð þeim báðum fyrir nægilegri atvinnu, og varðaði fjörbaugsgarð fyrir þau bæði, ef út af var brugðið. Bæði þessi síðastgreindu ákvæði verður eðlilega að skilja svo, að menn hafa verið hræddir um, að það kynni að hafa rniður heppi- legar afleiðingar, ef barnbærar konur ættu samblendi við farmenn og sjómenn, sem opt þykja fremur ljettúðarfullir. Eins og menn reyndu að afstýra þvi, að skipstjórar flyttu ómaga inn í landið, eins reyndu menn og að losa landið við framfærslu óskil- getinna barna, er útlendingar höfðu getið meðan þeir dvöldu á Islandi. Þegar norskur maður eða úr öðru nálægu landi hafði átt lausaleiksbarn á Islandi, og svo heppilega vildi til, að hjer á landi var staddur maður úr sama hjeraði og faðirinn, og lá búinn til heimferðar, þá gátu menn flutt barnið á hendur honum, og varð hann þá, ef hann vildi sleppa óhegndur, að taka við því og ferja það gegn 10 (lög)aura þóknun. Þó var hann þvi að eins skyldur til þess, að fje hans næmi að minnsta kosti 6 hundruðum (720) álna (= hundrað lögaurum = 60 kr. o: um 600 kr.). Sjerstaklega þýðingarmikil vóru þau ákvæði, er miðuðu til þess að afstýra flakki (húsgangi, verðgangi), þvi þau vóru svo hörð, að það var síður en ekki árennilegt að leitast við að lifa á bónbjörgum, er menn vóru full- færir til að vinna fyrir sjer. Þessi ákvæði vóru þó eigi að eins miðuð við það, að slíkt flakk bæði svipti þjóðfjelagið nauðsynlegum vinnukröpt-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.