Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Page 34

Eimreiðin - 01.01.1898, Page 34
34 skrokkarnir, seglin reykháfarnir, voru reyndar með ýmsum litum ; en þegar allt kom saman, fjekk það bjartan blæ. Þau litu út eins og snæfinnar, er kæmu á skíðurn með fána í hönd frá landi mið- nætursólarinnar, og flyttu góðar fregnir frá endimörkum heimsins. Þar kveða við hinir magnþrungnu hreimar hafsins, og þar hreins- ar snjórinn til í hugurn manna. En því fremur stungu nokkur dökk skip í stúf, dökk með björtum rákurn, eða bjartleit með dökkum. Þessar rákir lágu þvert og endilangt urn skipskrokka, reykháfa, um seglin og allt laust innanborðs. Skipin með dökku rákunum voru mikil og stór- skorin. Það rná rekja þessa dökku rák svo langt aptur í aldirnar, sem saga þeirrar þjóðar nær, er gerði út þennan flota. Hún sker — við skulum segja —1 tíunda hvert blað i sögu þjóðarinnar, stund- um þriðja hvert, stundum hvert einasta. Hjer eru án efa upphaf- lega tvær þjóðir, er heyja stríð hver við aðra, stríð, sem ekkert annað en þessi ríki mismunur í lundarfarinu fær getið af sjer. Þess er til getið, að Noregur hafi byggzt á tveimur tímabilum, með löngu millibili; að fyrri þjóðin hafi búið þar við þröngan kost á fyrstu íslausu blettunum fram með ströndinni, og að hin þjóðin hafi kornið, er hinir miklu skógar þegar hlúðu dölun- um. Hvernig sem nú þessu er varið, þá er hitt víst, að annars vegar er þjóð með bjartri lyndiseinkunn, trú á lífsöflin og hneigð til fjelagsskapar; hins vegar þróttmikið og mótþróafullt sjereðli, sem því nær eingöngu hefir augun opin fyrir því, hvar gengið er á hluta einstaklingsins með lögum og landsvenjum, og veitir því mótspyrnu. Andstæður þessar eiga sjer stað hjá öllum þjóðurn; með hverju móti sem þjóðfjelag er stofnað, verður það alltaf fleirum eða færrum hvimleitt og svo kemur andblásturinn. En í Noregi eru þær sterkari en annarstaðar, hafa allt af verið það; það á ekki að eins rót sína i ytri atvikum, það liggur í þjóðar- eðlinu. Þegar hinn rnikli ríkishöfundur, Haraldur hárfagri, sameinaði Noreg í eina ríkisheild, börðust sumir við hann meðan nokkur stóð uppi; þeir stukku heldur úr landi, en að búa við slíkt. Þeir fluttu til Skotlands, Irlands, Norður-Ameríku, Islands, Grænlands; fundu Ameríku o. s. frv. Sem eitt hið einkennilegasta dæmi þeirra má nefna Egil Skallagrimsson, skáldið og víkinginn, sem var hefndargjarn og viðsjáll kappi, er ataði í níði allt, er hann vildi

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.