Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 40

Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 40
40 veitir oss hlutdeild í hinum andlegu fjársjóðum Danmerkur, sem eru enn auðugri. Kennslan ætti ekki hjá nokkrum hluta þjóðar- innar að fara stöðugt fram á máli, er hætt var að tala á ákveð- inni klukkustund fyrir þremur fjórum hundruðum ára. Allra sízt meðan vjer enn berjumst fyrir sjálfstæði voru gegn Svíþjóð og konungsætt hennar. A meðan er það samheldni, er vjer þörfn- umst, samheldni í nútíðaranda nútíðarmálsins. Jeg fyrir mitt leyti stakk upp á því, að ef hvert barn í Noregi, hversu fátækt sem er, hefði ráð á að læra tvö mál, þá í guðanna bænum að velja enskuna; á henni þurfa svo margir að halda, sem sjómenn, sem fylgdarmenn ferðamanna, eða þegar þeir ferðast sjálfir (sem útflytjendur). Þetta yfirgripsmikla mál mundi setja þá í samband við meiri menningu. Sjáum nú til! I fyrstunni komu fram tvö ný skáld á nýja málinu; frumleiks-angan þeirra var sem ilrnur af blómurn og berj- um fram til fjalla; það er hverju orði sannara! En aðeins á með- an þeir lýstu náttúrunni, í náttúruóði og sveitalýsingum, lengur hrökk ekki nýja málið til. Jú, það gat líka látið hæðnishlátur og spott til sin heyra, — frá eldhúsinu og drengjastofunum í garð stórstofanna. Hvorttveggja kvað við og gnýjaði, með gráti og logaleiptrum í Aasmund Olafson Vinje, einkennilegu skáldi af bændaættum, sem var gæddur veikum viljaþrótti en öflugu ímynd- unarafli. Andi hans var móttækilegur fyrir hvers konar áhrif, og og þau áhrif, sem hann varð fyrir, voru mjög sterk; þau endur- hljómuðu í kvæðum hans, sem telja má meðal hinna þýðustu ljóða og þeirra, sem lengst munu hljóma allra norskra kvæða. Dökku rákina má rekja gegnum mest allt, er hann orti, en önuglyndi yfir því, sem var, háðið og öfundin í þess garð, var alls eigi sterk- asta aflið í sálu hans. Það, sem rjeði þar mestu, var þýð barns- lund, sem fremur öllu öðru kaus sjer ástríki annara, er varð gagntek- inn af því, sem fagurt var og mikilfenglegt, einkum ef það var jafnframt glæsilegt. Jeg get ekki hjer lýst lífsferli hans, þar sem hann kastaðist úr einu í annað, órólegur og vansæll, en þó stund- um sæll, og þá óviðjafnanlega sæll. Hann vissi fyrir fram þegar hann átti að deyja, þagði yfir þvi, fór upp í sveit og dró sig þannig í hlje, sagði ekki heldur neinum þar frá því, en dróst upp í herbergið sitt og beið þar í einrúmi góðkunningja síns, dauðans. Og góðkunninginn kom í kyrþey eins og óskað var. Sama er sagt um dýr skógarins, að þau kenni dauðans fyrirfram

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.