Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 43

Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 43
43 Þær brýndu ábyrgðartilfinningu hinna göfuglyndari manna; verk- mannahreyfingin, kvennfrelsishreyfingin og friðarmálefnið fengu stoð í þeim, og listir og bókmenntir ný viðfangsefni. En sið- gæðastarfseniin bjóst smátt og smátt til snarprar mótspyrnu gegn öfgum þessara hreyfinga, sem drógu enn meiri öfgar eptir sjer. Því verður sem sje ekki neitað; að í sambandi við hið annað gat hinn takmarkalausi einræningsháttur þessarar stefnu (sem Hen- rik Ibsen reyndi seinna einnig að veita andvægi) af sjer ódæma ruddaskap stjórnleysisins, munaðarvímu hjá æskulýðnum, vantraust hnignunarandans á frjálsræði og starfsemi og flótta frá virkileika og vísindum inn í trúargrufl dulspekinnar; ennfremur fæddi þessi stefna af sjer »ofurmennið« hans Nietzsche, og hið hálfgeggjaða glamur um hið mikilfenglega, sem nú veldur fleiri óþægindum en að gera mönnum hlustarverk. Jeg gæti sýnt fram á vesaldóm þann í norsku menntalífi, sem upphaflega fjekk gremju Ibsens og annara vopn í hendur. Jeg gæti lýst því, hve sokknir menn vcru niður í foræði miðlungs- skapar og siðvenja; jeg gæti lýst hræsninni, þurpurkuskapnum, dómsýkinni og hugleysinu í litlu þjóðfjelagi, þar sem engin hreyf- ing átti sjer stað. En alls þessa má geta sjer til af ritum 'hans. Jeg vil því heldur fara nokkrum'orðum um listina í þeim. Í>ví þegar allir boðar og andboðar ólgusjávarins hafa yfir oss gengið, og vjer sjálfir höfum fylgzt með, — þá heldur þó listin í flestum ritum Ibsens þeirn uppi meðal þess, sem telja má framúr- skarandi. Meginþróttur hennar er fólginn í þvi, hve snildarlega viðtali manna er fyrirkomið og hve vel það er undirbúið með löngum aðdraganda i geðslaginu og viðburðunum, í umhverfi og veðurfari; öllu er hagað í samræmi við það. Viðtalið ris sem geislandi stafur, og brestur svo, um leið og það verpur frá sjer litbjarma frumhugsunarinnar i leikritinu. Mjer þætti gaman að vita, hvaða skáld í öllum bókmenntum heimsins hefur jafnazt við hann í þessu. Hvaða skáld hefur með öllum þeim tökum, sem leikritaskáldið á ráð á, beint athyglinni svo eindregið að því, sem sagt er. Þar er ekkert til ónýtis, engu orði ofaukið í öllu leikritinu; allt miðar að hinu sama. Þó aðrir kunni að hafa náð sama hag- leiksþroska í bláberri búningsiþrótt, þá hefur hann einn náð hon- um og beitt í hinni erfiðu þjónustu andans. Listsnilli hans verður að teljast að meiri, er vjer gætum þess, að mörg þau efni, sem hann hefur vaiið sjer til meðferðar, eru

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.