Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Side 47

Eimreiðin - 01.01.1898, Side 47
47 í síðustu bók sinni setur hann stillilega en þunglega ofan í við þann litla hluta norska æskulýðsins, sem vóru svo kærulausir um ættjörðina, að þeir gjörðust digurbarkaðir talsmenn hnignunar- andans frá París. En eins í þessari bók sem öðrum lætur hann skiptast á skin og skúr; hann miðlar þeim smámsaman því, sem þeim ber. Hjer liggur enn sami mælikvarðinn fólginn í frásögn- inni: Hvaða augum lita menn á konuna nú; hver er sjóndeildar- hringur hennar sjálfrar núna? Þegar mælikvarðinn er iagður á, verður niðurstaðan ekki eingöngu konunni í vil. Og þá ekki þjóðfjelaginu heldur. En um leið og verið er að sprengja allt og eyðileggja, er sem vjer finnum það á oss, að það sje vorið, en ekki haustið, sem gengur í garð. Hjer er að spretta upp einhver heilsusamlegur gróður, sem andar frá sjer eiturloptinu. Jónas Lie gjörir aldrei neina útúrdúra; hann heldur sjer grand- gæfilega við verkefnið. Nú skyldu menn ætla, að hjer væri festa mikil í framsetningunni, en það er öðru nær. Sjaldgæft er það og, að hann dragi margt saman á einn stað og bregði svo upp skýrum myndum. Frásögnin líður hægt áfram þannig, að hlut- irnir eru sýndir með smáum einkennis-dráttum, stundum óvenju- lega finum, að skýrt er rneira eða rninna ljóst og smellið frá ýmsum atvikum, að gjörðar eru athugasemdir, sem tengja viðburðina saman, og eru slíkar athugasemdir jafnan lagðar einhverri af persónunum í munn. Hjer kemur opt fram skringilegt, við gætum sagt ijúf- mannlegt vandræðafip, með því að vjer sjáum, hvar hann leitar fyrir sjer, og líka ráðið til að komast áfram. Það er aldrei þar, sem hverjum öðrum mundi verða erfitt fyrir; því erfiðara, því auð- veldara. Það er þar, sem hver skussinn kemst yfir á trjeskóm; þar situr hann fastur. Ekki liggur málið heldur laust í pennanum; en það vinnur það, sem því er ætlað! Þegar frásögnin fer að síga saman utan að því, sem er aðalatriðið, verða menn þess varir með aðdáun, hve mikið hefur safnazt fyrir í kyrþey, og hve glöggt og frjálslega persónurnar standa manni fyrir hugskotssjónum. Að þessu stuðlar og það, að samtalið er látið kasta birtu á þær, líkt og hægt brennandi lampi með ljóshlíf að baki. Sjálfur stendur hann ef til vill og horfir kátbroslega niður á línurnar; en línurnar fá ekki leyfi til að hlæja. Þótt sál hans titri af gremju eða gleði, — undir eins og þessi hugmóður fer að gjöra myndina hvikulli, sendir hann nokkur hversdagsleg orð af stað, — og allt fellur í

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.