Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Side 59

Eimreiðin - 01.01.1898, Side 59
59 þessum geðveikislæknum, sem hættir helzt til of mjög við því, að telja andmæli órækan vott geðveiki, og í óskeikulleik hjegóma- dýrðar sinnar skjátlast herfilega. Svo dró hún upp mynd af hon- um, af sjúklingunum, af hjúkrunarkonunum og öllu, sem fram fór, og er sú mynd dregin með svo skýrum dráttum og svo áhrifa- mikil, að hún jafnast við beztu skáldsögur. Bókin heitir »Prófessor Híerónímus«. Þeir, sem í nafni mannfjelagsins berjast gegn valdi geðveikisspítalanna, sem helzt til litlar gætur eru hafðar á, hafa fengið vopn í hendur, hverju vopni beittara, þar sem er þessi snildarlega lýsing á því, sem fer fram innan fjögra veggja á geð- veikisspítalanum. Það er sem sje í fyrsta skipti í bókmenntunum, að góður rithöfundur með fullkomlega heilbrigðri skynsemi hefur fengið færi á, að gjöra slíkar athuganir. Bókin er líka fróðleg að því leyti, að hjer má greinilegast sjá, hvernig list Amalíu Skrams er varið. I hverju er þá galdurinn fólginn ? I því, að hún hefur sjeð og rannsakað út í hörgul, það sem hún lýsir, áður en hún segir nokkurt orð. Þess vegna þarf hún svo fá. I því efni er hún gagnólík Zola, sem henni er ósjaldan jafnað við. Hann byrj- ar á því að gjöra lauslega frumdrætti; en þegar svo smám saman líður á söguna, og hver setningin getur aðra af sjer, þá tekur myndin að skýrast og tútna út af öllum tilviljununum á leiðinni. — — Þeir af ungu, norsku skáldunum, sem enn ætti að nefna, og kóngar eru i ríki sínu, þ. e. þeir, sem með óyggjandi rjetti manngjörvisins eiga efni sín og búning þeirra, — lesendur yfir- litsgreina í tímaritum hafa af gömlum hefðbundnum vana ákveð- inn mælikvarða fyrir þolinmæði sinni, —• öllum þessum skáldum, sem talsvert mikið kveður að sumum hverjum, er svo háttað að þeir verða ekki leiddir fram á sjónarsviðið í langri runu, svo sem sá sjöundi, áttundi, níundi, tíundi, ellefti, o. s. frv., án þess að gjöra þeim rangt til. Jeg tek því þann kostinn, að velja tvo þeirra sem dæmi; í vali mínu fer jeg aðeins eptir því, hverjir eru bezt fallnir til auð- kenningar i augum útlendra lesenda. Nú er Noregur líka orðinn ferðamannaland — því er nú ver og miður! —; ef til vill hafa sumir af lesendum mínum komið upp á norska háfjallasljettu og fundið hinn takmarkalausa einveru- blæ, sem rí'kir þar uppi, meðan þeir horfðu á snæfjöllin í fjarska hvar sem augað eygði. A leiðinni hafið þið, ef til vill hitt annan mann, einn einasta. Hann — eða hún — birtist þarna eins og

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.