Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Page 61

Eimreiðin - 01.01.1898, Page 61
6i líða fram ljóðbornar, svo sem væri þær innihald dalsins, fjallsins eða hafsins leyst úr læðingi; sveitafólkið er margraddaður boð- skapur þeirrar náttúru, sem það lifir í og er að baksast við. I því, hve vel hann skilur það, skarar hann fram úr öllum bændamáls- skáldunum samtöldum. Jeg verð að endurtaka þetta hjer, þar sem það á heima. Eins víst er og hitt, að náttúrulýsingar Knuts Hamsuns á hans hljómþýða dansk-norska landsmáli, eru hinar háfleygustu og mikilfenglegustu í norskum bókmenntum. Jeg bið hina mörgu, sem lesið hafa byrjunina á »Pan«, í þýðingu, að hugsa sig vel um áður en þeir segja mjer, hvar yfir höfuð má finna það, sem standi henni jafnfætis. Hann er jötunn að vexti, bjartur yfirlitum og fríð- ur sinum; er hann kominn af gamalli bændaætt úr Guðbrandsdaln- um, sem flutti búferlum til Horðurlandsins og út til hafsins. Sagt er að listhagir menn hafi verið í ætt hans; föðurafi hans var þjóð- hagasmiður. Sjálfur hefur hann verið verkamaður og lifað um hríð erlendis (i Ameriku). I bókmenntunum byrjaði hann á því, að fremja nálega öll þau heimskupör, sem gáfaður fjörkálfur get- ur komizt upp með í siðuðu mannfjelagi. Það lítur svo út, sem telja megi það norskt, að enginn ungur höfundur hyggst framar muni geta rutt sjer til rúms, án þess að reyna fyrst, hvort hann fái varpað öllum hinum úr sessi. Það sýnir eitt meðal annars, að vjer erum á drengjaaldrinum enn þá, að því er menningu snertir. Jeg mundi því ekki einu sinni hafa minnzt á þetta, lægi það ekki í augum uppi, að hjá honum voru þessar tilraunir og önnur brek hans sprottin af því einu, að hann þóttist ekki ugglaus með- al nýju fjelaganna, en var á hinn bóginn svo hjegómlegur og svo státinn af mætti sínum, að hann rauk í hina, til að sýna, að hann væri hvergi smeykur. Loksins hjelt hann svo, að hann væri umbóta- skörungur. Bak við allt saman hlær góðlátlegt gárungssmetti við oss; manni verður ósjálfrátt að einblína á það. í seinustu ritum sínum fer hann ofur grandvarlega og rjettlátlega með efnið og at- burðina. En óþekktarárum hans eigum vjer stórvaxna, nýja mann- lýsingu að þakka, sem hann hefur orðið heimsfrægur fyrir. í strandbæ nokkrum kemur fram einn góðan veðurdag hár mað- ur og fríður sýnum, sem enginn kann deili á eða botnar í. Hann er gáfaður vel og hjartagóður og fyllir bæinn af góðverkum og glópskubrögðum, vekur í fyrstu hvervetna góðan þokka, sem hann svo eptir á leggur alla stund á, að má af aptur. Hann er heimtu-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.