Eimreiðin - 01.01.1909, Blaðsíða 29
29
María er komin inn í litla svefnherbergið sitt, kemur dálítið fyrir,
sem er bæði leiðinlegt og slæmt. —
Theódór og Márits eru á gangi niðri í garðinum og hún
heyrir, að Márits er að segja frá framtíðaráformum sínum. Theódór
segir auðsjáanlega ekkert, hann gengur þar og slær stráin með
stafnum sínum. En það líður varla á löngu, hugsar hún, áður
Márits geti sannfært hann um, að hyggilegast sé að láta sig fá
bústjórastöðu á einhverri stórjörðinni hans, ef hann vilji þá ekki
miðla honum einhverri jörð til eignar nú þegar. Márits er orðinn
svo hneigður fyrir verkleg störf, síðan hann trúlofaðist. Hann
segir þráfaldlega: »Er ekki bezt, — úr því ég á þó með tímanum
að verða eigandi margra jarða — að ég fari nú þegar að æfa
mig í öllu þar að lútandi. það er ekki ómaksins vert fyrir mig
að halda áfram að lesa lög«.
Peir eru á gangi rétt fyrir neðan gluggann hennar, og hljóta
að geta séð hana sitja þar. En úr því þeir kæra sig ekki neitt
um það, getur enginn ætlast, til að hún hlusti ekki á það, sem
þeir eru að tala um. Petta kemur ekki síður henni við en
Márits.
Pá staðnæmist Theódór námueigandi alt í einu, og er reiði-
svipur á honum. Henni sýnist hann vera æfareiður, og hún er
rétt í þann veginn að kalla til Máritsar, að hann skuli vara sig.
En það er um seinan; því Theódór hefur þrifið í bringuna á Márits
böglað alla skyrtuna hans og skekur hann svo, að Márits hringast
eins og áll. Svo hrindir hann honum frá sér með slíku heljar
afli, að Márits rambar aftur á bak, og hefði fallið, ef hann hefði
ekki lent á trjástofni; en þar stöðvast Márits og segir: »Hvað?«
Ja, hvað annað átti hann eiginlega að segjaí
Aldrei hefur hún dáðst jafn mikið að stillingu Máritsar og
nú. Hann ræðst alls ekki á Theódór námueiganda. Hann er
rólegur og ofurlítið borginmannlegur á svip og sakleysið og undr-
unin skín út úr andlitinu. Hún er í engum vafa um, að hann
stillir sig, til þess að ferðin verði ekki til ónýtis. Hann muni
hugsa til hennar og því stilla sig.
Vesalings Márits; það kemur nú upp úr kafinn, að Theódór
er reiður við hann hennar vegna. Hann spyr Márits, hvort hann
viti ekki, að föðurbróðir hans sé piparsveinn og heimili hans
piparsveinsheimili, úr því hann komi hingað með unnustu sína, án
þess að hafa móður hennar með. Móður hennar — dúfan þykkist