Eimreiðin - 01.09.1910, Síða 8
164
gera ráð fyrir, að þriðjungur af skóverði séu verklaun. Hér eru
því 105^/2 þúsund krónur, sem landsmenn gjalda útlendum verk-
mönnum, eða með öðrum orðum verklaun handa 422 skósmiðum
frá 1. nóv. til 1. apríl (5 mánuðir = 125 virkir dagar), sé kaupið
reiknað 2 krónur á dag. íslenzkir skósmiðir gætu vafalaust, með
hæfilegri verkaskiftingu, búið til eins góða skó og ódýra eftir
gæðum, og þá útlendu. Hvað þá heldur ef þeir notuðu nýjustu
vélar. Nýlega kom ég inn í skósmíðaverkstofu hér í Höfn. Prír
menn unnu þar inni, og var hún aðeins lítið eitt stærri en ég hef
séð skósmíðaverkstofur á íslandi. Par voru þessar vélar:
Vél, sem negldi sóla undir skó. Hún bjó sjálf til trétittina
og rak í einu tvöfalda tittaröð í skósólann.
Tvær vélar, sem saumuðu skósóla, og var önnur þeirra
fyrir »randsaumaða« skósóla.
Saumavél, samskonar og sjá má hjá íslenzkum skósmiðum.
Allar þessar vélar voru stignar. Ennfremur var þar fágunar-
vél, sem tveggja hestafla rafmagnsvél (mótor) hreyfði, og nokkrar
smávélar, er hreyfðar voru með handafli, svo sem reimavél o. fl.
Handa flestum iðngreinum er nú farið að búa til litlar og
hentugar vélar. En landsmenn verða að fara varlega í vélakaupin.
Hvorki kaupa of margar vélar í einu,*) né kaupa vélar, sem iðn-
aðarþjóðirnar eru að hætta við, hversu ódýrar sem þær kunna
að fást. Pað mun lang-oftast borga sig bezt, að kaupa vélar af
nýjustu gerð.**) (Tegar Bretar fóru að hafa gufuskip til fiskiveiða,
en hættu við seglskipin, keyptu íslendingar þau. En þó þeir
keyptu þau ódýrt, þá er víst óhætt að fullyrða, að mikið betra
hefði verið að kaupa þeim mun færri ný gufuskip, eins og dr.
Valtýr hélt þá fram á alþingi.)
Ekki verður séð á Landshagsskýrslunum, hve mikill hluti
skófatnaðarins eru »klossar«. En þá geta landsmenn einnig vafa-
laust búið til eins ódýra og þá útlendu. I Danmörku hafa þeir
til skamms tíma verið búnir til í smá-verkstofum, þar sem oftast
vann aðeins einn maður. Sumir þessara skósmiða bjuggu þá til
að öllu leyti, aðrir keyptu botnana af sögunarverksmiðjunum. Nú
eru þeir alveg að líða undir lok, sem búa til botnana með hand-
*) Hin óhóflegu mótorbátakaup síðustu ára ættu að kenna oss að fara varlega.
**) í^eím, sem ætla að kaupa vélar, vil ég ráðleggja, að leita ráða hjá
»Teknologisk Institut« hér í Höfn. Sú stofnun er stofnuð af almannafé, og lætur
ókeypis góð ráð í té (einnig bréflega).