Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Page 26

Eimreiðin - 01.09.1910, Page 26
182 og 21 mínútu. Skömmu áður hafði hann flögið ioo metra hátt í lofti og þannig unnið verðlaun fyrir hæst flug. Á 6.mynd er sýnd ein af vélum bræðranna. Er gerð henn- ar öll mjög óbrotin. Aöalsvifþynnurnar eru 2, hvor upp af ann- arri. Pær eru 12 m. að lengd og 2 m. á breidd. Aftan til við þær sjást báðar loftskrúfurnar. Framanvert við flugþynnurnar sjást 2 litlar láréttar þynnur; þær eru ætlaðar til að stýra vél- inni upp og niður. Aftast á vélinni sjást lóðréttar þynnur, það 6. Flugvél Wrightbræðranna og hróf hennar. e'ru hliðarstýri. Sæti' loftfaranss er framanvert á neðri svifþynn- önni miðri. Öll vegur vélin um 1000 pund. Hreyfivélin sjálf er um 140 pund að þyngd og hefur 24 hesta afl. Flughraði vélar- innar er áætlaður 70 km. (rúml. 9 mílur) á kl. stund. Vélin getur náð fluginu af jafnsléttu; þegar vindur er, er vél- inni beitt í vindinn, skrúfurnar settar af stað og vélin knúin hratt á móti vindinum, á lausum hjólum, sem velta í spori; lyftir þá vindurinn undir svifþynnunar og hæðarstýrin, svo vélin lyftist frá jörðu. Pegar logn er, verður að hafa nokkuð annan útbúnað, sem ég hirði eigi að lýsa hér. Á Frakklandi vann Wright mörg verðlaun, sem heitið hafði verið fyrir framfarir i fluglistinni. Síðan fór hann til Ítalíu, eftir ósk stjórnarinnar þar, til að sýna flugfimi sína. Eftir það hélt

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.