Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Page 35

Eimreiðin - 01.09.1910, Page 35
I9I og henni einkennileg; gáfa guðsins magnar ímyndunina og gerir hugvitsaugun sjónglöggari á hið fagra«. Að vísu urðu þessar há- tíðir síðar illræmdar, einkum fyrir holdlegt munaðaræði, en það dregur þó ekki úr því góða, sem þær sköpuðu. Pá eru og sam- drykkjur (sýmpósía) Grikkja nafnkendar. Samsvarandi hátíðir Róm- verja höfðu öllu klúrari brag, en þó voru þær ekki þýðingarlausar fyrir listir og bókmentir. Ferreró hyggur, að vínið hafi átt mikinn þátt í að rómaníséra og siða hinar germönsku þjóðir, og það hafi ekki verið metið sem skyldi. I3ær þjóðir höfðu auðvitað neytt áfengis (mjaðar), áður en þær komu í kynni við klassiska menningu, en vínið var bæði bragðbetra og sterkara en mjöðurinn, og því er hætt við, að þær hafi ekki kunnað með það að fara í fyrstu. Cæsar getur þess, að sumir germanskir höfðingjar, einkum þeir, er meiri villibragur var á, hafi bannað innflutning víns og þegnum sínum að neyta þess, því að þeir hugðu, að víndrykkjan mundi veikja þá og draga úr karlmensku þeirra; en því hefur nú ekki verið haldið fram gegn víninu einu, heldur líka gegn öllum útlendum siðum og menningu, eins og sagnirnar um Starkað gamla sýna meðal Norðurlanda- þjóða. fað er líklegt, að rómverskir höfundar geri of mikið úr víndrykkjufíkn Germana, því að svo telur Alwín Schultz, einhver hinn fróðasti maður um miðaldalífið, að drykkjuskapur sem þjóð- löstur hafi ekki orðið almennur fyr en á 15. öld, og þá meðai germanskra þjóða en ekki rómanskra, þó vínnautn úr því hafi færst í vöxt hjá báðum. Brennivínsdrykkjan fer þá að verða al- menn og líður ekki langt um áður leitast sé við að stemma stigu fyrir henni. þá kom og meira af hinum sterkari suðrænu vínum á germanska markaðinn og einkum var spánskra vína mjög neytt á Englandi á 17. og 18. öldinni, en áður höfðu menn drukkið hin vægari frönsku og þýzku vín. Ekki verður séð, að mikil drykkja og önnur siðaspilling hafi ávalt farið saman, og er merkileg í því efni sögn Montaigne’s (í lok 16. aldar), að á hans dögum hafi drykkjuskapur verið miklu minni en áður, en Venus hafi verið að því skapi meira dýrkuð. Gervínus heldur því fram, að harðstjór- um og einvaldsdrotnum hafi jafnan verið illa við víndrykkju og samsætishöld, því að þar bar margt á góma, tungan varð örari og menn báru saman skoðanir sínar, víttu stjórnina og hófu frelsið til skýjanna, og urðu þau þannig oft undirrót frelsishreyfinga. Það er annars nokkuð torvelt, og yrði líka oflangt mál hér, að 13'

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.