Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Síða 38

Eimreiðin - 01.09.1910, Síða 38
194 hafa sér stað á íslandi á síðustu árum, eigi að nokkru leyti rót sína að rekja til bindindishreyfingarinnar. III. »Esat maðr svá góðr, at galli né fylgi, né svá illr, at einugi dugi«, segir í Hávamálum; og svo má segja um málefni sem menn. Petta ættu umbótamenn allir að hafa hugfast; þeim hættir oft við að fara geyst og einblína einungis á það illa og sjá ekkert nema það; þeir þola enga gagnrýni eða mótsögn, en fara sínu fram. þetta getur verið afsakanlegt í byrjun, meðan þeir eru að vekja athygli á máii sínu, en jafuskjótt sem þeir fá skoðun sína viður- kenda, ættu þeir að lækka seglin og leita samkomulags, einkum þegar um stórmál er að ræða. Og áfengismáiið er sannarlega stórmál, sem hefur margar athugaverðar hliðar. Allir vita og viðurkenna, að ofdrykkjan sé þjóðaböl, sem reisa verður skorður við; en hitt hefur hins vegar ekki tekist og mun sjálfsagt seint takast, að sannfæra allan þorra manna um þaö, að hófleg vínnautn hafi ekkert gott og skemtilegt í för með sér. Nú er það hlutverk og skylda siðaðrar löggjafar, að varðveita hið góða og útrýma eða afstýra hinu illa. fetta gera ekki lög, sem banna allan að- flutning áfengis; það er meira að segja ástæða til að ætla, að þau útrými því góða, en ráði ekki til fullnustu bót á því illa. Róm var ekki bygð á einum degi; og það er fásinnu næst, að ætla sér með atkvæðagreiðslu einni og lagaboði alt í einu að uppræta þúsund ára gamlan vana, jafnrótgróinn og almennan eins og vínnautnin er; það lýsir vanþekkingu bæði á eðli mannsins og sögu hans, og sýnir, að bindindishreyfingin er að verða eða er orðin að ofstæki, þegar menn hugsa sér með litlum meirihluta atkvæða að fara að stjórna heilu þjóðfélagi eins og það væri drykkjumannabæli eða sjúkrahús. IJað þarf ekki mikla skynsemi til að sjá, að til eru aðrar og betri aðferðir til að berjast gegn ofdrykkjunni heldur en slík örþrifaráð. Henni verður aldrei út- rýmt nema með vaxandi menningu og þekkingu samfara vitur- legri og hægfara löggjöf. Páll Stígsson lögmaður vildi með Stóra- dómi á 16. öld bæta siðferði íslendinga; honum tókst það ekki, og dómurinn hafði aldrei góð áhrif á þjóðina. Af sögunni mætti læra nokkuð. Bannlögin eru stóridómur tuttugustu aldarinnar.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.