Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Blaðsíða 72

Eimreiðin - 01.09.1910, Blaðsíða 72
228 Hér er alveg rétt frá skýrt; ljóð hans eru kveðin á hlaupum milli verka eða á andvökunóttum (sbr. nafnið á bókinni), og því ekki von, að alt sé jafnlétt og lipurt. En hitt er víst fyllilega satt líka, að »inst í hugar- djúpi hljóma þó fegri lög«, því það sýna sum kvæðin, að hann getur leikið leikandi fjörugt á hörpuna, ef þvi er að skifta. En hann vill láta efni og hugsun sitja í fyrirrúmi fyrir forminu, ef ekki tekst að gera hvorttveggja jafnfullkomið. Hann veit vel, að mörgum nægir »bara eyður efnisins orðin skeiði og renni« (I, 248), en honum líkar illa »búmenskan hans Bárðar kalls, sem blávatnsþynnir mjöðinn« (I, 261). Hann neitar ekki, að slíkt geti verið list, sem hér segir (I, 51): List er það líka, og vinna, altaf í þynnra þynna lítið að tæta upp í minna, þynkuna allra hinna. En þá list vill hann ekki temja sér, þó hann kynni að geta unnið sér lof með því, eins og hann segir um »þjóðskáldið« (I, 30): Lof þér lýðir flétta, lengi mun ei beðið. Þjóðlegar en þetta þú gazt ekki kveðið! Hversdags-hugsun teygð og tætt, tuggin upp í ljóð. Umbúðirnar eflaust vætt, innihaldið lóð. En þess konar »þjóðskáld« kveðst hann hvorki vera né vilja vera (»ég fæddist ei þulur með þjóðskálda mál«, I, 193), heldur mun hann taka undir með Bliss Carman (I, 36): Ég ljóða mér ekki til lofs, en getið mín vil ég að verði til lýðhylli, tignar né fjár; — öll veraldar komandi ár. Og þyki mönnum ljóð hans torskilin, þá svarar hann bara með orðum Walt Whitmans (I, 34): í>ú skilur mig ekki. Ó þreyt ekki þig á þvílíkri ráðgátu — forðastu mig; en farðu og skældu þig organið í — ég yrki ekki við þig neitt lúllum bí. En það er ekki formið eitt né skortur á hjartnæmi, sem hamlar því, að St. G. St. verði tekinn í þjóðskálda tölu af samtíðar almenn- ingi, heldur er efnið í kvæðum hans því oft og einatt líka til fyrir- stöðu; það eru svo margir, sem fá svo óþyrmilega að kenna á svipu- ólinni hjá honum, að ekki er líklegt, að þeir verði til að launa sviðann með því að gerast loftungur hans, heldur telja hann næsta óþarfan og ógeðfeldan. Ekki ólíklegt, að þeir kveði við útför hans líkt og »Sam vizkan við greftrun sérvitringsins« (II, 196—7): Við fundum sjaldnast lag við ljóðin hans, þó létumst stundum eitthvað við það kannast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.