Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1911, Blaðsíða 4

Eimreiðin - 01.01.1911, Blaðsíða 4
Eimreiðin. Nýir kaupendur að 17. árg. Eimreiðarinnar, er þess óska, geta fengið í kaupbæti ókeypis eitt af þessu fernu: 1. REYKJAVÍK UM ALDAMÓTIN 1900 (með 17 myndum) eftir Hen. Gröndal. 2. EIMREIÐINA, II. árg., sem í er meðal annars hin ágæta skáldsaga Einars Hjörleifssonar »Brúin«, »Hafnarlíf« eftir Jón Jónsson sagnfræðing o. m. fl. 3. EIMREIÐINA, III. árg.; í þeim árg. er m. a. skáldsaga Jón- asar Jónassonar »Eiðurinn«, ferðasaga dr. V. G. »Frá Vesturheimi« o. s. frv. 4. KVÆÐI OG PÝÐINGAR eftir Guðmund Einarsson með 15 ljómandi myndum úr Friðþjófssögu. Nýir kaupendur geta og fengið alla 14 fyrstu árganga Eimreiðarinnar í einu lagi, sem kosta með bókhlöðuverði 41 kr. (í Ameríku $ 16, 40) með 21 kr. afslætti eða fyrir einar 20 kr. (í Ameríku $ 8,00). — I 14 fyrstu árgöngunum eru 310 myndir °g í XS—16. árg. 23 myndir (í hinum út komnu 16 árgöngum þannig alls 333 myndir). Ur ritdómum um Eimreiðina: »Að öllu samtöldu mun »Eimreiðin« hafa fullnægt köllun sinni bezt af þeim tímaritum, sepi íslenzkri alþýðu hafa boðist til þessa. Hún heíir nú í ellefu ár flutt margt fróðlegt og skemtilegt, sumt af því prýðisvel ritað. Frágangurinn allur hefir jafnan verið vandaður, og myndir hennar hafa flestar verið til prýðis (nema ómynd sú af eimreið, er til skamms tíma var prentuð framan á kápuna). Auðvitað hefir efni og ritháttur verið misjafn að gæðum, en varla mun neitt, er hún hefir flutt, hafa verið svo lélegt, að ekki hafi mátt heita fullboðlegt; og ruslaskrína hefir hún aldrei verið. Hún hefir vissulega haft góð áhrif á íslenzka alþýðu yfir höfuð.« (»VÍNLAND« V, 1.) »Eimreiðin er rit, sem ætti að hafa meiri útbreiðslu meðal Vestur-íslendinga, en enn hefir orðið. Að eins valdir höfundar rita í þetta tímarit, og allir rita þeir vel og um fróðleg efni yfirleitt. Sjálfur er Dr, Valtýr, útgefandinn, svo vel þektur af Vestur-íslendingum, að ekki er þörf að Ijölyrða um rithæfilegleika hans. í*eir eru í fullu samræmi við lærdóm hans og gáfur. Og svo velur hann sér rithjálp, að ekki kennir neinnar hlutdrægni gegn nokkrum manni, málefni eða hugsjón; og er það stór kostur, sem allir frjálshugsandi menn munu kunna að meta að verðleikum. fslenzka málið er þar ritað svo sem bezt verður, af þeim, sem bezt kunna móður- málið. ?að út af fyrir sig er .gild ástæða fyrir Vestur-íslendinga að kaupa rit þetta og lesa það. 1?að er hver maður fróðari fyrir lestur ritsins, og sá fróðleikur ætti að skoðast meira virði en nemur verði ritsins.« (»HEIMSKRINGLA« XX, 39.) »Eimreiðin er skemtileg að vanda og kærkominn gestur hér vestra öllum, sem fróðleik unna og fallegu ritmáli.« (»LÖGBERG« XIX, 31.) »Hringsjáin íslenzka í hverju hefti, eftir ritstj. (mest) og ýmsa aðra, er altaf mikils virði, hér um bil eina heilleg vísbendiug sem vér fáum um annarra þjóða rit um ísland og íslenzkar bókmentir. Ritsjá, uin íslenzkar bækur, er og í hverju hefti.« (»ÍSAFOLD« XXXIII, 44.) „Frámsta platsen bland de nutida isiandska tidskrifterna intages af „Eim- reiðin44.44 (»NORDISK FAMILJEBOK«‘ 970, stærsta alfræðibók Svía.) Eimreiðin gefur há sölulaun, þeim sem selja 4 eintök eða fleiri. — Pantanir sendist til skrifstofu hennar: AMAGERBROGADE 151, Kobenhavn S. Telef. Amager 307 x.

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.